Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
STUTTAR FRÉTTIR
● Hampidjan USA, sem er í eigu Hamp-
iðjunnar, hefur keypt 65% hlut í neta-
verkstæðinu Swan Net L.L.C í Seattle í
Bandaríkjunum fyrir 2,3 milljónir doll-
ara eða 260 milljónir króna.
Þrír stofnendur ásamt einum smærri
meðeiganda hafa verið eigendur Swan
Net frá stofnun þess 1995 og keypti
Hampiðjan hlut tveggja þeirra í sam-
ráði við þriðja aðaleigandann og fram-
kvæmdastjórann, Seamus Melly, segir í
tilkynningu. Hann mun áfram eiga sinn
upprunalega hlut sem er 32,5%. Kaup-
verðið hefur verið greitt að fullu.
Swan Net þjónar aðallega uppsjávar-
flotanum sem gerður er út frá Seattle
og Dutch Harbor í Alaska og veiðir með-
al annars alaskaufsa.
Hampiðjan kaupir félag
í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Golli
Starfsmenn Hampiðjunnar í Reykjavík
önnum kafnir við vinnu.
● Á ársfundi Sam-
taka álframleið-
enda á Íslandi,
Samáls, var skrifað
undir viljayfirlýs-
ingu um stofnun á
rannsóknasetri um
ál og efnisvísindi.
Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðn-
aðar- og við-
skiptaráðherra, og
fulltrúar Háskólans í Reykjavík, Háskóla
Íslands, Nýsköpunarmiðstöðvar og
Samáls undirrituðu samninginn, segir í
frétt mbl.is.
Fyrir hvert eitt starf í álveri verður til
eitt og hálft starf annars staðar í hag-
kerfinu að sögn Ragnheiðar. Hún vill sjá
þetta hlutfall hækka á næstunni og
sagði alla virðiskeðju álsins vera þar
undir.
Stofna rannsóknasetur
um ál og efnisvísindi
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
!
"#
#"$
!
#!
%#
!!
#%
!#$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$"
"
%$
$"
# !
%
#"%!
!"
%#
$%
"
%#$
$!
# !
%"%
"
##
!"!
!$"$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is
HEIMILISTÆKJADAGAR Í
20% afsláttur
Stefna skal að því að afnema ríkis-
ábyrgð á skuldbindingum Lands-
virkjunar og liður í því gæti verið sala
á hluta fyrirtækisins. Þetta kom fram
í máli Bjarna Benediktssonar, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, á árs-
fundi Landsvirkjunar í gær.
„Það er mikilvægt að Landsvirkjun
standi til boða alþjóðlega samkeppn-
ishæf kjör án ríkisábyrgðar, “ sagði
Bjarni í ræðu sinni, „og að lokum
hljótum við að stefna að því að afnema
ríkisábyrgðina.“ Liður í að hraða því
ferli væri hugsanlega að fá meðeig-
endur að félaginu. „Í því sambandi
mætti hugsa sér að Landsvirkjun
gæti verið ákjósanleg eign fyrir líf-
eyrissjóði til lengri tíma í dreifðu
eignasafni,“ sagði ráðherrann.
Í ræðunni benti fjármálaráðherra
jafnframt á mikilvægi þess að Lands-
virkjun þjónustaði fjölbreyttari starf-
semi og dreifði með því áhættunni í
rekstrinum.
Ráðherra vill skoða sölu
á hluta Landsvirkjunar
Morgunblaðið/Ómar
Ársfundur Fjármálaráðherra vill
afnema ríkisábyrgð Landsvirkjunar.
Þrír bankar, Credit Agricole, HSBC
og JPMorgan, hafa verið sakaðir
um að hafa haft ólögleg áhrif á
millibankavexti í evrum, Euriobor-
vexti.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins greindi frá því í gær að
rannsókn á málinu benti til þess að
bankarnir hefðu brotið samkeppn-
islög „með því að sammælast um að
hafa áhrif á verðlagningu á vaxtaaf-
leiðum í evrum,“ eins og það er orð-
að. Það hafi verið gert „með það að
markmiði að brengla eðlilegt verð-
lagningarferli á vaxtaafleiðum í
evrum.“
HSCB og JPMorgan svörðuð því
strax til að bankarnir hygðust verj-
ast ásökunum af fullum krafti, á
meðan Credit Agricole kvaðst
þurfa að kynna sér málið betur. Í
desember sektaði Evrópusam-
bandið sex banka um 1,7 milljarða
evra, 263 milljarða króna, fyrir
hlutdeild í að eiga við verðlagningu
vaxta með óeðlilegum hætti.
Þrír bankar sakaðir um
að brengla Euribor-vexti