Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 60
LAUGARDAGUR 29. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Lét taka mæðgin af lífi í New York
2. Komst inn í Princeton og Harvard
3. Leit á nýju svæði bar árangur
4. Stelpa frá Íslandi ein af gaurunum
Kvikmyndaunnendur þurfa ekki að
kvarta yfir framboði kvikmynda í bíó-
húsum Reykjavíkur í marsmánuði.
Bíó Paradís hefur boðið upp á þýska
kvikmyndahátíð sem lauk 23. mars
og barnakvikmyndahátíð sem lýkur
um helgina og brátt hefst í kvik-
myndahúsinu indversk kvikmynda-
hátíð. Í aðalsafni Borgarbókasafns
Reykjavíkur stendur yfir hátíðin Evr-
ópa hlær og lýkur á morgun og í Nor-
ræna húsinu hefst á fimmtudaginn,
3. apríl, norræn kvikmyndahátíð og
stendur til 15. apríl. Opnunarmynd
hennar er sænska kvikmyndin
Monica Z í leikstjórn Pers Flys en
aðalleikkona myndarinnar er hin
íslenskættaða Edda Magnason og
Sverrir Guðnason fer einnig með
stórt hlutverk. Bæði hlutu þau fyrir
skömmu sænsku kvikmyndaverð-
launin, Gullbjölluna, fyrir leik sinn í
myndinni. Edda og Sverrir verða við-
stödd opnun hátíðarinnar.
Monica Z á norrænni
kvikmyndahátíð
Sjón snýr aftur í Breiðholtið, þar
sem hann kvaddi sér fyrst hljóðs á
vettvangi ljóðanna, og er eitt þeirra
skálda sem lesa upp í Breiðholts-
kirkju klukkan 16 í dag við upphaf
listahátíðar er nefnist Djúp og
breið. Þungamiðja hátíð-
arinnar er samstarf kóra
kirknanna í Breiðholti og
Seljahverfi og eru ým-
iskonar uppákomur fyr-
irhugaðar næstu
daga; fjölbreytilegir
tónleikar, upp-
lestrar og leik-
sýningar.
Listamenn troða upp
í kirkjum Breiðholts
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 3-8 m/s og léttskýjað en 8-10 m/s og sums staðar súld
syðst. Hiti 1 til 10 stig að deginum, svalast í innsveitum norðaustanlands en víða næturfrost.
Á sunnudag Austan og suðaustan 3-8 m/s og víða bjartviðri, en 8-13 og súld syðst. Hiti
0 til 6 stig, mildast syðst. Á mánudag og þriðjudag Hæg austanátt og bjartviðri fyrir
norðan en 5-10 m/s og væta með köflum á Suðurlandi. Hiti 3 til 10 stig að deginum.
Á miðvikudag og fimmtudag Sunnan- og suðaustanátt með vætu víða um land.
Marvin Valdimarsson tryggði Stjörn-
unni þriðja sigurinn á Keflavík, í 8-
liða úrslitum Dominos-deildarinnar í
körfuknattleik, með þriggja stiga
körfu í blálokin í Keflavík í gærkvöld.
Þar með vann Stjarnan einvígið 3:0
gegn liðinu sem varð í 2. sæti deild-
arinnar. Haukar eru einnig komnir í
sumarfrí eftir 3:0-tap í einvígi sínu
við Njarðvík. »2-3
Keflvíkingar og Haukar
komnir í sumarfrí
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr
Sundfélaginu Ægi bætti í
gær eigið Íslandsmet í 200
m baksundi á Opna danska
meistaramótinu. Eygló
bætti metið sitt um 4/100
úr sekúndu en var aðeins
7/100 úr sekúndu frá
Norðurlandametinu. „Ég
ætla að ná Norðurlanda-
metinu á Íslandsmótinu
fyrst það tókst ekki núna,“
segir Eygló. »1
Ætlar sér Norður-
landametið
Sigþór Árni Heimisson, 21 árs gamall
leikmaður í liði Akureyrar, er leik-
maður 19. umferðar í Olís-deildinni í
handknattleik að mati Morgunblaðs-
ins. „Ég var
mjög ánægður
með mína
frammistöðu í
leiknum og enn
meira með sig-
ur okkar. Þetta
var rosalega
dýrmætur sig-
ur,“ segir Sigþór
um sigur liðsins á
FH. »2-3
Þetta var rosalega
dýrmætur sigur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þrjár kynslóðir úr fjölskyldu Ungfrú
klukku eru þessa dagana að flytjast
búferlum austur í Rangárvallasýslu.
Raunar er ættmóðirin þegar komin í
sveitina og afkomendurnir fylgja á
eftir. Forsaga þessa er sú að Sig-
urður Harðarson rafeindavirki er nú
að gera við kramið í ungfrúnni sem
var við lýði frá 1965 til 1993. Þær út-
gáfur sem síðar hafa komið eru
sömuleiðis á förum. Verða í fjar-
skiptadeild Samgöngusafnsins í
Skógum undir Eyjafjöllum.
Í Morgunblaðinu á sl. ári sagði frá
Thor B. Eggertssyni símvirkja sem
vakti af þyrnirósarsvefni þá Ungfrú
klukku sem snerist frá 1937 til 1965.
Það var maskína sem glerplötur
voru settar í og af þeim lásu ljós-
nemar klukkustundir, mínútur og
sekúndur sem Halldóra Briem las.
Tæknin sem klukka númer tvö,
sem er frá 1965, byggðist á er ekki
ósvipuð nema þar er ein glerplata.
Heilmikið gangvirki fylgir þeirri
tímavél; mekanik sem sneri áfram
glerplötu sem á var rödd Sigríðar
Hagalín leikkonu. Þrír armar eins
og á plötuspilara lásu af plötunni;
einn klukkustundirnar, annar mín-
útur og sá þriðji sekúndur.
Þurrkumótor úr gömlum Fiat
„Ég fékk klukkuna frá 1965 af-
henta nú nýlega og það hefur verið
talsverð þolinmæðisvinna að fá tæk-
ið í gang aftur. Kramið sem plöt-
urnar snúast á fór ekki af stað. Það
var ekki fyrr en ég mixaði þurrku-
mótor úr gömlum Fiat við gangvirk-
ið að það virkaði,“ segir Sigurður.
Einnig hefur Sigurður sett af stað
stafræna klukkuvél sem snerist frá
1993 og út síðasta ár. Röddin á
bak við Ungfrú klukku í því til-
viki var Halldóra Björnsdóttir
leikkona, sem Ólafur Darri
Ólafsson leikari hefur nú leyst
af hólmi. Klukkuraddir alls þessa
fólks verður nú hægt að hlusta á í
Skógasafni.
Sat öllum stundum við símann
Segja má að Ungfrú klukka, sem
lengi var í símanúmerinu 04 en nú
155, sé sjálf Íslandsklukkan, svo vís-
að sé til skáldsögu Halldórs Lax-
ness. Þetta var eins konar núll-
punktur samfélagsins. „Þegar ég
vann við uppsetningu fyrstu umferð-
arljósanna í borginni árið 1964
hringdum við í 04 og samstilltum
ljósin þannig,“ segir Sigurður.
„Sömuleiðis veit ég að lögreglan,
veiturnar og fleiri miðuðu við kon-
una í símanum, sem margir töldu að
væri manneskja og sæti öllum
stundum við símann. Og í blöðunum
var sagt ansi hart að konan gæti
ekki fengið frí á sunnudags-
morgnum ef hún hefði verið að
skemmta sér kvöldið áður.“
Íslandsklukkan aftur af stað
Ungfrúin frá
1965 fær líf Sig-
urður gerir við
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tækni Sigurður Harðarson við tímavélarnar góðu. Til vinstri er glerplötuspilari Ungfrú klukku en til hægri er
skilaboðaskjóða NMT-kerfisins. Nú er þessi tækni komin í stafrænt form og kubb eins og Sigurður heldur á.
Sigurður Harðarson hefur í áratugi sinnt viðgerðum og uppsetningu
á ýmiskonar fjarskiptabúnaði, svo sem símum, talstöðvum og fleiru.
Er goðsögn á sínu sviði. Hefur til dæmis mikið unnið fyrir björg-
unarsveitirnar en síðustu árin hefur hann varið miklum tíma í upp-
setningu áðurnefndrar fjarskiptasýningar í Skógum, þar sem eru tal-
stöðvar, símar og fleiri tæki. Í Skógasafni hefur einnig verið sett
upp deild með ýmsum búnaði tengdum NMT-far-
símakerfinu sem nú hefur verið aflagt. Ýmis hljóð-
brot fylgja því og margir muna sjálfsagt eftir óm-
þýðum lestri Kolbrúnar Halldórsdóttur leikkonu og
alþingismanns þegar svarað var og sagt: Í augna-
blikinu getur verið slökkt á farsímanum, síminn utan
þjónustusvæðis eða allar rásir uppteknar. Fleiri slíkar
upptökur, nú komnar á stafrænt form, eru í Skógum,
en á samgönguminjasafninu þar eru munir frá Síman-
um, Póstinum, Vegagerðinni, Rarik og mörgum fleir-
um.
Eða allar rásir uppteknar
NMT-SÍMKERFIÐ AFLAGT OG NÚ ORÐIÐ SAFNGRIPUR
Kolbrún
Halldórsdóttir