Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 1
Mikil gleði braust út í húsnæði Ríkissáttasemjara í
gærkvöldi þegar samninganefndir grunnskóla-
kennara og sveitarfélaganna skrifuðu undir nýjan
kjarasamning. Deilan hefur verið hjá Ríkis-
sáttasemjara frá því í mars og hafa um þrjátíu
fundir verið haldnir síðan. Því var ekki að furða
að Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskóla-
kennara, og félagi hans í samninganefndinni féll-
ust í faðma þegar samningur var í höfn. »2
Morgunblaðið/Eggert
Kennarar féllust í faðma eftir undirritun
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. M A Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 119. tölublað 102. árgangur
KJÖTSÚPUBÍLL
Á SKÓLAVÖRÐU-
HOLTINU
SPILA Í
FRAKKLANDI
Í SUMAR
TILFINNINGA-
LEGT VAL OG
EKKI ÚTPÆLT
EPIC RAIN 38 KORTLAGNING LANDS 39FARMERS SOUP 10
Ómar Friðriksson
Kjartan Kjartansson
Fundi í kjaradeilu sjúkraliða var
slitið á ellefta tímanum í gærkvöldi
án þess að niðurstaða hefði náðst.
Nýr fundur hefur verið boðaður kl.
9.15 í dag. Ótímabundið allsherj-
arverkfall sjúkraliða og fé-
lagsmanna í SFR á hjúkrunarheim-
ilum og stofnunum innan Samtaka
fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu er
til starfsmanna þessara stofnana og
þeir fengju launaleiðréttingar frá 1.
febrúar sl. Áætlaður kostnaður við
framlag ríkisins til jafnlaunaátaks-
ins fyrir hjúkrunarfræðinga og Efl-
ingarfólk er á bilinu 600 til 700
milljónir kr. skv. upplýsingum
blaðsins.
Með jafnlaunaátakinu sem hófst
1. mars í fyrra voru laun í hefð-
bundnum kvennastörfum á heil-
brigðisstofnunum sem heyra undir
ríkið hækkuð en það náði ekki til
hjúkrunarheimila. Vilja SFR og
Sjúkraliðafélag Íslands að launa-
leiðrétting félagsmanna þeirra
vegna jafnlaunaátaksins verði aft-
urvirk og gildi frá 1. mars 2013.
Það er talið kosta aðildarfélög SFV
nokkra tugi milljóna til viðbótar og
hefur ekki fengist vilyrði um fjár-
framlög frá ríkinu vegna þess.
MRíkið lofar auknum … »13
boðað kl. 8 á morgun hafi samn-
ingar ekki náðst.
Vel hefur miðað í viðræðum um
réttindamál starfsmanna en ágrein-
ingur er óleystur um launaliðinn.
Búið er að semja við hjúkrunar-
fræðinga og félagsmenn í Eflingu á
þessum stofnunum og í framhaldi af
því gaf ríkisstjórnin loforð sl. föstu-
dag um viðbótarfjárframlög til
sjálfseignarstofnana svo jafnlauna-
átak fyrri ríkisstjórnar næði einnig
Verkfall vofir enn yfir
Ríkið lofaði fjárframlagi til SFV svo jafnlaunaátakið næði einnig til hjúkrunar-
heimila SFR og sjúkraliðar vilja afturvirka leiðréttingu Fundað fram á kvöld
Mikill meirihluti kjósenda í
Reykjavík vill að Dagur B. Egg-
ertsson, oddviti Samfylkingar-
innar, verði næsti borgarstjóri. Í
nýrri könnun Félagsvísindastofn-
unar Háskólans fyrir Morgun-
blaðið á fylgi borgarstjóraefna
framboðslistanna er hann nefnd-
ur af 63% þátttakenda sem af-
stöðu tóku. Halldór Halldórsson,
oddviti sjálfstæðismanna, er
nefndur af 19%.
„Ég er mjög þakklátur fyrir
þennan stuðning og mun gera
mitt til að standa undir honum.
En það eru auðvitað kosning-
arnar sem gilda,“ sagði Dagur í
samtali við
Morgunblaðið.
Persónufylgi
Dags er mun
meira en fylgi
Samfylkingar-
innar í Reykjavík
sem þó hefur
aukist verulega
að undanförnu.
Fylgi flokksins
var 34% í könn-
un sem birt var í gær. Fylgi við
Dag hefur aukist í hverri könnun
sem gerð hefur verið undanfarna
mánuði. Það var 58% fyrir tíu
dögum. » 16-17
Mikill meirihluti kjósenda í Reykjavík vill
að Dagur B. Eggertsson verði borgarstjóri
Dagur B.
Eggertsson
Ráðist verður í
framkvæmdir við
nýtt móttökuhús
við Skógasafn í
Rangárvallasýslu
á næstunni. Loka
þarf aðal-
inngangi safns-
ins á meðan á
framkvæmdum
stendur. Rekstur
safnsins gengur
vel og það skilar hagnaði á hverju
ári og honum er varið til uppbygg-
ingar. 62 þúsund gestir sóttu safnið
heim á síðasta ári en þeim hefur
fjölgað um 20% á ári í mörg ár. »12
Rekstur stendur
undir uppbyggingu
Safn Áraskipið
Pétursey í Skógum.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Stúdentar við Háskóla Íslands og
framhaldsskólanemar eru svartsýnir
á atvinnuhorfur fyrir sumarið. Vel-
ferðarráðuneytið ver um 150 millj-
ónum í svokallað sumarátak, fimmta
árið í röð. Þar gefst námsmönnum,
einkum háskólastúdentum, kostur á
sumarstörfum hjá stofnunum ríkis
og sveitarfélaga. Í boði eru 390 störf,
nokkuð færri í ár en áður.
María Rut Kristinsdóttir, formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands,
segir stúdenta í skólanum hafa
þungar áhyggjur af afkomu sinni í
sumar. Könnun, sem Stúdentaráð lét
vinna fyrir um mánuði um atvinnu-
horfur stúdenta sýndi að 65% svar-
enda voru ekki komin með sumar-
starf. Í framhaldinu þrýsti ráðið á
Vinnumálastofnun um áframhald
sumarátaksins. „Það er auðvitað
mjög gott að það verði aftur nú í
sumar, þó að þessi tæplega 400 störf
dugi engan veginn til,“ segir María.
„Það væri langbest ef það þyrfti ekki
alltaf að koma til sérstaks átaks.“
Allur gangur er á því hvort enn er
hægt að sækja um sumarstörf hjá
sveitarfélögunum. Til dæmis sóttu
2.818 um 1.550 sumarstörf hjá
Reykjavíkurborg. 846 sóttu um sum-
arstörf hjá Kópavogsbæ og verða all-
ir ráðnir. „Það er lítið sem býðst og
helst á vegum sveitarfélaganna. Það
er ekki verið að ráða eins mikið á al-
mennum vinnumarkaði,“ segir Lauf-
ey María Jóhannsdóttir, formaður
Sambands íslenskra framhalds-
skólanema. »4
Áhyggjur af sumrinu
Námsfólk uggandi um atvinnuhorfur Átak dugar ekki til
Gengi Icelandair
Group, sem líf-
eyrissjóðir eiga
mikið í, hefur
lækkað um 12% á
þremur mán-
uðum, þar af 4% í
gær. Félagið á í
harðri kjaradeilu
við um 40%
starfsmanna.
Á undanförnum tólf mánuðum
hefur gengið samt sem áður hækk-
að um 30%. Á síðasta ári hækkaði
það um 118% og samtals um 121% á
árunum 2012 og 2011. »18
Icelandair hefur
lækkað um 12%
Fram kemur í nýrri skoðanakönn-
un meðal íbúa Vesturlands að um
fjórðungur íbúa í Dalasýslu telur
mjög eða frekar líklegt að hann
flytji frá Vesturlandi á næstu
tveimur árum. Það er mikil breyt-
ing frá könnun sem var gerð fyrir
þremur árum þegar 14% íbúa höfðu
hug á því að flytja.
Nýja könnunin leiðir jafnframt í
ljós að íbúar Akraness og
Hvalfjarðarsveitar hafa minni hug
á að flytja en íbúar í öðrum hér-
uðum Vesturlands, eða 14%. Hlut-
fallið er 18% á Snæfellsnesi og 21%
í Borgarfirði. Það er talið eiga þátt
í hinu háa hlutfalli í Borgarfirði að
þar hafa margir háskólapróf. »22
Fjórðungur íhugar
að flytja í burtu