Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 17

Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 17
meðal háskólamenntaðra kjósenda en nemur meðalfylgi hans. Vilja 12% úr þessum hópi hann sem borgarstjóra, en 67% vilja Dag. 28% þeirra sem kusu Sjálfstæð- isflokkinn í síðustu borgarstjjórn- arkosningum vilja Dag sem borg- arstjóra. Sama er að segja um fimmtung þeirra sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn til þings. Gamalt embætti Fráfarandi borgarstjóri, Jón Gnarr, er hinn 21. í rúmlega hund- rað ára sögu embættisins. Dagur B. Eggertsson, sem líklega verður arf- taki hans, gegndi embætti borgar- stjóra í nokkra mánuði 2007 til 2008. Fyrsti borgarstjóri Reykvík- inga var Páll Einarsson. Hann gegndi embættinu frá 1908 til 1914. Enginn hefur setið jafnlengi á stól borgarstjóra og arftaki Páls, Knud Zimsen. Hann var borgarstjóri í 18 ár, til 1932. Tveir hafa verið borg- arstjórar í þrjú kjörtímabil, Gunnar Thoroddsen frá 1947 til 1959 og Geir Hallgrímsson frá 1959 til 1972. Æðsta embættið Borgarstjórinn í Reykjavík er æðsti yfirmaður starfsmanna Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri er ráðinn af borgarstjórn og getur verið borgarfulltrúi. Sé hann borg- arfulltrúi hefur hann skyldur sem slíkur einnig. Borgarstjóri gegnir þremur meginhlutverkum. Hann er framkvæmdastjóri Reykjavíkur- borgar, opinber fulltrúi Reykjavík- urborgar og pólitískur leiðtogi meirihlutans. Borgarstjóri hefur rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með málfrelsi og tillögurétt. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna borgarinnar, lántök- ur og aðrar skuldbindingar eða ráð- stafanir sem samþykki borgar- stjórnar þarf til. Tólf ár í borgarstjórn Dagur B. Eggertsson var fyrst kjörinn í borgarstjórn fyrir tólf ár- um, vorið 2002, þá sem fulltrúi Reykjavíkurlistans. Hann er 41 árs gamall, fæddur í Osló 19. júní 1972. Hann ólst upp í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jóns- dóttur lífefnafræðings. Maki Dags er Arna Dögg Einarsdóttir læknir á Landspítalanum – háskóla- sjúkrahúsi. Morgunblaðið/Golli Borgarstjórar Eftir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 2010 tóku Besti flokkurinn og Samfylkingin upp meirihlutasamstarf. Þá var þessi mynd tekin af oddvitunum, Jóni Gnarr sem varð borgarstjóri og Degi B. Eggertssyni sem varð formaður borgarráðs. Jón Gnarr lætur af embætti í næsta mánuði. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylk- ingarinnar, nýtur yfirburðafylgis í embætti borgarstjóra í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið. Sögðust 63% þátttakenda sem afstöðu tóku vilja hann sem borgarstjóra. Halldór Halldórs- son, oddviti sjálfstæðismanna, nýtur fylgis um 19% kjósenda. Persónufylgi Dags er mun meira en fylgi Samfylkingarinnar sem þó hefur aukist verulega að undanförnu og var 34% í könnun sem birt var í gær. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 jafnt eftir sveitarfélögum. Í þeim stærstu er greidd er föst upphæð á mánuði. Mánaðarlegar greiðslur eru í einu tilviki 100-124 þús.kr., í tveimur tilvikum 150-174 þús.kr. og í einu tilviki, Reykjavík, meira en 200 þús.kr. á mánuði. Greiðslurnar eru mun lægri í litlum sveitar- félögum og yfirleitt er þar greitt fyrir hvern fund sem setinn er. Morgunblaðið/Ómar Sveitarfélög Sveitarstjórnarmenn þungt hugsi á fjármálaráðstefnu Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Þeir glíma við fjölbreytt viðfangsefni, Við hátíðleg tækifæri ber borgar- stjórinn í Reykjavík sérstaka emb- ættiskeðju. Þetta er þó ekki gamall siður. Hugmyndin kviknaði í tengslum við aldarafmæli Iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík fyrir tæplega hálfri öld. Fékk félagið Leif Kaldal gullsmið til að smíða slíka keðju og afhenti formaður fé- lagsins, Ingólfur Finnbogason, Geir Hallgrímssyni borgarstjóra gjöfina á afmælisdegi félagsins 6. febrúar 1967. Myndin hér að ofan er tekin við það tækifæri. Borgarstjórakeðjan er vönduð smíð. Hún er skreytt táknum á hringlaga skjöldum fyrir tíu þætti borgarlífsins auk skjaldarmerkis Reykjavíkurborgar. Táknin eru þessi. Tannhjól og hamar fyrir iðju og iðnað, vængjuð húfa Merkúrs fyrir verslun, haki og skófla fyrir verkamannavinnu, seglbátur fyrir sjósókn, ax og páll fyrir jarðyrkju, ugla fyrir bókmenntir, grímur harms og gleði fyrir leiklist, stafur og slanga fyrir læknavísindi, vog fyrir lögspeki og kaleikur fyrir trúarbrögð. gudmundur@mbl.is Keðja borg- arstjóra er frá 1967 Embætti Borgarstjóri tekur við embættiskeðjunni að gjöf árið 1967

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.