Morgunblaðið - 21.05.2014, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Sú kollsteypa sem
íslenskt samfélag
varð fyrir á haust-
dögum árið 2008 og
kallast hrunið skildi
marga eftir í sárum
og skapaði mörg
vandamál sem enn
eru óleyst. Dögun,
samtök um réttlæti,
sanngirni og lýðræði,
eru skilgetið afkvæmi
þessara dramatísku
atburða í lífi íslensku þjóðarinnar.
Dögun í Reykjavík býður nú
fram í fyrsta skipti í borgarstjórn-
arkosningum og er Þorleifur
Gunnlaugsson oddviti framboðs-
ins. Sá sem þessa grein ritar er í
því fimmta. Undanfarnar vikur
hefur farið fram gríðarleg mála-
efnavinna hjá Dögun og má segja
að ný stefna hafi verið unnin með
þarfir íbúanna í Reykjavík í huga
og þeirra sem þangað koma.
Margir hafa lagt hönd á plóginn,
eins og sagt er.
Dögun er félagshyggjuafl og
hefur markað sér stefnu eða
áherslur í fjölmörgum málaflokk-
um. Framboðið setur húsnæðismál
á oddinn og vill t.d.
byggja 300-500 íbúðir
til að leysa bráða-
vanda í húsnæðis-
málum í höfuðborg-
inni. Þetta kom fram í
fréttum þegar Dögun
kynnti stefnu sína
þann 8. maí síðastlið-
inn.
Dögun vill efla og
styðja dyggilega við
mannréttindi hinna
fjölmörgu hópa, sem
búa í borginni, en
Reykjavík er ásamt
Íslandi öllu orðið að fjölmenning-
arsamfélagi. Sú þróun hefur átt
sér stað í grófum dráttum frá
upphafi níunda áratugar síðustu
aldar.
Dögun er einnig mjög umhugað
um lýðræði og opnara stjórnkerfi,
þar sem valdinu er dreift út í
hverfin og til íbúanna. Breiðholtið
er til dæmis með um 20.000 íbúa,
fleiri en Akureyri og eins og allir
vita þá er höfuðstaður Norður-
lands með eigin bæjarstjórn.
Hvers vegna ekki Breiðholt? Þá
vill Dögun að íbúarnir í borginni
komi með mun atkvæðameiri
hætti að ákvörðunum um fjármál
og í hvað útsvarstekjum þeirra er
eytt. Til eru fordæmi um þetta,
nefna má borgina Porto Alegre í
Brasilíu, þar sem 1,5 milljónir
manna búa. Í grein um þetta mál
segir Þorleifur Gunnlaugsson,
oddviti Dögunar: „ Fjárhagsáætl-
unargerð með þátttöku íbúanna er
aðferð sem rakin er til borg-
arinnar Porto Alegre í Brasilíu, en
þar vann flokkur sem hafði sett
þessa stefnu á oddinn óvæntan
kosningasigur árið 1988. Þar er
allt að fimmtungur fjárhagsætl-
unar borgarinnar unninn í nánu
samráði við íbúana og þetta hefur
reynst vel, haft félagslegar um-
bætur í för með sér, slegið á spill-
ingu og aukið hagsæld í borginni.“
(DV.is, 26/2 2014.)
Dögun vill að menntakerfi borg-
arinnar verði rekið þannig að
bekkjastærðir verði minnkaðar og
að unnið verði að því að bæta læsi
meðal nemenda (sérstaklega
drengja) og að skólar verði aldrei
reknir á forsendum hagnaðar.
Tryggja beri aðgengi allra að
skólum borgarinnar og tekjuteng-
ingar verði notaðar með virkari
hætti, þar til gjaldfrjálsum skóla
er náð. Einnig vill framboðið nota
tekjutengingar á leikskólastiginu
og á frístundaheimilum. Þannig að
hinir efnaminni borgi minna og
efnameiri meira. Í nýlegri frétt
sem birtist í Morgunblaðinu kom
fram að stærstur hluti launa-
manna er með um 200-300.000 í
regluleg mánaðarlaun. Margir eru
með lægri laun og eiga því erf-
iðara með að ná endum saman.
Fjölmargir lifa á örorkubótum eða
slíku. Hag þessa fólks verður að
verja og Dögun vill stuðla að því.
Dögun setur fjölmörg önnur mál
á oddinn eins og t.d. stofnun sér-
staks Borgarbanka, sem er ein-
ungis viðskiptabanki en ekki
fjárfestingarbanki, endurreisn
bæjarútgerðar í Reykjavík og þá
vill Dögun að flugvöllurinn verði
áfram í Vatnsmýrinni. Sjálfur tel-
ur sá sem ritar þessa grein að
Vatnsmýrin eigi ekki að verða
fyllt af steinsteypu, það myndi
meðal annars gjörsamlega eyði-
leggja fallegt útsýni yfir á Reykja-
nesskagann, þar sem til dæmis
Keilir blasir við. Fjölmörg önnur
rök væri hægt að tína til, t.d. ör-
yggisrök fyrir alla íbúa Íslands og
fleiri.
Að lokum vil ég svo hvetja les-
endur til að kynna sér stefnu Dög-
unar nánar á heimasíðu framboðs-
ins, www.dogunreykjavik.is.
Dögun – breytum Reykjavík
Eftir Gunnar Hólm-
stein Ársælsson
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
»Dögun hefur markað
sér ítarlega stefnu.
Framboðið setur meðal
annars húsnæðismál á
oddinn og vill hafa flug-
völlinn áfram í Vatns-
mýrinni.
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
í fimmta sæti á lista Dögunar.
Margir læknar og
sjúkraliðar hafa stað-
fest að staðsetning
Reykjavíkurflugvallar
hafi bjargað mörgum
mannslífum á liðnum
árum. Sé það rétt,
sem ég efast ekki um,
þá fer heldur ekki á
milli mála að stað-
setning hans heldur
áfram að bjarga
mannslífum á kom-
andi árum fái hann að vera þar
sem hann er í dag. Er einhver sem
mótmælir því?
Er einhver sem vill í alvöru taka
á sig ábyrgð mannfórna, vitandi
vits? Það er erfitt að trúa því.
Hvernig í ósköpunum getur þá
meirihluti borgarstjórnar, með Dag
B. Eggertsson, lækni, í broddi fylk-
ingar leyft sér að vinna leynt og
ljóst að því að fórna vellinum, þó
staðhæft sé af marktækum mönn-
um að staðsetning hans geti ráðið
úrslitum um björgun mannslífa? Er
ekki eitthvað til sem heitir lækna-
eiður?
Allir vita sem vilja vita að það er
ekkert annað ásættanlegt flugvall-
arstæði til í borgarlandinu. Að auki
eru engir peningar til í nýjan flug-
völl. Um þetta átakamál hlýtur að
verða kosið í vor. Þó ég viti að for-
usta D-listans og Framsóknar hér í
borg sé á móti því að völlurinn
hverfi úr Vatnsmýrinni þyldi þjóðin
alveg að þeir sýndu meiri bar-
áttuvilja í þessu máli. Mikill meiri-
hluti þjóðarinnar hefur sýnt svo af-
gerandi í skoðanakönnun vilja sinn
sem er að flugvöllurinn verði áfram
þar sem hann er í dag, svo hann
megi halda því hlutverki sínu
áfram að bjarga mannslífum með
góðra manna hjálp og þjóna land-
inu öllu.
Eigum við að trúa því að meiri-
hluti borgarstjórnar sé svo gæfu-
snauður að hann ætli sér að rústa
innanlandsfluginu og um leið að
hundsa þennan afgerandi meiri-
hlutavilja þjóðarinnar? Sé svo, er
þessu blessaða fólki meira en lítil
vorkunn.
Svo eru það fluggarðar, þar skal
nú bíta hausinn af skömminni. Þar
eru hátt í eitthundrað kennslu- og
einkaflugvélar, flugskólar, flugskýli
og verkstæði fyrir
flugflotann, þar sem
hundruð manna hafa
atvinnu.
Á haustdögum skal
nú rústa þessu öllu.
Áratuga uppbygging
og ævistarf margra
ásamt innanlandsflugi
og nýnemar reknir
brott. Já, er það ekki
flott? Hjá mestu flug-
þjóð veraldar miðað
við fræga hausatölu.
Reykvíkingar, við
eigum leik í stöðunni 31. maí. Verði
sá leikur afleikur verður hann ekki
bara ógæfa Reykvíkinga, heldur
þjóðarinnar allrar.
Náttúruhamfarir
í Reykjavík?
Eftir Hafstein
Sveinsson
Hafsteinn
Sveinsson
»Er einhver sem vill í
alvöru taka á sig
ábyrgð mannfórna,
vitandi vits?
Höfundur er fyrrverandi skipstjóri.
!"#
$
% &
'''
()*% & ()* +
, +