Morgunblaðið - 21.05.2014, Page 4

Morgunblaðið - 21.05.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is PARKETFLÍSAR ekkert að pússa og lakka SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Stúdentar við Háskóla Íslands eru svartsýnir á atvinnuhorfur fyrir sumarið og segir formaður Stúd- entaráðs að enn og aftur sé komið að miklu álagstímabili hjá stúdent- um þar sem þeir leiti allra leiða til að tryggja framfærslu sína yfir sumartímann. Störfum á vegum átaks velferðarráðuneytisins, sem einkum henta háskólastúdentum, hefur fækkað síðan í fyrra. For- maður Félags framhaldsskólanema segir menntskælingum fyrst og fremst bjóðast sumarstörf á vegum sveitarfélaganna, lítið sé um ráðn- ingar á almennum vinnumarkaði. Velferðarráðuneytið ver um 150 milljónum úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði til átaks sem ætlað er að tryggja 390 námsmönnum 18 ára og eldri sumarstörf hjá ríki og sveitarfélögum. Þetta er í fimmta skiptið sem ráðist er í átak af þessu tagi og eru störfin nokkuð færri nú en áður, í fyrra voru þau 650 og 900 árið 2012. Gissur Pétursson, for- stjóri Vinnumálastofnunar, segir ástæðurnar aðallega vera lægra framlag til verkefnisins og að að- stæður á vinnumarkaði hafi batnað aðeins. Opnað var fyrir umsóknir í síð- ustu viku og lýkur umsóknarfresti 28. maí. Atvinnuleysistrygginga- sjóður greiðir viðkomandi vinnu- veitanda 192.000 kr. á mánuði fyrir hvert starf, sem er grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta, auk 8% í lífeyr- issjóð. Vinnumálastofnun sér um skipulag átaksins, en hefur engin afskipti af ráðningarmálum. „Þetta er allt á fullri ferð og greinilega mikil eftirspurn,“ segir Gissur. „Ég held að það sé enginn vafi á því að það verður ráðið í öll þessi störf.“ Störfin sem um ræðir eru afar fjölbreytt. „Með þessu er verið að bjóða upp á víðtæka möguleika fyr- ir þjálfun fyrir ungt háskólafólk sem fær þarna möguleika á að þjálfa sig í því fagi sem það er að læra. Þetta er tækifæri sem þyrfti að vera til oftar og víðar til staðar í okkar þjóðfélagi. Það hlýtur t.d. að vera lærdómsríkara fyrir líffræði- nema að vinna við sitt fag á sumrin en að keyra út pitsur,“ segir Gissur. 65% ekki komin með starf María Rut Kristinsdóttir, for- maður Stúdentaráðs Háskóla Ís- lands, segir stúdenta í skólanum hafa þungar áhyggjur af afkomu sinni í sumar. Hún vísar til könn- unar sem ráðið lét gera í apríl um atvinnuhorfur stúdenta, en þá voru 65% svarenda ekki komin með sum- arstarf. „Við þrýstum þess vegna á Vinnumálastofnun um sumarátakið og það er auðvitað mjög gott að það verði aftur nú í sumar, þó að þessi tæplega 400 störf dugi engan veg- inn til,“ segir María. „Það væri langbest ef það þyrfti ekki alltaf að koma til sérstaks átaks.“ María segir að brýn þörf sé á að endurskoða kjör stúdenta, ólíðandi sé að þeir þurfi að hafa áhyggjur af afkomu sinni á sumrin ár eftir ár. „Við getum ekki verið í námi yfir sumarið, það eru engar sumarannir og við eigum ekki rétt á atvinnu- leysisbótum. Allir sem ekki fá vinnu geta fengið atvinnuleysisbætur nema stúdentar.“ Lítið í boði Laufey María Jóhannsdóttir, for- maður Sambands íslenskra fram- haldsskólanema, segir engar tölur liggja fyrir um atvinnuhorfur fram- haldsskólanema, en segir að sam- kvæmt þeim erindum sem sam- bandinu hafi borist sé ekki um auðugan garð að gresja. „Það er lít- ið sem býðst og helst á vegum sveit- arfélaganna. Það er ekki verið að ráða eins mikið á almennum vinnu- markaði en það er erfitt að segja hvort ástandið sé betra eða verra en í fyrra. Fólk leitar allra leiða til að fá vinnu og það er alveg ótrúlegt hvað margir eru úrræðagóðir,“ seg- ir hún. Morgunblaðið/Golli Stúdentar mótmæla Formaður Stúdentaráðs HÍ og formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema lýsa yfir áhyggjum vegna atvinnuhorfa. Svartsýnir á sumarstörf  Námsmenn segja atvinnuhorfur fyrir sumarið slæmar  Þurfa að hafa áhyggjur af afkomu sinni á hverju sumri  Færri átaksstörf nú en í fyrra Hallbjörn Hjart- arson tónlistar- maður var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum. Var dómurinn kveð- inn upp í Héraðs- dómi Norður- lands vestra. Fram kemur í dómsorðum að framburður drengjanna og móður annars þeirra þyki trúverðugur. Var talið „hafið yfir allan vafa“ að Hall- björn hefði framið brotin. Það skipti ekki máli „þótt vafi geti leikið á um stað og stund brotanna, enda um aukaatriði að ræða“. Var niðurstaðan meðal annars studd með bréfi sem Hallbjörn ritaði dóttur sinni og móður annars brota- þolans. Segir í dómsorðum að hann þyki þar reyna að koma ábyrgð á brotum sínum á brotaþola. Þá kem- ur fram að framburður Hallbjarnar í heild hafi verið ótrúverðugur. Virt til refsiþyngingar Litið var til þess við ákvörðun refsingar að háttsemin hafi verið til þess fallin að valda drengjunum skaða og var bréf Hallbjarnar þar sem hann reyndi að koma ábyrgð á brotum sínum á brotaþola, ekki talið honum til málsbóta og var virt hon- um til refsiþyngingar. Hann var ákærður fyrir að hafa á árinu 1999 misnotað annan drenginn kynferðislega á heimili sínu. Þá hafi Hallbjörn í lok árs 2000 eða á árinu 2001, á heimili drengsins, framið brot af sama tagi gegn honum. Jafnframt var Hallbjörn ákærður fyrir að hafa í tugi skipta er hinn drengurinn var á aldrinum 7 til 18 ára gamall brotið gegn honum kyn- ferðislega. Drengirnir eru barna- börn Hallbjarnar. Brotin vörðuðu við 1. og 2. mgr. 202. gr almennra hegningalaga þar sem lýst er refsiverðri háttsemi sem felst í því að hafa samræði eða önnur kynferðismök við börn. Litið var til þess að brotin hefðu verið mörg og staðið í samfellu um árabil en lokið á árinu 2011. Hall- birni var gert að greiða brotaþolum 1.250.000 krónur í bætur og allan sakarkostnað. Hallbjörn er þekktur kántrý- söngvari og stofnaði á sínum tíma Kántrýbæ á Skagaströnd. Dæmdur í þriggja ára fangelsi  Dómur kveðinn upp yfir Hallbirni Hallbjörn Hjartarson Ær nr. 0142 í Skarði í Landsveit hefur borið fimmtán lömbum á fjórum árum. Hún bar fimm lömbum um helgina, eins og á síðasta ári. Öll lömbin hennar hafa fæðst lifandi nema fimmta og síðasta lambið í vor. 0142 er af Þokukyninu frá Smyrlabjörgum í Suður- sveit en fé af þessum stofni er afburða frjósamt. Erlend- ur Ingvarsson, bóndi í Skarði, segir að ær og hrútar af Þokukyninu hafi verið á fjárbúinu í Skarði í rúm tuttugu ár. Hann getur þess að önnur ær hafi verið með nákvæm- lega sama mynstur og 0142 nema hvað öll lömbin hafi drepist í henni síðasta árið og þá hafi hún algerlega verið búin. „Það sést ekkert á þessari kind, þetta virðist vera henni meðfætt,“ segir Erlendur um 0142. Hann getur þess að kindur af þessu kyni hafi stærri leg en aðrar kindur og því fæddar til að bera mörgum lömbum. Þá verði lömbin iðulega stór og jöfn en ekki litlir grísir með eins og stundum sé hjá þrílembum. Það eigi við 0142. Tvö af lömbum 0142 voru vanin undir einlembur í fyrra og Erlendur segir að hún muni einnig ganga með þremur lömbum í sumar. Um þúsund fjár er í Skarði og nóg að gera. Í gær voru um 150 kindur óbornar. Sauðburðurinn hefur gengið vel enda vorið verið gott og auðvelt að koma fénu á beit. Fjöldi aðstoðarmanna er í sauðburði þannig að fimm eru starfandi að jafnaði, við sauðburð og í fjósi. helgi@mbl.is Nr. 0142 í Skarði fimm- lembd annað árið í röð  Ær af Þokukyni hefur borið fimmtán lömbum á fjórum árum Ljósmynd/Kristinn Ágúst Þórsson Fimmlemba Ærin 0142 með lömbin fjögur sem lifðu. Óhætt er að segja að störfin í átaki velferðarráðuneytisins séu fjölbreytt. T.d. vantar staðarvörð í Klausturstofu á Þingeyrum, Landspítalinn auglýsir eftir aðila til að búa til þrívíddarlíkön af heilum nýbura, Háskólann á Akureyri vantar starfsmann til að vinna efni úr rækjuskel, Listasafn Einars Jónssonar auglýsir eftir starfskrafti til að skrá safnkost- inn, Þjóðskjalasafnið þarf að láta að lesa dómabækur frá 18.-20. öld, Hafró auglýsir starf sem felst í að skoða áhrif makríls á vistkerfi hafsins og Nýsköpunar- miðstöð vantar starfsmann til steinsteypurannsókna. Steypurannsóknir og makríll FJÖLBREYTT STÖRF Í BOÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.