Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 11

Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 11
Bíllinn Súpubíllinn var keyptur í Þýskalandi en allt annað í rekstrinum er ræktað og alið á Íslandi. Hráefnið sem Jónína og synir hennar nota í súpurnar er hágæða hráefni beint frá bónda. hennar hafa fengið góðar viðtökur. Jónína segir uppskriftina vera komna frá langömmu sinni. „Þetta er fjölskylduuppskrift frá Háeyri í Vestmannaeyjum en ég er ættuð þaðan.“ Langamma Jónínu var þekkt fyrir að elda einstaka kjötsúpu sem hún gaf þreyttum og svöngum útigangsmönnum að sögn Jónínu sem heldur á lofti orðstír langömmu sinnar með gómsætri kjötsúpu sem svangir Íslendingar og útlendingar gæða sér á á Skólavörðuholtinu. Synirnir og tengdadóttir hjálpa við reksturinn Jónína stendur ekki ein í rekstri Súpubílsins sem nefnist Farmers Soup eða bændasúpan á íslensku. Synir hennar, þeir Óskar Steinn Ómarsson og Ómar Örn Ómarsson, reka bílinn með mömmu sinni og auðvitað stendur tengdadóttirin Sig- ríður Mogensen vaktina við pottana. „Ég fór út í þetta með strákunum mínum en þeir eru báðir að vinna annars staðar en hjálpa til þegar þeir geta.“ Fjölskyldan hjálpast því að og má því segja að Súpubílinn sé fjölskyldubíll. Umhverfið verður ekki útundan hjá Súpubílnum því þeir sem koma með eigin ílát að heiman fá 10% af- slátt á súpunum hjá Jónínu en hún segir þetta vera gert til þess að spara umbúðanotkun og þannig geti fólk stuðlað að bættu umhverfi. Bíllinn var opnaður 10. maí og hefur gengið vonum framar að sögn Jónínu. „Salan er misjöfn milli daga en viðbrögðin hafa verið betri en ég bjóst við. Bæði eru að koma til mín svangir útlendingar sem langar að prófa íslensku kjötsúpuna en líka Ís- lendingar sem langar í eitthvað gott og nærandi.“ Súpubíll Jónínu og sona hennar stendur við bílastæðið á Skólavörðu- holti og er opinn frá kl. 11.30 til 19.00 á kvöldin. Jónína segir þó stundum opið lengur ef mikið sé að gera. „Þetta er rétt að byrja og ég er að fikra mig áfram með afgreiðslutím- ann.“ Stofnandinn Jónína Gunnarsdóttir stendur vaktina við pottana í Súpu- bílnum á Skólavörðuholti en hún selur þar súpur frá hádegi fram á kvöld. „Ég er búin að semja við bónda um að fá að kaupa af honum, beint frá býli, bæði grænmeti og kjöt. Þá nota ég bara lærið í kjötsúpuna og hágæða hráefni.“ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Á fimmta þúsund leik- og grunnskóla- barna í Kópavogi taka þátt í barna- menningarhátíð Kópavogs, Orma- dögum, sem hófst síðast liðinn mánudag. Á Ormadögum mæta börn í Kópavogi á ýmsa menningarviðburði í menningarhúsum Kópavogs á skóla- tíma, sækja tónleika, listasmiðjur og fræðslu. Dagskránni lýkur svo með glæsilegri hátíð á Borgarholtinu í Kópavogi helgina 24. til 25. maí þar sem öll börn eru velkomin Á laugardeginum verður margt á seyði í og við menningarstofnanir í Kópavogi. Í boði verða Sirkus, lista- og menningarsmiðjur, tónleikar og hoppkastalar. Oramadögum lýkur svo á sunnudaginn með barnamenningar- messu og tónleikum í Kópavogs- kirkju. Síðan verður auðvitað farið í sundlaugarpartí í Sundlaug Kópa- vogs. Markmið Ormadaga er að börn í Kópavoginum fái tækifæri til að kynn- ast menningarstofnunum bæjarins eins og tónlistarsafninu, bókasafn- inu, Salnum, Gerðarsafni, Náttúru- fræðistofu Kópavogs, Tónlistar- skólanum og Molanum. Hægt er að nálgast upplýsingar um hátíðina á heimasíðu hennar, www.ormadagar.is. Börnin fá tækifæri til að kynnast menningarstofnunum Kópavogs List og sund- laugarpartí í Kópavogi Morgunblaðið/Árni Sæberg Kópavogur Barnahátíðin Ormadagar fara fram í Kópavogi núna um helgina. Diplómanám og skýjaforritun Til að mæta mikilli eftirspurn eftir forriturum sem hafa kunnáttu í fram- og bakendaforritun fyrir skýjalausnir höfum við þróað nýja námsbraut sem byrjar í haust. Námið býr nemendur undir alþjóðleg próf. Hægt er að taka námsbrautina með vinnu þar sem um kvöld- og helgarnám er að ræða. Helstu námsgreinar Fyrri önn: Kynning á forritun - 36 stundir Viðmótshönnun - 12 stundir Gagnagrunnsfræði - 36 stundir Forritun með C# - 66 stundir Gluggaforritun / APP-forritun - 60 stundir Gagnagrunnsforritun - 36 stundir Lokaverkefni - 36 stundir Seinni önn: Bakendaforritun skýjalausna - 44 stundir Framendaforritun skýjalausna - 60 stundir Lokaverkefni - 20 stundir Lengd námskeiðs: 2 annir - 406 kennslustundir - kennt þrisvar í viku Verð: 599.000 kr. (allt innif.) - hægt er að dreifa greiðslum Næsta námskeið: Kvöldnámskeið hefst 1. sept. og lýkur 28. maí 2015 FORRITUNAR- BRAUT NTV

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.