Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Kjötsúpa hefur lengi þóttsælkeramatur hjá Íslend-ingum þar sem hún sam-einar margt af því besta
úr íslenskum landbúnaði, lambakjöt-
ið og íslenskt grænmeti. Engan ætti
því að undra að kjötsúpan sé reglu-
lega á boðstólum á íslenskum heim-
ilum. Hún er allt í senn góð, holl og
gefur svöngu heimilisfólki kraft og
næringu sem þarf eftir langan vinnu-
eða skóladag.
Kjötsúpan á Skólavörðuholtið
Það liggur í augum uppi að súp-
an sem hefur gefið Íslendingum
magafylli í áratugi ætti að renna ljúf-
lega niður hjá þeim fjölda ferða-
manna sem sækja Ísland heim og
vilja upplifa íslenska menningu og
náttúru. Jónína Gunnarsdóttir, fé-
lagsráðgjafi, var í það minnsta viss í
sinni sök þegar hún ákvað að ráðast í
sinn eigin rekstur með íslensku kjöt-
súpuna í farabroddi. „Nokkrar vin-
konur mínar starfa sem leiðsögu-
menn og höfðu svo oft kvartað undan
því að ekki væri hægt að setjast nið-
ur með ferðamenn og fá sér eitthvað
fljótlegt án þess að rata inn á ham-
borgarastað. Ég taldi því kjörið
tækifæri til að bæta kjötsúpunni við
flóru matarmenningarinnar í og við
miðbæinn,“ segir Jónína sem býður
viðskiptavinum sínum einnig upp á
grænmetissúpu sem hún segir engu
síðri en kjötsúpuna.
Súpubíllinn frá Þýskalandi
Hugmyndin að eigin rekstri
vaknaði fljótlega eftir áramót hjá
Jónínu sem taldi vanta góðan súpu-
stað þar sem væri á boðstólum há-
gæða íslensk kjötsúpa með einföld-
um og fljótlegum hætti. Staður þar
sem viðskiptavinurinn þarf ekki að
setjast inn, panta og bíða heldur er
súpan afgreidd strax á staðnum og
gestir geta borðað hana fyrir framan
bílinn eða tekið með sér heim. „Ég
hef búið erlendis þar sem vagnar
sem þessir eru vinsælir og fólk notar
þetta mikið úti. Ég var því viss um að
þetta myndi ganga hér og vildi bjóða
upp á eitthvað annað en hamborgara
eða pylsur,“ segir Jónína en hún
keypti bílinn í Þýskalandi og fór sjálf
út að sækja hann. „Ég flaug til Hol-
lands og tók lestina til Þýskalands
þar sem bíllinn beið mín. Þá tók við
þriggja tíma akstur í næstu umskip-
unarhöfn og svo fimm daga ferðalag
með Arnarfellinu heim.“
Hráefnið beint frá býli
Ekki er sama hvaða hráefni er
notað í góða matargerð og mikilvægt
fyrir alla matsölustaði að geta boðið
viðskiptavinum sínum upp á besta
hráefnið sem völ er á. Jónína gerir
sér grein fyrir mikilvægi hráefnisins
enda segist hún aðeins nota það
besta. „Ég er búin að semja við
bónda um að fá að kaupa af honum,
beint frá býli, bæði grænmeti og
kjöt. Þá nota ég bara lærið í kjötsúp-
una og hágæða hráefni.“ Súpurnar
Eðalkjötsúpa á
Skólavörðuholti
Farmers Soup er nýopnaður súpubíll sem stendur á bílastæðinu á Skólavörðu-
holti. Það er framtak Jónínu Gunnarsdóttur og sona hennar, þeirra Óskars Steins
Ómarssonar og Ómars Arnar Ómarssonar. Bíllinn var opnaður laugardaginn
10. maí og hefur gengið vel. Þetta er algjör nýjung í íslenskri matarmenningu, því
nú geta þeir sem eiga leið hjá gripið með sér ekta íslenska kjötsúpu á góðu verði.
Afgreiðsla Ómar Örn Ómarsson, sonur Jónínu, og tengdadóttir hennar,
Sigríður Mogensen, afgreiða kjötsúpu úr Súpubílnum snemma eftir opnum.
Viðskipti Félagar úr Víkingafélagi Reykjavíkur fengu sér súpu hjá Jón-
ínu og sonum hennar ásamt svöngum ferðamönnum.
Þegar kemur að ferðalögum setja
margir kostnaðinn fyrir sig. Það á
sérstaklega við þegar ferðast er út
fyrir landsteinana. Yfirleitt kostar
það nokkuð ferðast frá landinu
með flugi og þá á eftir að greiða
fyrir gistingu og jafnvel bíla-
leigubíl. Þegar ferðast á lengri
vegalegndir bætist enn á ferða-
kostnaðinn ef skipta þarf um flug.
Notendum Dohop síðunnar gefst
hins vegar kostur á því að finna
ódýrustu ferðirnar hjá fjölda flug-
félaga um allan heim. Oft má þá
finna sérstaklega hagstæð tilboð á
ferðum og þeim sem þurfa ekki
langan umhugsunarfrest eða lengri
tíma til að undirbúa ferðir gefst
gjarnan færi á að hoppa með
skömmum fyrirvara upp næstu vél
og á vit ævintýranna.
Einnig er hægt að finna ódýr og
góð hótel í flestum borgum heims
og hvar bestu tilboðin eru á bíla-
leigubílum. Þeir sem vilja þjónustu
og mikil gæði og setja verðið ekki
fyrir sig ættu líka að nota síðuna
því hún þjónustar ekki bara þau
okkar sem vilja ferðast ódýrt. Það
er allur skalinn á Dohop.
Vefsíðan www.dohop.is
Fríið Ferðalagið hefst á netinu.
Síðan sem
hjálpar fólki að
ferðast ódýrt
Það er enginn grár og hversdagslegur
veruleiki í verkum Huldu Hlínar
Magnúsdóttur, myndlistarkonu, en
hún hefur litina að meginviðfangs-
efni sínu í sýningu sem hún hefur
sett upp í Eiðisskeri, sýningarsal
bókasafnsins á Seltjarnarnesi. Sýn-
ing Hlínar verður opnuð á morgun,
fimmtudag, klukkan 17.
Hulda Hlín Magnúsdóttir ólst upp í
Kaupmannahöfn, París og Reykjavík
og nam málaralist í Flórens, Fen-
eyjum, Bologna og Róm. Hún útskrif-
aðist í málaralist með hæstu einkunn
og láði frá Listaakademíu Ítalíu í Róm
,Accademia di Belle Arti, og hefur
haldið einka- og samsýningar hér á
landi og á Ítalíu. Hulda Hlín lauk
mastersnámi í listasögu frá Bologna-
háskóla með mastersritgerð á sviði
litafræði og merkingarfræði hins
sjónræna.
Á sýningunni hennar í Eiðistorgi
verður að finna olíumálverk og teikn-
ingar þar sem draumkenndri veröld í
sterkum litum bregður fyrir. Olíu-
málverkin eru flest stór í sniðum og
leiða áhorfandann inn í seiðandi lita-
heim. Sum verkin eru innblásin af, að
því er virðist, íslenskri náttúru en litir
og form breyta þeim í annan og hug-
rænni stað.
Endilega...
...sjáið hugræna litheima Hlínar
Listaverkasýning Hlín er brosmild innan um litadýrðina í verkunum sínum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hollar vörur úr náttúrunni
Íslensk framleiðsla
H-Berg efh | S. 565-6500
hberg@hberg.is | hberg.is