Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Flestir kjósendur í Reykjavík vilja að Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, verði næsti borgarstjóri. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Félags- vísindastofnun Háskólans gerði fyr- ir Morgunblaðið á fylgi við borgar- stjóraefni framboðslistanna í höfuðborginni. Stuðningur við Dag hefur aukist jafnt og þétt í öllum könnunum frá því í nóvember. Úr 58% í 63% Samkvæmt könnuninni sem gerð var dagana 12. til 15. maí vildu 63% þátttakenda, sem afstöðu tóku, Dag sem næsta borgarstjóra. Í könnun fyrir tíu dögum voru 58% sama sinn- is. Persónufylgi Dags er langtum meira en fylgi Samfylkingarinnar í Reykjavík en það hefur þó einnig aukist verulega. Í könnun sem birt var hér í blaðinu í gær var Samfylk- ingin með 34,1% fylgi og hefur það aldrei verið meira. Óbreytt fylgi Halldór Halldórsson, oddviti sjálf- stæðismanna, er með 19% fylgi í borgarstjóraembættið sem er sama og síðast. Fylgi við hann var mest í könnun í febrúar þegar það mældist 25,2%. Fylgi Halldórs núna er litlu minna en fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni sem hefur minnkað veru- lega að undanförnu. Það var 21,5% í könnuninni sem birt var í gær. 6,3% vilja Björn Blöndal Sex aðrir frambjóðendur voru nefndir á nafn í könnuninni, en stuðningur við þá í borgarstjóra- stólinn er mun minni en við Dag og Halldór. 6,3% nefndu S. Björn Blöndal, oddvita Bjartrar fram- tíðar, og 3,8% Sóleyju Tómasdóttur, oddvita Vinstri grænna. Í báðum tilvikum njóta þessir oddvitar minna fylgis en framboðslistar flokka þeirra. Björt framtíð var í könnuninni í gær með 22,2% fylgi og VG 6,3%. Í kringum 1% þátttakenda og færri nefndu Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Fram- sóknarflokksins og flugvallarvina, Halldór Auðar Svansson, oddvita Pírata, Þorleif Gunnlaugsson, odd- vita Dögunar, og Þorvald Þorvalds- son, oddvita Alþýðufylkingarinnar. Aðrir eru ekki nafngreindir. Nær 30% óákveðin Tvær leiðir voru notaðar til að ná til kjósenda. Annars vegar var hringt í 400 manna tilviljunarúrtak úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 18 ára og eldra. Hins vegar var send netkönnun til 800 manna úr- taks úr netpanel Félagsvís- indastofnunar Háskóla Íslands. Alls fengust 762 svör frá svarendum á aldrinum 18-91 ára og var svarhlut- fall 66%. Vigtaður svarendafjöldi var sömuleiðis 762. Af heildinni reyndust 29,4% þátt- takenda ekki hafa gert upp hug sinn til borgarstjóraefnanna. Það er mun hærra hlutfall en óákveðinna þegar spurt er um stuðning við ein- staka framboðslista. Í Reykjavík- urkönnuninni sem birt var í gær voru um 14% þátttakenda óákveðn- ir. Fylgi við Dag B. Eggertsson er mun meira meðal kvenna en karla. Vilja 68% kvenna hann sem borgar- stjóra en 58% karla. Fylgi kynjanna við Halldór er hins vegar hnífjafnt. 7% ungra vilja Halldór Verulegur munur er á afstöðu yngstu kjósendanna, fólks á aldr- inum 18 til 29 ára, til oddvitanna tveggja. Aðeins 7% styðja Halldór Halldórsson, en 68% Dag B. Egg- ertsson. Munurinn á þeim er minni í elsta aldurshópnum, meðal kjós- enda 60 ára og eldri. Styðja 30% í þeim hópi Halldór, en 57% Dag. Halldór hefur minni stuðning Hvern vilt þú helst sjá sem borgarstjóra? Dag B. Egg ert sso n Fylgi samkvæmt könnun 6.-18. nóvember 2013 Fylgi samkvæmt könnun 15.-23. janúar 2014 Fylgi samkvæmt könnun 18.-23. febrúar 2014 Fylgi samkvæmt könnun 17.-23.mars 2014 Fylgi samkvæmt könnun 30. apríl-6. maí 2014 Fylgi samkvæmt könnun 12.-15. maí 2014* Ha lldó r Ha lldó rss on S. B jörn Blö nda l Sól eyj u Tóm asd ótt ur Ha lldó r Au ðar Sva nss on Sve inb jörg Bir na Sve inb jörn sd. Þor val dur Þor val dss onÞor leif ur Gu nnl aug sso n Ann an ein sta klin g 62,7% 19,0% 6,3% 3,8% 1,3% 0,9% 0,8% 0,5% 4,6% 33 ,1 % 49 ,4 % 48 ,1 % 54 ,5 % 58 ,0 % 11 ,7 % 19 ,7 % 25 ,2 % 22 ,7 % 19 ,3 % 6, 9% 10 ,4 % 9, 7% 8, 2% 7,7 % 5, 7% 6, 5% 6, 0% 3, 9% 3, 2% 1, 1% 2, 0% 2, 2% 2, 8% 1,0 % 0, 7% 1, 2% 0, 7% 41 ,4 % 11 ,2 % 8, 8% 7,1 % 7,7 % *Könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 12.-15. maí 2014. Dagur með yfirgnæfandi fylgi  Ný könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi við borgarstjóraefni framboðslista í Reykjavík  63% vilja Dag B. Eggertsson  Er með mun meira fylgi en Samfylkingin  19% vilja Halldór Halldórsson SKOÐANAKÖNNUN NÆSTI BORGARSTJÓRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Störf bæjarstjóra eða sveitarstjóra eins og þau nefnast sums staðar eru meðal hinna eftirsóttustu á landinu. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Laun og hlunnindi þykja með ágætum og störfin skapa fram- gjörnu fólki tækifæri til athafna og útrásar. Þau eru og gjarnan stökk- pallur til þingmennsku eða áhuga- verðra verkefna í atvinnulífinu. 66 með framkvæmdastjóra Sveitarfélögin eru 74 að tölu. Alls eru 66 sveitarfélög með ráðinn framkvæmdastjóra en í átta sveit- arfélögum sér oddviti sveitar- stjórnar um framkvæmdastjórn sveitarfélagsins. Algengast er að laun fyrir þessi störf séu 900 þús- und til ein milljón á mánuði. Ýmist koma sveitarstjórar úr röðum for- ystumanna flokkanna sem mynda meirihluta hverju sinni eða ráðið er í störf eftir auglýsingu. Með milljón á mánuði Stærstu sveitarfélögin, með 15 þúsund íbúa eða fleiri, eru fjögur, og fimm sveitarfélög eru með íbúa- fjölda á bilinu fimm til fimmtán þúsund. Það er í þessum sveitar- félögum sem best launuðu emb- ættin er að finna. Í kjarakönnun sem Samband íslenskra sveitarfé- laga birti fyrir stuttu kom í ljós að mánaðarlaunin í síðarnefndu sveit- arfélögunum eru með hlunnindum að lágmarki ein milljón króna. Hlunnindi felast yfirleitt í föstum bifreiðastyrk, fríum bíl, fríum síma, risnu og þátttöku í greiðslu hús- næðiskostnaðar. Um kjör bæjarstjóra í stærstu sveitarfélögunum segir í skýrsl- unni: „Mánaðarlegar greiðslur til þeirra með yfirvinnu og föstum launagreiðslum eru í þremur til- vikum 1.100-1.199 þús.kr. og í einu yfir 1.199 þús.kr. á mánuði. Hlunn- indi framkvæmdastjóra á mánuði í þessum sveitarfélögum eru frá minna en 50 þús.kr. upp í 150-199 þús.kr.“ Mánaðarlaun eða funda- greiðslur Greiðslufyrirkomulag til kjörinna sveitarstjórnarmanna er mjög mis- Margir vilja fá bæjarstjórastól  Með um milljón og meira í laun  Stökkpallur til annarra verkefna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.