Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.05.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Það má segja að með þessu verkefni og öðrum af sama toga sem menn eru að skoða, allt frá Eyjafirði að suðurfjörðum Vestfjarða, þá breytist staðsetning Íslands úr því að verða vandamál og hindrun í að verða einn af okkar helstu styrkleikum. Landið er í því, sem kalla mætti miðpunkt flutningaleiða framtíðar, milli þess- ara þriggja risamarkaða í Austur- Asíu, Vestur-Evrópu og á vestur- strönd Bandaríkjanna. Þannig að þetta er vissulega söguleg stund,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra um fyrirhug- aða stórskipahöfn í Finnafirði. Samstarfssamningur var undirrit- aður í gær milli Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, verkfræðistof- unnar EFLU og þýska fyrirtækisins Bremenports um rannsóknir og þró- un á mögulegri umskipunar- og þró- unarhöfn í Finnafirði. Áætlað er að heildarkostnaður við rannsóknirnar næstu árin muni nema nokkur hundruð milljónum króna. Framkvæmdir gætu hafist 2018 Á þessu ári verður megináhersla lögð á söfnun gagna vegna umhverf- ismats, frumhönnunar og skipulags hafnarinnar. Gróður og fuglalíf á mjög stóru svæði í og við Finnafjörð verða skoðuð, gerðar jarðtæknilegar athuganir og veðurstöðvum komið fyrir á svæðinu og í mælibaujum. Þá verða gerðar nákvæmar landmæl- ingar og kort. Á næsta ári halda lífríkisrann- sóknir áfram auk þess sem fornleifa- rannsóknum verður sinnt. Einnig verður lífríki fjöru og fjarðar rann- sakað. Frumhönnun hafnarinnar mun hefjast sem og frumskoðun innra skipulags hafnarsvæðisins. Líklegt er að formlegt umhverfis- matsferli geti hafist árið 2016 og má reikna með að það taki alls 2 ár. Gangi allt eftir gætu framkvæmdir við Finnafjörð hafist árið 2018. Sigmundur Davíð segir allt útlit fyrir að Finnafjörður sé sérlega góð staðsetning fyrir slíka höfn. „Svo ef rannsóknirnar leiða ekkert óvænt í ljós, heldur staðfesta það sem menn telja rétt, þá má gera ráð fyrir að þetta verði að veruleika.“ Veðja á Finnafjarðarhöfn  Þýskt fyrirtæki fjármagnar rannsóknir í Finnafirði fyrir hundruð milljóna  Framkvæmdir gætu hafist 2018  Fyrirséð að stórskipaumferð mun aukast Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirritun Fulltrúar Bremenports, Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps og EFLU undirrituðu samninginn að viðstöddum forsætisráðherra og iðnaðarráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði það sögulega stund. Robert Howe, forstjóri Bremenports, segir enn of snemmt að segja til um hvort verkefnið verði að veru- leika, en fyrirtækið hafi mikla trú á því. „Við þurfum orku, við þurfum flatlendi og við þurfum gott sigl- ingasvæði. Finnafjörður er fullkominn að þessu leyti.“ Að auki sé fjörðurinn við norðurausturleiðina svo- nefndu þar sem skipaumferð muni aukast. „Ekki á næstu 2-3 árum en til framtíðar er alveg ljóst að þessi leið mun hafa gríðarleg áhrif á siglingar í heiminum.“ Horfa til framtíðar í Finnafirði HAFA MIKLA TRÚ Á VERKEFNINU Robert Howe Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær deiliskipulag vegna byggingar útilaugar við Sundhöllina í Reykja- vík. Laugin verður teiknuð á grundvelli verðlaunatillögu sem var valin í nóvember 2013. Í tillög- unni er gert ráð fyrir 25 metra langri útisundlaug, nýjum pottum, vaðlaug, nýju eimbaði og annarri aðstöðu til heilsuræktar. Gömlu búningsklefarnir eru friðaðir og verða þeir notaðir áfram en karla- klefinn verður stækkaður og nýr búningsklefi fyrir konur byggður. Þá samþykkti borgarráð á fundi sínum í gær einnig að veita íþrótta- og tómstundasviði fimm milljónir króna svo lengja mætti þann tíma sem sundlaugar verða opnar í sum- ar. Opið yrði í tveimur laugum, Vesturbæjarlaug og Árbæjarlaug, til klukkan 20 um helgar yfir sum- armánuðina þrjá sem er lenging um klukkustund frá því í fyrra. Í öðrum laugum verður opið til kl. 19 en í Laugardalslaug til kl. 22. Útilaug byggð við Sundhöllina  Sundlaugar opnar lengur í sumar Morgunblaðið/Eggert Í sundi Útilaug verður byggð við Sundhöllina í Reykjavík. Lítur alltaf vel út. Líka í myrkri. Audi Q3 lýsir upp veginn í orðsins fyllstu merkingu með glæsilegum framljósum sem bregðast sjálfkrafa við breytingum á birtuskilyrðum. Þetta er enn eitt dæmið um þá stefnu Audi að láta útlit og innihald alltaf haldast í hendur. Audi Q3 kostar frá kr. 7.590.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.