Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 7

Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 E N N E M M / N M 6 2 6 0 5 Sjáðu og heyrðu Turiya eftir Högna Egilsson í miðbænum og á siminn.is/listahatid Síminn fagnar Listahátíð í Reykjavík og gerir öllum kleift að fylgjast með flutningi Högna Egilssonar á tónsmíð sinni Turiya í beinni útsendingu. Verkið verður meðal annars flutt með kirkjuklukkum í miðborginni. Bein útsending frá Tjörninni í Reykjavík hefst kl. 17.30 fimmtudaginn, 22. maí Komdu og fylgstu með flutningi Högna Egilssonar eða njóttu hans í tölvunni eða snjalltækinu á stærsta farsímaneti landsins. ding frá opnunarverki r Reykjavíkur Fyrir tæplega ári varð árekstur á milli tveggja báta í góðu veðri á Breiðafirði og komst rannsóknar- nefnd sjóslysa að þeirri niðurstöðu að áreksturinn mætti rekja „til skorts á varðstöðu um borð í Sæ- rifi“. Í skýrslu rannsóknarnefndar sjó- slysa kemur fram að Fjóla SH hafi verið við veiðar á makríl með hand- færum á Breiðafirði á áttunda tím- anum kvöldið 22. júlí í fyrra. Særif SH hafi verið á siglingu á svipuðum slóðum á sama tíma. Báðir bátarnir hafi verið á siglingu í svipaðri stefnu þegar Fjóla hafi hægt ferð- ina og beygt á stjórnborða í átt að makríltorfu. Særif hafi verið um 400 til 500 metra á eftir Fjólu. „Þegar beygju Fjólu á stjórnborða lauk var færunum rennt og þau hífð einu sinni og þá stöðvaði skipstjóri ferðina. Þegar skipstjóri Fjólu sá engin viðbrögð til stefnubreytingar hjá Særifi þá bakkaði hann til að reyna að forða árekstri,“ segir í skýrslunni. Særif var á 9,5 hnúta siglingu og var stýrt með sjálfstýringunni. Skipstjórinn var að færa inn í afla- dagbókina og sagðist hafa átt í erf- iðleikum með að sjá á tölvuskjáinn. Hann hafi vitað af Fjólu sem hafi virst „sikk-sakka út um allan sjó“. Áreksturinn var þannig að Særif rakst með stefni og bakborðsbóg á veiðarfæri Fjólu og hafnaði síðan á stjórnborðsbóg bátsins. Bátarnir héngu saman á veiðarfærunum þar til þeir voru losaðir í sundur og þeim siglt til Rifshafnar eftir að at- vikið hafði verið tilkynnt. Morgunblaðið/Alfons Særif SH 25 Þetta er 15 tonna yfirbyggður plastbátur smíðaður 2005. Ásigling rakin til skorts á varðstöðu  Árekstur á Breiðafirði í góðu veðri Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Framkvæmdir hér á Borgarfjarðar- brúnni ganga vel og ökumenn eru þol- inmóðir. Við höfum líka stillt þessu dæmi þannig upp að verkinu sé lokið áður en sumarumferðin hefst um 15. júní,“ segir Sigurður Hallur Sigurðsson brúarsmiður. Þessa dagana er unnið að viðgerðum á Borgarfjarðarbrú. Höf brúarinnar eru alls þrettán og hvert þeirra 40 metrar. Síðustu sumur hefur yfirlag brúargólfsins í hverju hafinu á fætur öðru verið brotið upp og ný steypa lögð þar á. Á síðustu tveimur árum hafa sex höf verið tekin svona. Byrjað var vest- anmegin og nú eru menn komnir út á miðja brú. „Á nánast hverju ári síðan 1998 hafa verið teknir áfangar í viðhaldi brúarinnar,“ segir brúarsmiðurinn. Þrjár vikur með hvora rein Sá háttur var hafður á brúarbótum nú að fyrst var syðri akreinin tekin. Framkvæmdum þeim megin lauk í fyrradag og þá var farið á þá nyrðri. Meðan á þessu stendur er umferðinni stýrt, opið er til hvorrar áttar 2 til 3 mínútur í senn. Því er breytt eftir atvik- um, svo sem að síðdegis á föstudögum, þegar margir eru á leiðinni út á land er umferð til vesturs gefinn lengri tími og svo öfugt í eftirmiðdaginn á sunnudög- um. „Við erum um þrjá vikur með hvora rein; fyrst að brjóta gólfið upp og svo leggja sérherta steypu í. Og við höfum svo sem gert þetta áður, þetta eru þrælvanir strákar,“ segir Sigurður Hallur sem er verkstjóri brúarvinnu- flokks Vegagerðarinnar sem gerður er út frá Hvammstanga. Mörg verkefni framundan „Verkefnin framundan eru fjöl- mörg. Þegar þessu lýkur förum við í verkefni í Þingeyjarsýslum og svo þarf að snara upp brúm á Svartá í Skaga- firði og Geitá í Borgarfirði á leiðinni upp að Langjökli,“ segir Sigurður Hallur, sem hefur verið í brúarvinnu frá árinu 1981 og eftir þann tíma sér verkanna víða stað. Bæta brúarhöfin með enn sterkari steypu  Viðgerðir á Borgarfjarðarbrú  Steypt og bætt frá 1998 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmdir Sigurður Hallur Sigurðsson brúarsmiður á vettvangi. Brúar- gólfið er hoggið upp og ný steypa lögð í. Ein akrein opin og umferð stýrt. Mikil umferð » Borgarfjarðarbrúin er önnur lengsta brú landsins, er 520 m. » Að jafnaði fara 3.355 bílar á dag veginn við Hafnarfjall, skammt frá Borgarfjarðarbrú. Gefur það vísbendingu um um- ferðarþunga. Í fyrra fóru flestir bílar þessa leið hinn 3, ágúst, það er um verslunarmanna- helgina, alls 8.361. Bílarnir voru fæstir 5. mars, 304.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.