Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Frans páfi hefur fengið óvenjulegt
bréf frá 26 ítölskum konum sem
segjast vera núverandi eða fyrrver-
andi ástmeyjar presta eða munka
sem þær elska og vilja fá að njóta
ásta með. Þær biðja páfa um að beita
sér fyrir því að loforð nær allra
vígðra manna innan kaþólsku kirkj-
unnar um einlífi verði afnumið.
Einlífið var lögfest innan kirkj-
unnar fyrir tæpum þúsund árum,
opinberlega var markmiðið m.a. að
tryggja að prestar einbeittu sér að
köllun sinni, boðun trúarinnar en
ekki jarðbundnari málum.
Konurnar 26 segjast hafa náð
saman með aðstoð samskiptamiðla
og eru þær sannfærðar um að mun
fleiri konur séu í sömu stöðu. Þær
undirrita bréfið að sögn La Stampa
með fornafni sínu og fyrsta bókstaf í
eftirnafninu, nefna einnig heima-
byggð sína. Blaðið segir hins vegar
að utan á umslaginu hafi þær gefið
upp full eftirnöfn sín og símanúmer.
„Við elskum þessa menn og þeir
elska okkur,“ segir í bréfinu. „Í flest-
um tilfellum er ekki hægt að gefa
upp á bátinn samband sem er svo
tryggt og fagurt, jafnvel þótt fólk
leggi sig fram við að hætta. Því mið-
ur fylgir þessu allur sársaukinn í
kjölfar þess að geta ekki lifað fullu
og eðlilegu lífi.“
Einlífið er ekki jafnmikil grund-
vallarhefð og margt annað í kenn-
ingum kirkjunnar og því auðveldara
að afnema það. Frans páfi hefur á
stuttum valdaferli sínum vakið at-
hygli fyrir að setja spurningarmerki
við ýmislegt í stefnu Páfagarðs, ekki
síst varðandi neikvæða afstöðu til
samkynhneigðar. Hann hefur einnig
lýst sig reiðubúinn að ræða einlífið.
Þess má geta að nú geta prestar
ensku biskupakirkjunnar gerst kaþ-
ólskir og séu þeir giftir fyrir lifa þeir
áfram í hjónabandi. kjon@mbl.is
Frans páfi láti af-
nema einlífisheitið
Vígðir menn í kirkjunni eru ókvæntir
AFP
Málin rædd Kaþólskir biskupar á ráðstefnu í Páfagarði um sl. helgi. Purp-
urarauð kollhúfan er eitt af embættistáknum þeirra.
Elska prest eða munk og biðja páfa um hjálp
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Yfirmaður hersins í Taílandi, Pra-
yuth Chan-Ocha, gaf í gær skipun
um herlög í landinu en ekki er ljóst
hvort næsta skref verður að herinn
taki völdin eins og hann hefur oft
gert. Forn lög gera hernum kleift að
hrifsa völdin ef hætta blasir við. Her-
inn hvatti um leið deiluaðila í landinu
til að hefja viðræður en tugir manna
hafa fallið í átökum þeirra síðustu
mánuði.
Fjöldi hermanna kom sér fyrir á
mikilvægum stöðum eins og sjón-
varpsstöðvum, fréttir eru nú ritskoð-
aðar og herbílar á ferðinni í miðborg
Bangkok. For-
sætisráðherra
landsins til bráða-
birgða, Niwatt-
umrong Boon-
songpaisan, sem
tók við þegar
Yingluck Shina-
watra var nýlega
sett af, boðaði í
gær þingkosning-
ar 3. ágúst.
Stjórnarandstaðan hefur staðið
fyrir hörðum fjöldamótmælum og
krafist þess að stjórnin segði af sér
en í staðinn tæki einhvers konar
þjóðarráð við. Rauðskyrturnar, liðs-
menn Shinawatra, hafa hótað borg-
arastyrjöld ef leiðtogar sem ekki
hafa verið kjörnir taki við.
Vandi andstæðinga stjórnvalda og
Shinawatra er að flokkur hennar
hennar hreppti hreinan meirihluta í
síðustu kosningum og hefur því lýð-
ræðislegt umboð. Flokkurinn hefur
einkum fylgi meðal fátækra kjós-
enda úti á landsbyggðnni en and-
stæðingarnir í höfuðborginni Bang-
kok. Hinir síðarnefndu njóta
stuðnings hefðbundinna valdastofn-
ana, konungs og hæstaréttar en
einnig margra velefnaðra Taílend-
inga. Shinawatra var sökuð um að
hafa misnotað vald sitt í tengslum við
afar vinsælar niðurgreiðslur á hrís-
grjónum en einnig íbúðarhúsnæði.
Taílandsher að taka völdin
Bráðabirgðastjórnin samt enn við völd í landinu að nafninu til
Margra ára deilur
» Deilurnar milli annars vegar
Shinawatra og bróður hennar,
Thaksin Shinawatra, og hins
vegar stjórnarandstæðinga
hófust 2006 þegar herinn
hrakti bróðurinn úr embætti.
forsætisráðherra. Hann er nú í
útlegð.
» Bróðirinn er vellauðugur og
er m.a. sakaður um að hafa
keypt atkvæði.
Prayuth
Chan-Ocha
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, hvatti í gær til þess að
ferlið sem notað er þegar afbrota-
menn eru framseldir til annara
landa yrði stytt. Róttækur múslím-
aklerkur, Abu Hamza al-Masri, var
í vikunni dæmdur sekur um aðstoð
við mannrán og hryðjuverk fyrir
dómi í New York.
Hamza, sem er 56 ára, gæti hlotið
ævilangt fangelsi en dómur verður
kveðinn upp í september. Tíu ár
eru liðin frá því að Bandaríkjamenn
kröfðust framsals Hamza frá Bret-
landi. kjon@mbl.is
Framsal hryðju-
verkamanna taki
skemmri tíma
BRETLAND
Evo Morales, for-
seti Bólivíu, er 54
ára. En eitt af
bestu knatt-
spyrnuliðum
landsins, Sport
Boys, hefur nú
gert atvinnu-
mannasamning
við forsetann fyr-
ir næsta keppn-
istímabil.
Ætlunin er að Morales verði
miðjumaður. En vegna þess hve
gamall hann er mun hann ekki spila
í meira en 20 mínútur í hverjum
leik. Hann velur sjálfur hvenær
hann verður með. kjon@mbl.is
Forseti semur við
atvinnulið í fótbolta
Evo Morales
BÓLIVÍA
Alls hafa nú yfirvöld í Tyrklandi
ákært átta manns fyrir aðild að
manndrápi vegna námuslyssins ný-
verið í borginni Soma þegar 301
maður fórst. Meðal hinna ákærðu
er forstjóri fyrirtækisins sem stýrði
námunni. Nú er talið að gas hafi
safnast fyrir í námunni og það loks
sprungið. Ekki hafi verið tekið
neitt tillit til viðvarana um hættuna
frá mælitækjum. kjon@mbl.is
Átta ákærðir vegna
námuslyss í Soma
TYRKLAND
Starfsmenn stálvers í Maríupol í
Úkraínu á friðarfundi sem eigand-
inn, auðkýfingurinn Rínat Akmet-
ov, efndi til í gær. Var fundinum
beint gegn uppreisnarmönnum,
hlynntum Rússum, sem hafa lagt
undir sig allmargar borgir. Akmet-
ov vill með framtakinu reyna að
tryggja að hægt verði að kjósa í
landinu öllu á sunnudag en þá fara
fram forseta- og þingkosningar.
Talið er að Rússar hafi nú flutt um
40.000 manna herlið, sem síðustu
vikurnar hefur verið rétt við aust-
urlandamæri Úkraínu, burt en
úkraínskur ráðherra sagði þó ekki
enn hægt að staðfesta að svo væri.
Uppreisnarmenn gera allt til að
koma í veg fyrir að hægt verði að
kjósa í borgum sem þeir ráða, hafa
m.a. hótað embættismönnum Úkra-
ínustjórnar á staðnum limlest-
ingum og dauða. Óttast er að millj-
ónir manna geti ekki kosið.
Auðkýfingur efnir til frið-
arfunda í Austur-Úkraínu