Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 22

Morgunblaðið - 21.05.2014, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn eru fjórirmánuðir þartil Skotar taka ákvörðun um sjálfstæði sitt en kosningabaráttan er þrátt fyrir það komin á full- an snúning. Fullsnemmt er að spá fyrir um niðurstöðuna, en þó má segja að saxast hefur nokkuð á fylgi þeirra sem vilja halda áfram sambandinu við Bretland. Við bætist að sjálf- stæðissinnar telja sig eiga heil- mikið inni áður en gengið verð- ur til atkvæða í september. En það er ansi margt sem gæti haft áhrif á niðurstöðuna, sem ekki tengist þeirri grund- vallarspurningu hvort Skotar ættu að vera sjálfstæð þjóð. Kosningabaráttan til að mynda hefur snúist að miklu leyti af hálfu sambandssinna um að tala niður möguleika Skota til þess að geta staðið á eigin fótum. Hætt er við að sú neikvæðni hafi frekar fælt hugsanlega kjósendur frá málstaðnum en hitt, en fáir virðast tilbúnir til þess að tala máli ríkja- sambandsins sem varað hefur í 307 ár. Þetta sá David Cameron, for- sætisráðherra Bretlands, og hélt hann því til Skotlands um helgina til þess að reyna að snúa baráttu sambandssinna inn á jákvæðari braut. Cameron hafði hins vegar verið nærri því ósýnilegur í kosningabaráttunni fram að því, af þeirri ástæðu að íhaldsmenn eru það óvinsælir í Skot- landi að formaður skoska flokksins hefur lagt til að hann verði lagður niður og nýr hægri flokkur stofnaður undir öðru nafni. En þó að Cameron hefði helst viljað halda sér utan við baráttuna kemst hann ekki undan henni. Hávær umræða hefur myndast meðal skoskra sjálfstæðissinna, um að með því að kjósa með sjálfstæði myndu Skotar græða tvennt: Í fyrsta lagi yrði Skotland sjálfstætt og í öðru lagi myndi Cameron neyðast til þess að segja af sér. Svo rammt hefur kveðið að þessari staðhæfingu að Came- ron sá sig tilneyddan til þess að lýsa því yfir að hann myndi alls ekki yfirgefa Downingstræti 10 þó að Skotar kysu með sjálf- stæði sínu. Það hefur þó ekki dugað til að eyða þeim efa. Líklega sýnir þetta dæmi einna best hættuna á því að umræðan í Skotlandi næstu fjóra mánuði verði á röngum nótum. Það eru til margvísleg rök bæði með og á móti sjálf- stæðu Skotlandi og framtíð þess ríkis. Því miður er hætta á að þau rök muni hverfa í skugg- ann fyrir pólitískum stund- arhagsmunum þegar Skotar taka afstöðu til þess hvort leysa skuli upp eitt farsælasta ríkja- samstarf sem mannkynssagan hefur að geyma. Persóna Camerons er orðin að kosn- ingamáli í Skotlandi} Verður valið á réttum forsendum? Á sunnudaginner stefnt að því að Úkraínu- menn kjósi sér nýj- an forseta í stað Viktors Janúkovíts. Það er hins vegar algjörlega á reiki hvort kosningarnar muni geta farið fram í öllum héruðum Úkraínu, einkum í Donetsk, þar sem rússneskumælandi aðskiln- aðarsinnar hafa lýst yfir sjálf- stæði héraðsins. Það gæti veikt mjög stöðu þess sem sigrar í kosningunum, ef þátttakan ann- ars staðar verður dræm. Mikil- vægt verður því fyrir yfirvöld í Kænugarði að tryggja að ekk- ert fari úrskeiðis við fram- kvæmd kosninganna þar sem þær geta farið fram, en líklegt er að reynt verði að trufla þær með einhverjum hætti. Skoðanakannanir benda til þess að óligarkinn Petro Poro- sjenkó, sem hefur verið bæði utanríkis- og efnahagsráðherra, muni fari með öruggan sigur af hólmi, en hann hefur talsvert forskot á Júlíu Tímósjenkó, sem er í öðru sæti. Porosjenkó, sem hefur viðurnefnið „súkku- laðikóngurinn“ vegna viðskipta- veldis síns í sælgætisfram- leiðslu, var á sínum tíma talinn líklegur forsætis- ráðherra undir Janúkovíts áður en honum var gert að yfirgefa forseta- embættið. Sigurvegarans bíður hins vegar erfitt verkefni. Einsýnt er að Rússar muni draga lögmæti hans sem forseta í efa, sama hvað gerist. Fari kosningarnar illa fram er líka erfitt að sjá hvernig Porosjenkó, eða nokkur annar, muni geta staðist þær þrautir sem bíða hans. Örlög súkkulaðikóngsins yrðu þá lík- lega þau að stýra Úkraínu í átt að sambandsríki, þar sem aust- urhluti landsins yrði að leppríki Rússa. Ef þátttakan í kosningunum verður hins vegar góð og al- menn, að minnsta kosti í þeim héruðum þar sem kjörstaðir verða opnir, þarf nýkjörinn for- seti einkum að hafa áhyggjur af því hvernig eigi að brúa það bil sem myndast hefur í Úkraínu. Það mun hins vegar kosta mikl- ar umbætur á stjórnkerfi og efnahag landsins, þar sem for- setakosningarnar eru aðeins fyrsta skrefið. Framtíð Úkraínu krefst þess að það skref verði farsælt. Óvíst er um fram- haldið eftir komandi forsetakosningar í brothættri Úkraínu} Sigurvon súkkulaðikóngs É g lærði nýtt orð í síðustu viku, sögnina að brottvísa; rakst á hana í frétt um nígeríska konu, Izekor Osazee, sem gift er íslenskum manni. Svo var málum háttað að Osazee var handtekin og stóð til að senda hana úr landi án frekari fyrirvara og það frá nýbök- uðum eiginmanni hennar. Áður en af þeirri ós- vinnu varð var henni þó sleppt og í samtali mbl.is við lögmann hennar kom fram að Izekor Osazee hefði verið sleppt úr haldi og „henni verði ekki brottvísað í fyrramálið“. Nú heldur eflaust einhver að ég ætli að amast við orðfæri lögmannsins, enda er ég alræmdur (rómaður) fyrir afskiptasemi af íslensku máli samborgara minna, en því er öðru nær – það er bara gaman að fá nýjar sagnir, en ég næ ekki upp í nef mér af skömm á íslenskum stjórnvöld- um og stofnunum fyrir harðneskju þeirra og ruddaskap gagnvart þeim sem vilja flytjast hingað til lands. Í ljósi þess að þessi pistill birtist í Morgunblaðinu má gera ráð fyrir að þú, kæri lesandi, sért á miðjum aldri eða kominn yfir hann, líkt og ég sjálfur. Þú manst þá, líkt og ég, hvernig Ísland var á okkar uppvaxtarárum, þar sem ríkti einn siður, eitt kyn, einn aldur, einn flokkur og einn litur. Þeir sem féllu undir þá lýsingu, miðaldra hvítir karl- menn og kristnir sjálfstæðismenn í þokkabót, höfðu það því býsna gott, en aðrir síður. Eitt af því sem braut upp þetta gamla og staðnaða þjóðfélag var innflutningur fólks frá ýmsum löndum, fólks sem flutti með sér ferskar hug- myndir í menningu og listum, glæddi með okk- ur áhuga á nýstárlegri matargerð, vakti upp spurningar um mannréttindi og sitthvað fleira sem við höfðum ekki rænu á að velta fyrir okk- ur og svo má lengi telja. Það fólk sem hingað hefur flust á síðustu áratugum hefur nefnilega gert samfélag okkar betra og ríkara. Það hefur þó ekki gengið þrautalaust fyrir sig, enda löngu ljóst að Íslendingar eru ekki haldnir minni fordómum en aðrar þjóðir þegar litaraft, trú eða tungumál er annars vegar. Minnumst þess að ekki eru mörg ár síðan hér var starfræktur stjórnmálaflokkur sem byggði starf sitt að stórum hluta á kynþáttahatri og kom þó mönnum á þing. Það er því nóg af for- dómum og hatri í garð útlendinga hér á landi þó að þeir fremji færri glæpi en innfæddir, séu síður líklegir til að þiggja félagslega aðstoð og skari að jafnaði fram úr í vinnusemi og skyldurækni. Þess- ir fordómar sjást til að mynda í starfi svonefndrar Útlend- ingastofnunar, án þess að ég haldi því fram að starfs- mönnum hennar sé um að kenna – það er fyrir pólitískan vilja ráðamanna sem svo hart er gengið fram. Í ljósi þess hve innflutningur á fólki hefur gagnast okk- ur vel er það því tillaga mín að ráðherra beiti sér fyrir því að reglan verði að taka vel á móti fólki en ekki að sýna því hörku. Við eigum að bjóða Izekor Osazee velkomna hingað til lands og ekki bara hana heldur líka þá sem dúsa í fanga- búðum innanríkisráðuneytisins í Reykjanesbæ. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Fleiri innflytjendur, takk STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þ ótt Vestlendingar séu ánægðir með búsetuskil- yrði í heimabyggð og ánægðari en þeir voru fyrir þremur árum telja þeir að ýmislegt megi bæta. Meðal þess sem þeir telja að þurfi að lagast eru launatekjur, atvinnuöryggi og vöruverð. Í skoðanakönnun meðal íbúa Vesturlands voru þátttakendur beðn- ir um að taka afstöðu til stöðu og mik- ilvægis margra mikilvægustu búsetu- þátta hvers samfélags. Könnunin er gerð á þriggja ára fresti þannig að hægt er að sjá þróun. Skýrsla um nið- urstöður nýjustu könnunarinnar hef- ur verið birt. Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá Samtökum sveitarfélaga á Vest- urlandi, bendir á að sem fyrr séu það helst þættir sem tengjast vinnumark- aði og framfærslu sem virðist vera mest aðkallandi úrlausnarefni á öll- um svæðum Vesturlands. Vandamálin eru svipuð á milli svæða. Íbúar á Akranesi, í Hvalfirði og Borgarfirði töldu að helst þyrfti að bæta laun, atvinnuúrval, atvinnu- öryggi, framfærslukostnað og vöru- verð. Á Snæfellsnesi og í Dölum var vöruverð efst á blaði. Vöruúrval var fólki einnig ofarlega í huga á þeim stöðum og í Dölum komu því til við- bótar launatekjur, atvinnuúrval og kostnaður við framfærslu. Vífill segir að óánægja með hátt orkuverð til upphitunar á Snæfells- nesi og í sveitum kunni að skýra áherslu á framfærslukostnað. Þá sé þekkt að meðallaun séu undir með- altali á vissum svæðum Vesturlands, sérstaklega í landbúnaðarsveitum. Þá kunni óvissan í sjávarútvegi að skýra áherslu á atvinnuöryggi, sömu- leiðis umræða um hagræðingu hjá ríkinu eins og til dæmis umræðan um framtíð Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sé dæmi um Kröfur um bætt fjarskipti Ýmsar aðgerðir sem farið hefur verið í frá því 2010, þegar síðasta könnun var gerð, virðast mælast vel fyrir hjá íbúum alls Vesturlands. Nefna má núverandi fyrirkomulag al- menningssamgangna, framhalds- skóla í Dölum í samstarfi við Mennta- skóla Borgarfjarðar og menningarlíf sem gæti tengst framkvæmd Menn- ingarsamnings á Vesturlandi og framtaki einstaklinga á því sviði. Ef nefndir eru þættir sem þykja hafa versnað má nefna stöðuna á hús- næðismarkaði, ekki síst lítið framboð á leiguíbúðum en einnig íbúðum til kaups. Krafa um bættar samgöngur er sígild en nú bætist við óánægja með fjarskiptamál. Vífill vekur at- hygli á því að krafan um bættar net- tengingar og farsímasamband virðist vaxa á milli kannana þrátt fyrir um- bætur á því sviði. Því virðist upp- byggingin ekki halda vel í við hraða þróun. Þess má geta að sveitarfélög og samtök einstaklinga víða um land eru að taka lagningu ljósleiðara í sveitum í eigin hendur vegna þess að fjarskiptafélögin hafa ekki séð sér hag í því. Slík þróun er í gangi á Vest- urlandi og er framtak Hvalfjarðar- sveitar það markverðasta enn sem komið er. Vinnur í borginni Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að sókn Vestlendinga í vinnu á öðrum svæðum, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu, hefur aukist aftur en úr henni dró verulega eftir bankahrunið. Vífill telur að fasteignamarkaðurinn á höfuð- borgarsvæðinu kunni að skýra þessa þróun að einhverju leyti. Fólk sé beinlínis að flytja þaðan til að geta keypt ódýrara húsnæði en haldið vinnunni. Óánægja með laun og atvinnuöryggi Morgunblaðið/Árni Sæberg Akranes Íbúar á öllum svæðum Vesturlands vilja hærri laun og lægra vöru- verð. Atvinnuöryggi er fjölskyldufólki einnig ofarlega í huga. Um fjórðungur íbúa í Dala- sýslu telur mjög eða frekar líklegt að hann flytji frá Vest- urlandi á næstu tveimur árum. Er það mikil breyting frá könn- un sem gerð var fyrir þremur árum þegar 14% íbúa höfðu hug á því að flytja. Kemur þetta Vífli Karlssyni á óvart því þótt íbúum hafi fækkað heldur á síðustu árum er ekki hægt að tala um fólksflótta. Íbúar Akraness og Hval- fjarðarsveitar hafa minni hug á að flytja en íbúar í öðrum héruðum Vesturlands, eða 14%. Hlutfallið er 18% á Snæfellsnesi og 21% í Borgarfirði. Mikill fjöldi háskóla- menntaðra í Borgarfirði er talinn skýra frekar hátt hlutfall fólks sem hefur hug á brottflutningi þaðan. Dalamenn vilja flytja EKKI HREYFING Á AKRANESI Vífill Karlsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.