Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
forsteyptar
einingar
BM Vallá • Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík • Sími: 412 5050 • sala@bmvalla.is
· Sterk, falleg og hagkvæm
· Endalausir möguleikar
Fljótlegur og hentugur kostur fyrir öll svið
atvinnulífsins, heimilið og bústaðinn.
Lækkar viðhalds- og rekstrarkostnað.
PI
PA
R\
TB
W
A
·S
ÍA
·1
41
47
7
Smellinn einingahús
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ráðist verður í framkvæmdir við nýtt
móttökuhús við Skógasafn í Rangár-
vallasýslu á næstunni. Rekstur safns-
ins gengur vel og það skilar hagnaði á
hverju ári og honum er varið til upp-
byggingar.
Skógasafn er í húsum sem byggð
voru 1955 og 1995. Þau eru tengd sam-
an með skúrbyggingu við gamla safn-
húsið og glerhýsi. Skúrinn mun víkja
og nýtt móttökuhús rísa í portinu og
skaga um tíu metra fram á hlaðið. Þar
verður tekið á móti hópum sem dreif-
ast síðan um safnhúsin og útisvæðið.
Um leið verður gamla safnhúsið
tekið í gegn að utan og útlit húsanna
samræmt, að sögn Sverris Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra Skóga-
safns. Nýbyggingin verður að mestu
úr gleri en þó verður torfþak með
lyngi á hluta þaksins og einnig á þaki
gamla safnhússins.
Hagnaður til uppbyggingar
Móttökuhúsið verður 144 fermetrar
að stærð og er kostnaður við að byggja
það og breyta gamla safnhúsinu áætl-
aður um 75 milljónir kr.
Rekstur Skógasafns gengur vel.
Hann hefur skilað hagnaði í mörg ár
og er rekstrarafgangurinn notaður í
uppbyggingu. Gestum hefur fjölgað
stöðugt. Um 62 þúsund gestir heim-
sóttu safnið á síðasta ári, 10 þúsund
fleiri en árið á undan. „Reksturinn
sýnir að það er hægt að markaðssetja
menninguna. Hún getur skilað arði í
beinhörðum peningum, auk annars,“
segir Sverrir.
Hann segir að lengi hafi verið þörf
á að byggja móttökuhús. Því hafi ver-
ið frestað við bankahrunið og í staðinn
ráðist í byggingu geymslu- og verk-
stæðishúss sem hægt var að dreifa á
fjögur ár. Framkvæmdir við mót-
tökuhúsið hafa mikið rask í för með
sér og þurfa þær að vinnast á stuttum
tíma. Því hefur Skógasafn óskað eftir
heimildum eigenda sinna, Héraðs-
nefndar Rangárvallasýslu og Vestur-
Skaftafellssýslu og sveitarfélanna
fimm, til að taka lán hjá Lánasjóði
sveitarfélaga fyrir framkvæmdinni og
endurfjármagna um leið lán sem hvíla
á samgöngusafninu. Sverrir segir að
safnið muni sjálft greiða þessi lán.
Áætlað er að framkvæmdir taki eitt
ár.
Ljósmynd/Gísli Sigurðsson
Skógasafn Skúrbyggingin á milli eldra og yngra safnhússins verður rifin og í staðinn byggt nýtt móttökuhús.
Eldra húsið var að hluta byggt utan um áttæringinn Pétursey sem enn er einn af vinsælustu gripum safnsins.
Ný móttaka á Skógum
Skógasafn bætir aðstöðu til að taka á móti gestum
Öll uppbygging greidd með afgangi af rekstri safnsins
Teikning/Argos
Móttaka Tekið verður á móti hópum í nýja húsinu. Fólkið dreifist þaðan um
safnhúsin og útisvæðið. Gamla safnhúsið verður einnig tekið í gegn.
Gestum fjölgar
» Auk byggðasafns er Skóga-
safn með samgönguminjasafn
og stórt útisýningarsvæði.
» Gestum Skógasafns hefur
fjölgað um 20% á ári í mörg ár.
» Á síðasta ári komu 62 þús-
und gestir í safnið, 10 þúsund
fleiri en árið á undan.
» Reksturinn hefur lengi verið
sjálfbær og þarf ekki á rekstr-
arstyrk að halda frá ríki og
sveitarfélögum.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Páll Rósinkranz tekur þátt í stór-
tónleikum í Norðurlandahúsinu í
Þórshöfn í Færeyjum 3. ágúst næst-
komandi. Ásamt honum koma fram
bandarísku hjónin Vonnie og Woddy
Wright, sem eru þekktir flytjendur
sveitatónlistar, og færeyska söng-
konan Kristina Bærendsen. Hljóm-
sveit undir stjórn Jakups Zach-
ariassen annast undirleik.
„Ég fékk beiðni um að koma og
syngja tólf lög,“ sagði Páll. „Þeir
kalla þetta „gospel country“ tón-
leika. Ég fékk sendan lista með
nokkuð mörgum óskalögum. Þetta
eru lög af plötunum mínum og lög
sem ég hafði heyrt hjá þeim og litist
vel á. Ég tek til dæmis lag af nýrri
plötu með Johnny Cash, Liljuna og
fleiri lög. Færeysku tónlistarmenn-
irnir eru góðir vinir Kris Krist-
offerson og ég syng eitt af lögunum
hans. Svo báðu þeir mig að syngja
færeyskt lag við íslenskan texta og
einhver á ég að velja til viðbótar.“
Páll söng fyrst í Færeyjum 1997
og hélt þá tónleika í Norðurlanda-
húsinu með Christ Gospel Band. Svo
var honum boðið til Færeyja af sér-
stöku tilefni fyrir tveimur mánuðum.
Gullbrúðkaup í Þórshöfn
„Ég söng á Hátíð vonar. Þar var
fólk frá Færeyjum sem líkaði söngur
minn. Það vildi fá mig til að syngja
við gullbrúðkaup sitt í Þórshöfn. Það
var mikil veisla, 400-500 manns sem
komu víða að. Þarna voru margir
stjórnmálamenn frá Norðurlöndum.
Það voru haldnar ræður og margir
sungu. Allir töluðu sitt móðurmál.
Ég kom nokkrum sinnum fram og
talaði bara á íslensku! Þetta var
mjög norrænt,“ sagði Páll.
Fyrrnefndur Jakup Zachariassen
hélt utan um tónlistina í veislunni.
Hann er atvinnutónlistarmaður og á
stórt hljóðver í Færeyjum, semur
mikið af tónlist og stjórnar upp-
tökum. Zachariassen hefur m.a.
unnið með færeyska sveitasöngv-
aranum Halli Joensen og samdi
mörg laga og texta á plötunni Hallur
With Stars and Legends þar sem
Hallur syngur með þekktum banda-
rískum sveitasöngvurum. Jakup hef-
ur lengi átt gott samstarf við tónlist-
armenn í Nashville, háborg
sveitatónlistar, sem spila í upp-
tökum hans. Zachariassen leikur
sjálfur á fjölda hljóðfæra og þykir
mjög góður stálgítarleikari. En hvað
finnst Páli um tónlist þeirra Fær-
eyinga á sviði sveita- og gospel-
tónlistar?
„Ég held að þetta sé mjög hár
standard. Þeir virðast vera miklir
kántríboltar og kántrí er mjög
sterkt í Færeyjum,“ sagði Páll.
„Færeyingar eru skemmtilegt fólk.
Manni líður eins og heima hjá sér
þegar maður kemur þangað. Það er
virkilega gaman að heimsækja Fær-
eyjar. Þar tala allir næstum því ís-
lensku!“
Færeyingar eru
„kántríboltar“
Páll Rósinkranz á stórtónleikum þar
sem sveitatónlistin verður í fyrirrúmi
Morgunblaðið/Golli
Söngvarinn Páll Rósinkranz kann vel að meta Færeyjar. Hann segir Fær-
eyinga mjög góða í að flytja sveitatónlist sem sé mjög vinsæl í Færeyjum.