Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR 3,7 L/100 KM* CO2 ÚTBLÁSTUR 95 GRÖMM ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT P FRÍTT Í STÆÐI! FRÍTT Í STÆÐI Á MIÐBORGARSVÆÐINU RENAULT CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR – VERÐ 3.090.000 KR. Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio. www.renault.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 6 2 3 0 2 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ríkisstjórnin hefur gefið loforð um viðbótarfjárframlög til sjálfseignar- stofnana innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) svo jafn- launaátak fyrri ríkisstjórnar á heil- brigðisstofnunum ríkisins nái einnig til starfsfólks á hjúkrunarheimilum og öðrum stofnunum innan SFV. Það felur í sér að hjúkrunarfræð- ingar á þessum stofnunum og starfs- menn við umönnun sem eru í Efl- ingu stéttarfélagi fá sambærilegar launabætur eða ígildi þeirra frá 1. febrúar sl. og heilbrigðisstarfsfólk hjá ríkinu fékk frá og með 1. mars í fyrra þegar jafnlaunaátakið hófst. Vantar tugi milljóna ef leiðrétt- ingin á að vera afturvirk Stéttarfélög starfsfólks á hjúkr- unarheimilunum hafa krafist þess í kjaraviðræðunum að undanförnu að jafnlaunaátakið nái einnig til þeirra og fengu stjórnvöld frest til kl. 16 sl. föstudag til að svara því. Var lof- orðið um aukin fjárframlög veitt áð- ur en sá frestur rann út. Efling og Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga skrifuðu undir kjara- samning við SFV í trausti þess að þetta gengi eftir en kjaradeila SFR og sjúkraliða við SFV er enn óleyst, m.a. vegna þess að þessi félög vilja að launaleiðrétting jafnlaunaátaks- ins verði afturvirk og gildi frá 1. mars 2013 með sama hætti og á heil- brigðisstofnunum ríkisins. Það er hins vegar talið kosta hjúkrunar- heimili og aðrar stofnanir innan SFV tugi milljóna í viðbótarútgjöld. Á því hefur strandað. Gildir frá 1. febrúar 2014 Loforðið sem ríkið gaf sl. föstudag felur í sér að jafnlaunaátakið á hjúkrunarheimilum gildir frá 1. febrúar 2014. Þær launabætur sem greiða þarf til að jafnlaunaátakið nái til hjúkrunarfræðinga og fé- lagsmanna Eflingar hjá SFV eru alls taldar kosta á bilinu 6-700 millj- ónir kr. skv. heimildum Morgun- blaðsins. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, segir félögin hafa viljað að starfsmenn sjálfseignarstofnananna fengju einnig notið jafnlaunaátaks- ins sem heilbrigðisstarfsmenn ríkis- ins í sambærilegum störfum fengu í mars 2013. Nú sé hugsanlega að opnast möguleiki á því en hann minnir á að umræddir starfsmenn hafi ekki notið jafnlaunaátaksins í heilt ár. Því sé tekist á um aftur- virknina við samningaborðið. Ótímabundið verkfall Viðsemjendur komu saman til sáttafundar kl. 13 í gær hjá ríkis- sáttasemjara. Náist ekki samkomu- lag hefst ótímabundið allsherjar- verkfall á hjúkrunarheimilum kl. 8 í fyrramálið. Réttindamál starfsmanna hafa einnig verið eitt stærsta ágreinings- málið í viðræðunum. Stéttarfélögin fara fram á að lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna gildi um félagsmenn þeirra sem starfa á sjálfseignarstofnunum innan SFV. Miðað hefur í samkomulagsátt um þetta og var tveimur lögfræðingum viðsemjenda falið að fara yfir drög að texta um réttindi og skyldur sem verði hluti af væntanlegum kjara- samningi. Ríkið lofar auknum framlögum  Stjórnvöld gáfu loforð um að jafnlaunaátakið næði einnig til heilbrigðisstarfsfólks á hjúkrunarheimil- um innan SFV  Talið kosta 6-700 milljónir  Sjúkraliðar og SFR vilja að leiðréttingin verði afturvirk Morgunblaðið/Þórður Sjúkraliðar Verkfallsmiðstöð var opnuð þegar sjúkraliðar og félagar í SFR hófu tímabundnar verkfallsaðgerðir á hjúkrunarheimilum. Náist samningar ekki á næsta sólarhring skellur á ótímabundið allsherjarverkfall á morgun. Réttindamál sjúkraliða og fé- laga í SFR á hjúkrunarheimil- um innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa verið eitt helsta ágreiningsmál kjaradeilunnar. Nú er farið að þokast nokkuð vel í samkomu- lagsátt um þetta, að sögn Árna Stefáns Jónssonar, for- manns SFR. Hann segir að umræddar stofnanir hafi í gegnum tíðina viðurkennt í gegnum hliðarsamninga við stéttarfélögin eða ráðningar- samninga starfsfólks hliðstæð réttindi og kveðið er á um í lögunum um réttindi og skyld- ur ríkisstarfsmanna. Á sein- ustu árum hafi hins vegar æ meira borið á því að stofnan- irnar hafi dregið þessi réttindi í efa. „Þá fórum við fram á að þetta yrði fært inn í kjara- samninginn svo það yrðu ekki nein vafamál um hvaða rétt- indi fólk hefði skv. texta kjarasamnings.“ Um er að ræða réttindi á borð við að starfsmanni sem brotið hefur af sér sé veitt áminning í stað umsvifalausrar uppsagnar. Þokast hefur í rétta átt RÉTTINDI SÉU HLIÐSTÆÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.