Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Erlendir kröfuhafar föllnu bankanna hafa notið þess „aðstöðumunar“ að hafa haft betra tækifæri en aðrir að ná til sín takmörkuðum erlendum gjaldeyri þjóðarbúsins. Hann birtist meðal annars í því að slitabúin eru undanþegin skilaskyldu gjaldeyris. Þetta kom fram í máli Heiðars Más Guðjónssonar, hagfræðings og fjárfestis, en hann var einn fram- sögumanna á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær, þar sem rætt var um losun fjármagnshafta og hvaða leið væri skynsamlegast að fara við uppgjör slitabúa bankanna. Heiðar benti á að oft væri haldið á lofti „missögnum“ sem væru til þess fallnar að „rugla“ umræðuna. Þann- ig væri því stundum haldið fram að það jafngilti „eignaupptöku“ að veita ekki búunum heimild til að greiða út gjaldeyriseignir til kröfuhafa. „Af- nám sérréttinda er hins vegar ekki eignaupptaka,“ sagði Heiðar. Hann telur að það blasi við að slit- astjórnirnar þurfi að óska eftir gjaldþroti í stað þess að ljúka upp- gjöri búanna með nauðasamningi – en þannig sé tryggt að allir njóti jafnræðis undir fjármagnshöftum. Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfest- ir og gjaldkeri Samfylkingarinnar, sagðist í erindi sínu óttast að gjald- þrotaleiðin svonefnda, eða „Kjarn- orkukosturinn“ líkt og hann kaus að kalla hana, hefði ýmsar ófyrirséðar afleiðingar í för með sér, þar sem kröfuhafar myndu fara fram á kyrr- setningu erlendra eigna slitabúanna ef flytja ætti þær til Íslands og skipta í krónur. Eiríkur Svavarsson hæstaréttar- lögmaður sagði í pallborðsumræðum að það þyrfti að nálgast þau mál er vörðuðu slitabúin og losun hafta með heildarlausn í huga – ekki aðeins fyr- ir kröfuhafa heldur með hagsmuni íslenska þjóðarbúsins að leiðarljósi. Það gæti ekki verið skynsamlegt út frá áhættusjónarmiðum að ráðast í afnám hafta og „hengja áhættuna“ alfarið á íslenskan almenning. Stjórnvöld hafa ekki skoðun Á fundinum var rætt talsvert um hvaða afleiðingar það kynni að hafa fyrir trúverðugleika Íslands í hinum alþjóðlega fjármálaheimi ef búin væru tekin til gjaldþrotaskipta. Ei- ríkur, sem átti jafnframt sæti í ráð- gjafahópi stjórnvalda um afnám hafta, sagði aðspurður að íslensk gjaldþrotalöggjöf hefði verið nánast óbreytt í áratugi. Hann gæti því ekki séð „að það skaði trúverðugleika Ís- lands að fara að lögum landsins“. Það lægi fyrir að samkvæmt lögum og dómi Hæstaréttar sl. september að kröfuhafar ættu aðeins kröfur í krónum á slitabúin. Á meðan ekki hefði átt sér stað framsal á eignum búanna, sem væru íslenskir lögaðil- ar, til kröfuhafa væri ekki hægt að halda því fram að þeir ættu réttmæt- ar væntingar til greiðslu í gjaldeyri. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri eignastýringar MP banka, rifjaði upp að það hefðu verið ríkir hagsmunir fyrir því að höftun- um var komið á á sínum tíma – og sá „íþyngjandi fortíðarvandi“ væri enn til staðar. Á meðan hann væri enn óleystur þyrftu allar undanþágu- beiðnir frá höftum að taka tillit til áhrifa þess fyrir allt þjóðarbúið ef tilteknum aðilum væri hleypt undan höftum. Sigurður sagði jafnframt að það væri ekki hlutverk stjórnvalda að hafa sérstaka skoðun á því hvor leiðin yrði farin við uppgjör búanna – nauðasamningar eða gjaldþrot. Það gæti þó orðið sú atburðarás að ekki tækist að ljúka nauðasamningum og þá þyrftu stjórnvöld að vera tilbúin að vinna út frá þeirri stöðu. Samtals nema eignir föllnu bank- anna ríflega 2.500 milljörðum króna og þar af eru um tveir þriðju í er- lendum gjaldeyri. Tilraunir slit- astjórna Glitnis og Kaupþings til að ljúka uppgjöri með nauðasamning- um og í kjölfarið útgreiðslu gjaldeyr- is til kröfuhafa hafa ekki gengið eft- ir. Ekki hefur fengist undanþága frá höftum frá Seðlabankanum. Áhættan verði ekki hengd á Ísland  Hæstaréttarlögmaður segir að það skaði „ekki trúverðugleika Íslands að fara að lögum“ við uppgjör slitabúa  Takist ekki nauðasamningar þurfa stjórnvöld að vera tilbúin að vinna út frá þeirri stöðu Pallborð Sigurður, Eiríkur, Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahags- sviðs Samtaka atvinnulífsins, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Morgunblaðið/Þórður Afnám hafta og slitabú » Heiðar Már segir kröfuhafa hafa notið þess að búa við „að- stöðumun“ sem hefur veitt þeim betra tækifæri að ná til sín gjaldeyri þjóðarbúsins. » Sigurður Hannesson segir stjórnvöld ekki þurfa að hafa sérstaka skoðun á leiðum við uppgjör búanna. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Gengi Icelandair Group hefur lækkað um 12% á þremur mánuðum, þar af 4% í gær, en félagið á í harðri kjara- deilu við um 40% starfsmanna sinna, samkvæmt samantekt Arion banka. Starfsmennirnir hafa gripið til verk- fallsaðgerða og yfirvinnubanns sem raskað hefur flugáætlun við upphaf ferðamannatímabilsins og kostað fé- lagið fjármuni. Sérfræðingur segir við Morgunblaðið að „óvissan í kringum Icelandair heldur markaðnum í gísl- ingu“ enda hafi alla jafna verið mest velta með bréf fyrirtækisins. Úrvals- vísitalan hefur lækkað um 7% á sama tíma. Hafa ber í huga að Icelandair Gro- up greiddi 2,15 milljarða króna í arð til hluthafa sem leiddi til lítils háttar gengislækkunar sökum rýrnunar á eigin fé. Aftur á móti hafa bréf Ice- landair hækkað mikið á undanförnum árum og langtíma fjárfestar hafa því hagnast vel, líkt og sjá má á meðfylgj- andi töflu. Lífeyrissjóðir eru áberandi í hluthafahópi Icelandir Group. Þeir sem hafa selt bréf sín núna gætu því hafa kosið að innleysa ágætan hagnað. Hátt í 90 ferðir felldar niður Fram kom í Morgunblaðinu í gær að hátt í 90 flugferðir hefðu verið felldar niður hjá Icelandair vegna verkfallsaðgerða flugmanna og herma heimildir blaðsins að hætta sé á að 100 ferðir í viðbót falli niður fyrir áramót. Flugmenn samþykktu verkfallsað- gerðir í lok apríl og hófst fyrsta tíma- bundna verkfallið 9. maí. Samkvæmt útreikningum Arion banka, sem sendir voru til viðskipta- vina í liðinni viku, er ósamið við rúm- lega 1.100 starfsmenn Icelandair. Þar af 330 flugmenn, tæplega 500 flug- freyjur (í færri stöðugildum) og um 300 flugvirkja. „Alls eru þetta um 40% starfsmanna félagsins sem ósamið er við, en að okkar mati má gera ráð fyrir að yfir helmingur alls launakostnaðar félagsins tilheyri þessum starfsstétt- um. Samanber að 92 af 100 launa- hæstu starfsmönnum Icelandair eru flugmenn. Heildarkostnaður launa og launatengdra gjalda nam tæplega 240 milljónum dollara á síðasta ári eða 27% af heildarkostnaði félagsins,“ segir í bréfi Arion banka. Stjórnendur Icelandair hafa til- kynnt að ekki sé hægt að segja til um hversu mikil áhrif aðgerðirnar hafa fyrr en þær séu yfirstaðnar. Hinn 6. maí var upplýst að áætlað tap Ice- landair Group vegna boðaðs verkfalls Félags íslenskra atvinnuflugmanna næmi um 13-15 milljónum dollara eða um 1,5-1,7 milljörðum króna, ef verk- fallið varaði allan þann tíma sem það hefði verið boðað. Hinn 11. maí var aftur á móti tilkynnt að verkfall, yf- irvinnubann og aðrar aðgerðir flug- manna hefðu leitt til þess að aflýsa hefði þurft fleiri flugferðum en gert hefði verið ráð fyrir. Héldu aðgerð- irnar áfram mundu þær því hafa verri áhrif á afkomu Icelandair Group en áður hefði verið greint frá. Lög voru sett á verkfall flugmanna 15. maí en yfirvinnubann stendur enn. Rétt er að taka fram að í ofan- greindri fjárhæð eru áætlaðar tapað- ar tekjur að frádregnum sparnaði vegna niðurfelldra flugferða auk beins áætlaðs kostnaðar vegna að- stoðar við farþega. Í fjárhæðinni eru hvorki hugsanleg áhrif yfirvinnu- banns né áhrif verkfallsins á bókanir og tekjur félagsins á þeim dögum sem verkfallið stendur ekki yfir. Jafn- framt er ekki tekið tillit til hugsan- legra langtímaáhrifa verkfallsins á Icelandair Group og Ísland almennt sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Kjaradeila bítur í gengi Icelandair  Gengi Icelandair hefur hækkað mikið á nokkrum árum Gengisþróun Icelandair Group 2011 2012 2013 2014 2011: +60% 2013: +118% 2012: +61% Frá áramótum: -10% Tólf mánuðir: +30% Síðustu þrír mánuðir: -12% Einn mánuður: -7% Hluthafar » Lífeyrissjóður verslunar- manna er stærsti hluthafi Ice- landair Group með 15%. » Hlutabréfasjóðurinn Stefnir ÍS-15 er næststærstur með 11% hlut. » Lífeyrissjóður starfsm. ríkis- ins, A-deild, á 7% hlut. Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð K 2.21 110 bör max 360 ltr/klst K 4.200 130 bör max 450 ltr/klst K 7.700/K 7.710 160 bör max 600 ltr/klst K 5.700 140 bör max 460 ltr/klst Háþrýstidælur Þegar gerðar eru hámarkskröfur T 400 Snúningsdiskur Fyrir pallinn, stéttina o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.