Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! kl. 13:00Upplestur 20% afsláttur Við aðstoðum þig við að velja spilið og pökkum því inn fyrir þig. Gefðu spil í afmælisgjöf Sendum um allt land spilavinir.is Draumar Dags B. Eggertssonarog félaga um þróun Reykja- víkur hafa komið ágætlega fram á undanförnum árum og á þeim hef- ur verið hnykkt í kosningabarátt- unni á síðustu vikum.    Einn helstidraumur Dags er að koma borgar- búum úr bílum sín- um og inn í strætó eða að minnsta kosti á hjólhesta. Þetta kom skýrt fram í viðtali í gærmorgun þar sem hann gerði ekki lítið úr því afreki borgaryfirvalda að hafa fjölgað strætisvagnafarþegum.    Þessi draumur er um leið mar-tröð allra þeirra sem vilja ferðast áfram á bílum sínum, því að Dagur og félagar kjósa að ná mark- miðum sínum með því að þrengja að bíleigendum, hætta að byggja upp stofnbrautir og setja fuglahús og aðrar fyrirstöður á miðjar um- ferðargötur.    Annar draumur Dags er að end-urskipuleggja alla borgina eins og fram kemur í aðalskipulagi þar sem flugvelli er úthýst og byggðin þrengd, og í hverfaskipu- lagi þar sem boðið var upp á blokk- ir þar sem áður voru bílskúrar í einkaeigu.    Þessum draumi fylgir að borginskuli hefja byggingu leigu- íbúða til að ná niður húsnæðis- kostnaði, sem er óeðlilega hár vegna þess að borgin neitar að leyfa eðlilega uppbyggingu á löngu skipulögðum vaxtarsvæðum.    Þessir draumar Dags og félaga ínúverandi meirihluta eru mar- tröð þeirra sem vilja eðlilega upp- byggingu borgarinnar án opin- berra íbúðabygginga og þess að ráðist sé á flugvöll og úthverfi. Dagur B. Eggertsson Dagsdraumar STAKSTEINAR Veður víða um heim 20.5., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 7 súld Akureyri 10 léttskýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 22 heiðskírt Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 23 léttskýjað Dublin 12 skúrir Glasgow 16 léttskýjað London 20 léttskýjað París 12 skúrir Amsterdam 25 heiðskírt Hamborg 25 heiðskírt Berlín 25 skýjað Vín 25 léttskýjað Moskva 27 heiðskírt Algarve 17 skýjað Madríd 18 skýjað Barcelona 17 skýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 10 alskýjað Montreal 17 léttskýjað New York 23 heiðskírt Chicago 25 léttskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 21. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:53 22:56 ÍSAFJÖRÐUR 3:28 23:32 SIGLUFJÖRÐUR 3:10 23:16 DJÚPIVOGUR 3:16 22:33 Vitnaleiðslur fóru fram í meiðyrða- máli Gunnars Þorsteinssonar, sem gjarnan er kenndur við Krossinn, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gunnar krefst 15 milljóna króna í skaðabætur og afsökunarbeiðni frá tveimur konum og frá Vefpressunni; fimm milljóna frá hverjum aðila fyrir sig vegna umfjöllunar um ásakanir um kynferðisbrot. Umfjöllunin var byggð á ummæl- um tveggja kvenna, Ástu Knútsdótt- ur og Sesselju E. Barðdal. Fram kom í máli Gunnars að hjónaband hans og Jónínu Bene- diktsdóttur væri grunnurinn að því að konur sökuðu hann um kynferðis- ofbeldi. Pressan hefði svo greint frá þeim ásökunum til að „ná ákveðnum markmiðum gagnvart Jónínu“. Nokkrar konur báru vitni í gær um meint brot Gunnars. Meðal þeirra er Sólveig Guðnadóttir. Hún er ein þeirra kvenna sem kærðu Gunnar fyrir kynferðisofbeldi 2011, en hún var mágkona Gunnars. Sagði Sólveig að Gunnar hefði fyrst brotið gegn sér þegar hún var þrettán ára og aftur þegar hún var 21 árs. Krefst 15 milljóna í skaðabætur Morgunblaðið/Þórður Í héraðsdómi Gunnar Þorsteinsson.  Meiðyrðamál Gunnars í Krossinum Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra hefur ákveðið að veita 3 milljónir króna í neyðar- aðstoð til Bosníu og Hersegóvínu og Serbíu. Fram kemur á vef utanríkis- ráðuneytisins að aðstoðin sé til þess að „bregðast við því neyðarástandi sem ríkir á svæð- inu vegna flóða eftir mesta úrfelli síðan mælingar hófust árið 1894“. „Stór landsvæði eru undir vatni – um 40% lands í Bosníu og Herse- góvínu en um 15% í Serbíu. Tugir manns hafa farist af völdum flóð- anna og er talið að yfir hundrað þús- und manns hafi hrakist af heimilum sínum eða verið flutt á brott vegna flóðanna. Þá er yfir milljón manns án drykkjarhæfs vatns og hefst fólk við í neyðarskýlum og bráðabirgða- húsnæði,“ segir í tilkynningunni en framlögin munu renna til lands- félaga Rauða krossins á flóðasvæð- inu sem sinna hjálparstarfi. Gunnar Bragi vottar þeim sem um sárt eiga að binda samúð sína. „Hugur okkar er hjá þeim fjöl- mörgu sem hafa beðið tjón eða misst ástvini í flóðunum,“ segir Gunnar Bragi. Þrjár milljónir í neyðaraðstoð vegna flóða Gunnar Bragi Sveinsson Skannaðu kóðann til að lesa meira um dómsmálið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.