Morgunblaðið - 29.03.2014, Qupperneq 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
PÁSKABLAÐIÐ
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 7. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SÉRBLAÐMorgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað tileinkað
páskahátíðinni
föstudaginn
11. apríl
Í blaðinu verða
girnilegar uppskriftir
að veislumat og
öðrum gómsætum
réttum ásamt
páskaskreytingum,
páskeggjum,
ferðalögum og fleira
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
RECAST - SVEFNSÓFI
Svefnflötur 140x200 cm - Vönduð springdýna
Litir: Blár / Grár - kr. 129.900
SVEFNSÓFAR
SEM BREYTAST Í RÚM Á AUGABRAGÐI
Ó
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þvílíkt rugl að borga þessa skatta,
vilja þessir kommar ekki bara kló-
settskatt? Já, nákvæmlega, skólar
eru drasl, svo ég tali nú ekki um
hvað það er dýrt að fara til læknis.“
Með þessum orðum hefst fyrsta
breiðskífa sunnlensku pönkrokks-
veitarinnar Elínar Helenu, Til
þeirra er málið varðar, sem kemur
út 1. apríl. Elín Helena kvaddi sér
hljóðs fyrir einum ellefu árum, gaf
þá út fjögurra laga þröngskífu,
Skoðanir á útsölu, lék eftir það á ör-
fáum tónleikum og gaf svo upp önd-
ina. Sveitin er nú upprisin og það
með látum, hressilegri skífu með
beittum textum þar sem finna má
margs konar samfélagsádeilu, m.a.
sungið um stjórnmál, fordóma, nöld-
ur, utangarðslífsstíl, lífsgæði, ást og
skort á ást. Hljómsveitina skipa í
dag söngvararnir Daði Óskarsson
og Eyjólfur Viðar Grétarsson, Sig-
urbjörn Már Valdimarsson bassa-
leikari, Skúli Arason trommuleikari
og gítarleikararnir Vignir Andri
Guðmundsson og Helgi Rúnar
Gunnarsson. „Við erum hljóðfæra-
salar, grunnskólakennarar, pípu-
lagningamenn og allt þar á milli,“
segir Vignir um liðsmenn Elínar
Helenu.
Ólgan vakti Elínu
„Það fór nú bara svo að menn
fóru utan og þá lagðist hún í langan
dvala,“ segir Vignir, spurður að því
hvað hafi valdið andláti Elínar Hel-
enu á sínum tíma. „Það mætti
kannski segja að breytingar í sam-
félaginu hafi orðið til þess að okkur
fannst kominn tími til að láta í okkur
heyra, aðeins að tjá okkur um hvert
samfélagið væri að fara,“ segir hann
um upprisuna.
– Ólgan í samfélaginu í kjölfar
hrunsins?
„Ólgan í samfélaginu, já og ákveð-
in óeining.“
– Það má sannarlega greina það í
lagatextum, mikið nöldur og
heimsósómi þar á ferð. Eruð þið
svona pirraðir?
Vignir hlær. „Í raun og veru erum
við að tala fyrir hina og þessa sam-
félagshópa, erum að setja okkur í
spor þeirra sem tala svona. Þetta er
ekki allt talsmáti eða lifnaðarhættir
sem við stundum sjálfir. Það eru
margir samfélagshópar sem tjá sig
á þennan hátt og við erum að
spauga dálítið með það. Við erum
t.d. að benda á hvernig orðræðan er
orðin í samfélaginu, oft þversagna-
kennd og sjálfhverf og við erum að
spegla það.“
– Inn á milli má svo finna hvers-
dagslegan pirring á borð við hver
eigi að raka á manni bakið ...
„Já, einmitt, þegar við blandast
almennur pirringur yfir öllu, almenn
tilætlunarsemi jafnvel sem við vilj-
um meina að sé svolítið mein í sam-
félaginu,“ segir Vignir. Hann segir
textana oft sprottna út frá einhverju
sem hljómsveitarmeðlimir heyri í
sínu nánasta umhverfi. „Við heyrum
einhverja orðræðu, mætum með
hana á æfingu og förum með hana
alla leið þar til hún verður að lagi.
Sumar þessara setninga eru nánast
beinar tilvitnanir í eitthvað sem við
höfum heyrt og við setjum það í
þetta samhengi.“
Kjaftshögg á umslagi
Hvað tónlistina varðar segir Vign-
ir að Elín Helena byggi á grunni
pönkrokks. „Svo leyfum við okkur
að fara aðeins í aðrar pælingar út
frá því,“ segir hann.
Ekki er hægt að sleppa Vigni án
þess að spyrja hann út í ljósmyndina
sem prýðir umslag plötunnar, mynd
sem blaðaljósmyndarinn Bjarnleifur
Bjarnleifsson tók á körfuboltaleik
Ármanns og KR í Laugardalshöll,
16. desember 1975. Á myndinni sést
leikmaður KR, Curtiss Carter, kall-
aður Trukkurinn, slá leikmann Ár-
manns, Jimmy Rogers, í andlitið.
Myndin fylgdi forsíðufrétt Dag-
blaðsins um atburðinn. Á plötu-
umslaginu sést reyndar aðeins
handleggur Trukksins, búið að
skera myndina þannig. „Við sáum
þessa mynd og fannst hún draga
saman allt það sem okkur fannst
vera á þessari plötu,“ segir Vignir
kíminn.
Platan kemur út 1. apríl, sem fyrr
segir, og af því tilefni mun Elín Hel-
ena troða upp í kvöld kl. 19 í versl-
uninni Lucky Records auk Kippa
Kaninus. Föstudaginn 4. apríl leikur
Elín Helena svo á Bar 11 ásamt
hljómsveitinni Muck.
Þversagnakennd og sjálfhverf
orðræða í samfélaginu
Ljósmynd/Atli Fannar Bjarkason
Ávaxtaborð Elínu Helenu skipa þeir Daði Óskarsson, Eyjólfur Viðar Grétarsson, Sigurbjörn Már Valdimarsson,
Skúli Arason, Vignir Andri Guðmundsson og Helgi Rúnar Gunnarsson. Hér virða þeir fyrir sér ávexti í Hagkaupum.
Pönkrokksveitin Elín Helena er risin úr dvala og gefur út breiðskífuna Til þeirra er málið varðar
Risaslagur Umslag plötunnar.
Eftirfarandi er hluti texta við
lagið „Raunsæ rómantík“.
Þvílíkt rugl að borga þessa skatta,
vilja þessir kommar ekki bara kló-
settskatt?
Já, nákvæmlega, skólar eru drasl,
svo ég tali nú ekki um hvað það er
dýrt að fara til læknis.
Það á auðvitað að vera frítt í
strætó.
Já, og miklu fleiri stopp, keyr’um
hverfin,við viljum ekki að labba.
Af hverju er ég að borga í stöðu-
mæla? Ég hef alltaf borgað mína
skatta.
Sammála. Ég vil fleiri bíla, stæði
fyrir þá alla. Malbikað, yfirbyggt,
vaktað, upplýst, upphitað.
Mjólkin, hún er alltof dýr.
Já, setjum stopp, burt með bruðl-
ið, á niðurgreiðslu bænda.
Lífið er raunsæ rómantík.
Og vísindaleg trúarbrögð.
Alþingismenn fá alltof mikið borg-
að, prófið þið að lifa á lágmarks-
launum.
Þú ert maður visku, á Alþingi þar
vantar fyrirmyndarfólk, sem ber
af í hæfni.
Kvikmyndum hefur versnað mjög.
Já, meiri gæði, betra úrval af fríu
downloadi.
Djöfuls plebbar eru allstaðar, já
og smekkleysan hún yfirkeyrir
allt.
Einmitt, borgum ekki listamönn-
um laun, drullist þið til að vinna
eins og menn.
Lágvöruverslun á Íslandi er dýr.
Hárrétt, fleir’á kassa, meira úrval,
og miklu fleiri búðir.
Lífið er raunsæ rómantík.
Raunsæ
rómantík
UPPHAFSLAG PLÖTUNNAR