Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 ✝ Steinn Steinsenbifvélavirkja- meistari fæddist í Reykjavík 20. febr- úar 1953. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 12. maí 2014. Foreldrar hans voru Eggert Stein- sen, f. 5. desember 1924, d. 15. janúar 2010 og Steinunn Jónsdóttir, f. 7. janúar 1930, d. 1. mars 2014. Systkini Steins eru: a) Rúnar Hans, f. 1949, maki Guðrún Guð- mundsdóttir, b) Anna, f. 1959, maki Sigurður Már Einars- son, c) Ragnheiður, f. 1963 og d) Jón, f. 1967, d. 1994, maki Brynja Sigurðardóttir. Eftir- lifandi maki Steins er Ásta Steinn lærði bifvélavirkjun og má segja að það hafi verið hans aðalstarf í gegnum tíð- ina þó svo að hann hafi unnið ýmis önnur störf í lengri eða skemmri tíma. Hann vann við og rak síðar hljómplötupress- unina Alfa í Hafnarfirði um árabil. Einnig vann hann við plastgluggasmíði, byggingar- eftirlit, blikksmíði og tré- smíði. Síðustu árin vann hann á þjónustuverkstæði Bern- hard ehf. á Íslandi. Steinn hafði alltaf mikinn áhuga á siglingum og var einn af stofnendum Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi. Hann átti þátt í að smíða Skýjaborgina, eina af fyrstu keppnisskútum hér á landi. Hann sigldi tvisv- ar á seglskútu yfir Atlands- hafið frá Bretlandi til Ís- lands. Útför Steins fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 21. maí 2014, kl. 13. María Björns- dóttir, leik- skólastjóri, f. 22. mars 1957. Þau giftust 30. júlí 1987 og bjuggu lengst af á Öldugötu 22 í Hafnarfirði. Þeirra börn eru: a) Steinunn Dögg, efnaverk- fræðingur, f. 1979, maki Kristbjörn Helgi Björnsson, f. 1977, þau eiga Iðunni Völu, f. 2010, b) Stein- arr Logi, málari, f. 1985, maki Arnbjörg Jóhannsdóttir, f. 1985, og á hún einn son, Ævar Frey, f. 2005, en saman eiga þau Nonna Stein, f. 2014, c) Auðun, nemi í LHÍ, f. 1993. Steinn bjó í foreldrahúsum þangað til hann varð 24 ára eða þar til hann hóf búskap með þá- verandi kærustu sinni, verðandi unnustu og, miklu miklu seinna, eiginkonu, henni Ástu Maríu Björnsdóttur. Enginn er full- kominn eins og við öll vitum en Steinn og Maja vega hvort annað upp og eru því næstum fullkomin heild. Ást þeirra bar snemma ávöxt því fljótlega eignuðust þau sitt fyrsta barn. Þó svo að ástin hafi ekki dvínað milli kærustuparsins liðu sex ár þangað til annað barn kom í heiminn. Árið 1987 giftu þau skötuhjúin sig loksins og er örverpið því þeirra eina barn sem ekki fæddist í lausaleik. Við börnin höfum setið síðustu daga og skemmt okkur yfir góð- um minningum. Minningum úr sumarfríum, jólum, páskum og öðrum hátíðisdögum. Sterkastar eru þó minningar úr hversdags- leikanum, sérstaklega ylja okkur minningarnar um alla kvöldmat- artímana á Öldugötunni þar sem allt sem á vegi okkar var þann daginn var rætt til hlítar. Hlegið var að óförum okkar og annars- konar bröndurum. Og síðast en ekki síst reynt að þegja og hlusta á veðrið. Þegar við hugsum til pabba dettur okkur fyrst og síðast í hug þolinmæði. Hann gaf sér alltaf tíma fyrir okkur, og það var aldr- ei neitt annað sem ekki mátti bíða ef við þurftum á honum að halda. Okkur er ljóst hversu verð- mætt það er að eiga góðan pabba. Okkur finnst við allavega vera rosalega heppin að hafa fengið í vöggugjöf besta pabba í heimi. Pabba sem hefur elskað okkur skilyrðislaust frá fæðingu. Pabba sem hefur svo mikla trú á okkur að við höldum að engin fjöll séu okkur ókleif. Pabba sem finnur sér alltaf tíma til að hugga okkur þegar við erum sorgmædd og hlæja með okkur þegar allt er svo skemmtilegt. Elsku pabbi, takk fyrir allt. Steinunn Dögg, Steinarr Logi, Auðun Elsku Steinn. Andlát þitt og veikindi eru enn svo óraunveruleg fyrir mér. Það er svo stutt síðan við vorum sam- an í Kaupmannahöfn að keppa í músastigagerð. Við skemmtum okkur svo vel öll. Ég er svo þakk- lát fyrir að hafa kynnst þér og fengið tíma með þér á Öldugöt- unni, í skúrnum og á flakki um landið. Þú opnaðir heimili þitt og hjarta fyrir okkur mæðginunum og fengum við aldrei að upplifa annað en að vera partur af fjöl- skyldunni. Þú fórst í öll hlutverk og gerðir allt svo vel. Ekki er hægt að hugsa sér betri tengda- föður og betri afa fyrir börnin sín, þín verður sárt saknað. Arnbjörg Jóhannsdóttir Eftir fráfall Steins, okkar ást- kæra bróður, hefur hugur okkar systkina hans leitað til æskuár- anna þegar við vorum að alast upp í Kópavoginum. Í minning- unni var alltaf líf og fjör í kring- um Stein, hann var alltaf að framkvæma eitthvað þegar hann var strákur, alltaf að búa eitt- hvað til. Hann smíðaði ótrúlega flotta kassabíla og eftir að smíða- völlur var settur upp á vegum bæjarins í nágrenni við heimili okkar var hann þar öllum stund- um við smíðar á miklum bygg- ingum. Foreldrar okkar studdu við þessa sköpunarþörf sonarins með því að hjálpa til við að út- vega efni, spýtur og nagla til að smíða úr, málningu til að mála hús og bíla, ásamt hjólum sem þurfti undir alla kassabílana. Óhjákvæmilega fylgdu þessari athafnaþörf ýmis meiðsli sem þurfti að láta gera að og voru þau um tíma tíðir gestir á slysavarð- stofunni með drenginn. Eflaust hafa foreldrar okkar ekki alltaf verið jafn ánægðir með uppátækin hans því hann var líka algjör prakkari. Eitt sinn smíðaði Steinn kofa við Nýbýla- veginn og setti upp blómabúð, þar sem hann seldi fjölær blóm. Okkur minnir að búðin hafi ekki verið opin nema einn dag, því for- eldrar okkar uppgötvuðu að hann hafði „grisjað“ garða ná- granna til að fá blóm í búðina sína. Ein jólin þurfti að ritskoða piparkökurnar sem boðnar voru gestum því Steinn og vinur hans, Þórhallur að okkur minnir, buð- ust til að hjálpa til við að skreyta kökurnar. Þeir skreyttu karlana og kerlingarnar þannig að þau litu út fyrir að vera nakin, ná- kvæmlega teiknuð brjóst og aðr- ir líkamspartar, sem venjulega eru huldir fötum, prýddu kök- urnar. Þegar Steinn var unglingur fékk hann áhuga á siglingum og seglbátum og smíðaði ásamt öðr- um fyrstu „Fireball“-seglbátana á Íslandi og tók síðar þátt í að smíða Skýjaborgina, 25 feta kjöl- bát, með Rúnari bróður sínum og fleirum. Steinn óx aldrei upp úr því að hafa gaman af því að smíða, bæta og laga og nutum við systkini hans góðs af því í gegn- um árin, því það var sama hvað þurfti að gera, það lék allt í hönd- unum á honum. Hann var alla tíð boðinn og búinn að hjálpa okkur ef við þurftum aðstoð, hvort sem það var að gera við bílinn okkar, flytja búslóðir á milli húsa, setja upp eldhúsinnréttingu eða styðja okkur ef við lentum í erfiðleikum. Steinn sinnti fjölskyldu sinni af miklum kærleik og hafa þau nú misst mikið. Ásta María og börnin þeirra, Steinunn Dögg, Steinarr Logi og Auðun, stóðu sem klettar við hlið hans í hans stuttu og snörpu veikindum og fyrir þá hlýju og umönnun sem þau sýndu okkar kæra bróður viljum við þakka um leið og við sendum þeim og fjölskyldum þeirra samúðarkveðju. Við systkinin teljum það vera mikil forréttindi að hafa fengið að alast upp með þessum duglega og fjöruga bróður, töffaranum sem var líka svo hlýr og nærgæt- inn ef á þurfti að halda, prakk- aranum sem náði að varðveita barnið í sér alla tíð. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Minning þín er ljós í lífi okkar, elsku bróðir. Þín systkini, Rúnar, Anna og Ragnheiður Steinsen. „Fallegasti maður og minn besti vinur, í öllu og allstaðar, guð hvað ég sakna hans, elsku frænka.“ Tárin streyma niður kinnar frænku minnar þegar hún talar um fallegu stundirnar þeirra Steins, enda alltaf bros og heið- arleiki í hjónabandi þeirra. Góðar minningar eru demantar sem glitra í fallegu, heilu börnum þeirra og barnabörnunum. Takk, elsku Steinn, fyrir að hafa hitt frænku mína, Maríu, og að ég hafi fengið að horfa á hamingju ykkar og barnanna. Elsku frænka, börn og barna- börn, Guð styrki ykkur og blessi. Þín, Sigríður María. Við andlát Steins rifjast ein- göngu upp góðar minningar. Ég kynntist þeim hjónum árið 1998 og hefur sú vinátta staðið síðan þó mislangt hafi verið á milli heimsókna. Steinn og Ásta María voru einstök hjón og það sem ein- kenndi þau bæði var hvað þau voru góðir vinir hvort annars. Ég man ekki í eitt einasta skipti eftir að hafa heyrt þau tala illa um nokkurn mann og alltaf var ég velkomin. Hvergi var betra að leita ráða en hjá þeim hjónum. Steinn var alltaf tilbúinn að hlusta og spjalla, hann hafði einstakan húmor og ég man ekki eftir að hafa farið frá honum öðru vísi en í betri líðan. Steinn var einstaklega fallegur maður, bæði að innan og utan. Elsku Ásta María, ég sam- hryggist þér og fjölskyldu þinni innilega og bið Guð um styrk ykk- ur til handa. Ég kveð vin minn með þessu ljóði: Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Herdís Hjörleifsdóttir Á Öldugötunni í Hafnarfirði hófum við búskap endur fyrir löngu og Steinn og Maja voru fyrstu nágrannarnir sem við kynntumst. Reyndar þeir einu, því þessi vinátta dugði okkur ágætlega. Þetta voru ár með basli og bruggi, barneignum og bílavið- gerðum. Veðrið var gott, tilveran tiltölulega ljúf og okkur leiddist aldrei. Á þessum árum vann Steinn mikið heima í bílskúrnum en þrátt fyrir mikla vinnu hafði hann alltaf tíma fyrir börnin og hafði einlægan áhuga á öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þessa gömlu daga rifjuðum við Steinn upp fyrir rúmum mánuði. Við gátum alltaf hlegið að versl- unarmannahelginni 1988 þegar við fórum aldrei lengra en út í kjörbúðina til að kaupa grillmat og gefa kaupmanninum í aðra tána, sem endaði með því að hann nennti ekki lengur að afgreiða og lokaði frekar snemma. Við mund- um allt sem hafði gerst þennan dag og aðra álíka skemmtilega daga. Við mundum líka hvernig við höfðum ákveðið framtíðina. Við ætluðum öll að verða gömul saman, sitja á góðviðrisdögum út undir vegg, kannski með eitthvað létt í glasinu, horfa á barnabörnin leika sér, áhyggjulaus, því ekkert væri annað fram undan en að njóta lífsins. Þessar minningar yljuðu okkur þetta síðdegi. Steinn vissi hvað var framundan, var æðrulaus og ókvíðinn og nokkuð sáttur við dagsverkið sitt, þótt hann hefði kosið að sinna því lengur. En í þessu ræður enginn hvar nótt nemur: Og þegar dauðinn kemur segi ég ekki: komdu sæll þegar þú vilt heldur segi ég: máttu vera að því að bíða stundarkorn? Ég bíð aldrei eftir neinum segir hann og heldur áfram að brýna ljáinn sinn. Þá segi ég: æ lof mér að lifa fram á vorið segi ég bara ofurlítið fram á vorið því þá koma þessi litlu blóm þú veist sem glöddu mig svo mikið í vor er leið og hvernig get ég dáið án þess að fá að sjá þau einu sinni enn bara einu sinni enn? (Jóhannes úr Kötlum) Hugur okkar og samúð er hjá Maju og börnunum. Minning Steins lifir. Gísli Ásgeirsson og Margrét Sigrún Jónsdóttir. Kær vinur er farinn, svo alltof, alltof fljótt. Steinn greindist með illvígan sjúkdóm fyrir 3 mánuðum sem tók smátt saman frá honum allan mátt þar til yfir lauk, 12. maí. Það var um átta ára aldur sem við kynntumst og vinir vor- um við frá því við vorum þrettán ára. Á æskuheimili hans, Nýbýla- Steinn Steinsen ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN HERMANN HANNESSON, Mýrum 1, áður Valhöll, Patreksfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar 11. maí. Útförin fer fram frá Patreks- fjarðarkirkju laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Guðrún Guðjónsdóttir Bergmann, Guðni Guðjónsson, Hrafnhildur Steingrímsdóttir, Hermann Guðjónsson, Guðný Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn og fósturfaðir okkar, HERMANN ÞORSTEINSSON, Espigerði 2, (Þórsgötu 9), verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 22. maí kl. 15.00. Konurnar hans þrjár: Helga Rakel, Steinunn Sara og María. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLEIF KRISTJÁNSDÓTTIR, Staðarhvammi 7, Hafnarfirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. maí. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00. Helgi Hermann Eiríksson, Halldóra Kristín Helgadóttir, Samúel Guðmundsson, Eiríkur Þór Helgason, Cecilia Nfono Mba, Ívar Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR frá Þingholti, Bessahrauni 11b, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Guðmundur Huginn Guðmundsson, Þórunn Gísladóttir, Bryndís Anna Guðmundsdóttir, Páll Þór Guðmundsson, Rut Haraldsdóttir, Gylfi Viðar Guðmundsson, Sólrún Erla Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls föður okkar, BJÖRNS EYSTEINSSONAR, Hjallabraut 25, Hafnarfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Erna Björnsdóttir, Eysteinn Björnsson, Hanna Ragnheiður Björnsdóttir. ✝ Okkar ástkæri GÍSLI JÓN HELGASON, Hátúni 4, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild LSH við Hringbraut mánudaginn 19. maí. Útför auglýst síðar. F.h. fjölskyldu og vina, Jónína Böðvarsdóttir, Sigurður Ellert Sigurðsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS KR. BJARNASONAR, Sléttuvegi 21, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn 8. maí. Útförin fór fram í kyrrþey föstudaginn 16. maí að ósk hins látna. Guðríður Pálsdóttir, Eiríkur Jónsson, Halldóra Ingibergsdóttir, Ingunn Jónsdóttir, Snorri Páll Kjaran, Kristján Örn Jónsson, Ragnheiður Sveinsdóttir, Bjarni Jón Jónsson, Hafdís Hilmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.