Morgunblaðið - 21.05.2014, Page 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
jánssonar hf., hjá J. Þorlákssyni og
Norðmann hf. og Lögreglustjór-
anum í Reykjavík, sem tækniteikn-
ari hjá Byggingarfulltrúanum í
Reykjavík og Vatnsveitu Reykja-
víkur. Frá 1982 hefur Erna rekið
og starfað ásamt manni sínum lög-
mannsstofuna Lögver og um tíma
fasteignasöluna Fasteigna-
miðstöðin í samvinnu við systur
sína og fjölskyldu hennar.
Frá árinu 1995 hefur Erna starf-
að sem fasteigna-, skipa- og fyrir-
tækjasali. Hún hóf þá störf hjá
fasteignasölunni Húsvangi, starfaði
síðan hjá fasteignasölunni Húsa-
kaupum en hefur rekið sína eigin
fasteignasölu, Fasteignakaup, í Ár-
múla 15 í Reykjavík frá árinu 2001.
Erna hefur starfað víða að fé-
lagsstörfum m.a. var hún einn af
stofnfélögum Neistans, foreldra-
félags hjartveikra barna, sat í
stjórn Foreldrafélags Háteigsskóla
og var formaður þess félags um
skeið. Hún hefur setið í nefndum á
vegum FKA, Félags kvenna í at-
vinnulífinu, og setið í nefndum á
vegum Félags fasteignasala. Erna
hefur einnig komið að mannrækt-
arstarfi innan þjóðkirkjunnar.
Áhugamál
Helstu áhugamál Ernu eru fjöl-
skyldan, leikhús, útivera, hundar
og ekki síst sælureitur fjölskyld-
unnar vestur við Breiðafjörð þar
sem fjölskyldan hefur sameinast
við uppbyggingu staðarins og hafa
hæfileikar Ernu til að fegra um-
hverfi sitt fengið þar að njóta sín,
m.a. að varðveislu gamalla muna.
Erna hefur einnig áhuga á
ferðalögum og er fyrirhugað að
fara um Húnavatnssýslurnar í
sumar og eitthvað til útlanda með
haustinu.
Fjölskylda
Eiginmaður Ernu er Sveinn
Skúlason, f. 16.7. 1951, lögmaður.
Foreldrar hans eru Skúli Sveins-
son, f. 28.11 1905, d. 13.7. 1990,
aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í
Reykjavík, og Sigríður Ingibergs-
dóttir, f. 22.7. 1911, d. 20.1. 1988,
húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík.
Börn Ernu og Sveins eru Skúli
Sveinsson, f. 21.1. 1974, lögmaður
og viðskiptafræðingur, búsettur í
Kópavogi. Maki: Sigríður Hrund
Guðmundsdóttir. Barnabörn:
Natalía fósturdóttir, Dagbjört, Al-
exander fóstursonur og Sveinn
Valur; Arna Sveinsdóttir, f. 2.2.
1982; Brynjar Sveinsson, f. 22.1.
1990, nemi.
Systkini Ernu eru Rósa Stefanía
Sigurjónsdóttir, f. 28.1. 1940, starf-
aði lengst af hjá Skattstofunni á
Akureyri. Búsett á Akureyri; Sig-
rún Valsdóttir, f. 5.3. 1945,
hjúkrunarfræðingur, búsett í
Reykjavík; Björk Valsdóttir, f.
12.1. 1948, fulltrúi hjá Landsbank-
anum, búsett í Garðabæ.
Foreldrar Ernu eru Valur Guð-
mundsson, f. 27.10. 1918, d. 12.1.
2012, starfaði lengst af hjá Ríkis-
skipum, Kassagerð Reykjavíkur og
Múlalundi, og Lára Antonsdóttir, f.
3.7. 1921, d. 30.9. 1986, gæslukona
hjá leikvöllum Reykjavíkurborgar.
Úr frændgarði Ernu Valsdóttur
Erna
Valsdóttir
Vigdís Einarsdóttir
f. í Tungumúla á Barðastr., fiskverkakona
Eiríkur Eiríksson
verkamaður á
Patreksf., Ísaf., síðast
sjómaður í Rvík
Stefanía Eiríksdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Anton Magnússon
sjómaður í Hafnarfirði
Margrét Antonsdóttir
húsfreyja
Magnús Bergur Guðmundsson
skósmíðameistari á Flateyri
Þórlaug Finnsdóttir
f. á Kaldárhöfða í Grímsnesi
Jónas Sigvaldason
bóndi á Björk í Grímsnesi
Sigrún Jónasdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigvaldi Jónasson
veitingamaður í Rvík
og á Lögbergi
Guðmundur Sigvaldason
jarðfræðingur í Reykjavík
Valur Guðmundsson
verkamaður í Reykjavík
Guðmundur Gíslason
skósmiður í Reykjavík
Hallfríður Guðmundsdóttir
húsfreyja
Gísli Jónsson
bóndi í Haga í
Hraunhr. og víðar
Jón Ívarsson
fulltrúi skatt-
stjórans í Rvík
Sonja B.
Jónsdóttir
kvikmynda-
gerðarmaður
Ívar Jónsson
prófessor
Lára Antonsdóttir
gæslukona í Reykjavík
Alltaf á vaktinni Afmælisbarnið.
Björn R. Stefánsson fæddist áDesjarmýri í Borgarfirðieystra 21. maí 1880. For-
eldrar hans voru Stefán Pétursson,
f. 25.10. 1845, d. 12.8. 1887, prestur á
Desjarmýri, bróðir Björns Péturs-
sonar alþingismanns, og kona hans,
Ragnhildur Björg Metúsalemsdóttir
í Möðrudal Jónssonar, f. 7.9. 1844, d.
6.1. 1923, húsmóðir. Stefán var af
svokallaðri Vefaraætt og áttu hann
og Ragnhildur tólf börn sem komust
upp. Björn tók upp stafinn R. til
minningar um móður sína.
Björn tók gagnfræðapróf á
Möðruvöllum 1899. Hann stundaði
kennslu og verslunarstörf 1899-
1901, var verslunarmaður hjá Pönt-
unarfélagi Fljótsdalshéraðs á Seyð-
isfirði 1902-1903, en Jón bróðir hans,
kallaður Filippseyjakappi, veitti því
forstöðu. Síðan varð Björn kaup-
félagsstjóri og verslunarstjóri á
Breiðdalsvík í tíu ár frá 1903 til 1913,
og kaupmaður á Búðareyri við
Reyðarfjörð frá 1913 til 1919. Hann
flutti þá til Reykjavíkur og stundaði
þar skrifstofustörf til æviloka. Síðast
vann hann hjá Tryggingastofnun
ríkisins.
Björn var alþingismaður S-
Múlasýslu 1916-1919 fyrir Heima-
stjórnarflokkinn.
Í minningargrein um Björn segir:
„Björn R. Stefánsson var ágætlega
gefinn maður og áhugamaður mesti
um stjórnmál. Var hann mesti
áhrifamaður í S-Múlasýslu á sinni
tíð. Hann hafði mikið yndi af þjóð-
legum fræðum og hefir ýmislegt
birst eftir hann í þeirri grein. Ber alt
það, sem eftir hann hefir sjest, þess
merki, að hann var ágætlega ritfær
og kunni vel að segja frá.“
Eiginkona Björns var Guðný Har-
aldsdóttir, f. 13.3. 1874, d. 24.8. 1943,
húsmóðir. Foreldrar hennar voru
Haraldur Ólafsson Briem og kona
hans Þrúður Þórarinsdóttir Briem.
Sonur Björns og Guðnýjar var Har-
aldur Briem, f. 7.2. 1902, d. 17.3.
1930, verslunarmaður í Reykjavík.
Eiginkona Haraldar var Lára Jóns-
dóttir. Þau áttu fjögur börn.
Björn R. Stefánsson lést 12.9.
1936.
Merkir Íslendingar
Björn R.
Stefánsson
90 ára
Guðrún Sigurðardóttir
Halldór Hafstað
Kristín Pétursdóttir
85 ára
Gunnar Kristján
Hallgrímsson
Hulda I. Guðmundsdóttir
Jónína Guðbjörg
Björnsdóttir
Trausti Helgi Árnason
80 ára
Atli Björnsson
Baldur Jónasson
Björn St. Líndal
Sigtryggsson
Guðlaug S. Haraldsdóttir
Guðmundur Pétursson
Kristín Jónsdóttir
75 ára
Guðrún Þórðardóttir
Guðrún Þórðardóttir
Ingibjörg Erla Jósefsdóttir
Sigurjón Jóhannsson
Sævar Kristbjörnsson
70 ára
Erlingur Helgason
Gylfi Jónsson
Helgi P. Breiðfjörð
Ingólfur Andrésson
Jón Eyþór Jónsson
Jón Ólafsson
Kolbrún Benediktsdóttir
Kolbrún Elín Anderson
Kristín Gísladóttir
Magnea Kristbjörg
Andrésdóttir
Margrét Jónsdóttir
Stefán Kristjánsson
60 ára
Ágústa Ólafsdóttir
Hafþór Gestsson
Hallgrímur Björgólfsson
Jóhann Ingi Gunnarsson
Jórunn Tómasdóttir
Júlíus H. Kristjánsson
Katrín Ásgeirsdóttir
Pálmi Þór Hannesson
Steinunn Kristensen
50 ára
Ágúst Arnbjörnsson
Elísabet Sigurðardóttir
Fríða B. Andersen
Gunnar Sverrisson
Hanna Eiðsdóttir
Janusz Leper
Margrét Gylfadóttir
Niramai Khamsri
Rannveig Halldórsdóttir
Ríkarður Guðmundsson
Sigurjón Aðalsteinsson
Svava Bjarnadóttir
Urszula Ciach
40 ára
Anna Steinunn
Þórhallsdóttir
Arnar Þór Valsson
Ásta Herdís Hall
Bastian Hans Fritz Stange
Berglind Sigurðardóttir
Bergur Stefánsson
Elín Granz
Jóhann Valdimarsson
Jón Símonarson
Sverrir Rúnar Hilmarsson
Þórarinn Sigfússon
Ögmundur Rúnar G.
Stephensen
30 ára
Andreas Guðmundsson
Birgitta Ben Þórarinsdóttir
Eva Dögg Kristjánsdóttir
Gísli Páll Jónsson
Marvin Haukdal Einarsson
Særún Heiða Sævarsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Erlingur er frá
Hlíðarenda í Bárðardal, S-
Þing., og er reiðkennari,
tamningamaður á Sand-
haugum, og sauðfjár-
bóndi á Hlíðarenda.
Maki: Diljá Óladóttir, f.
1979, bóndi.
Börn: Rakel Eir, f. 2005,
og Atli Hrafn, f. 2012.
Foreldrar: Ingvar Vagns-
son, f. 1949, frjótæknir,
og Aníta Þórarinsdóttir, f.
1949, kennari, bús. á
Hlíðarenda.
Erlingur
Ingvarsson
40 ára Stefanía er
hundaræktandi og at-
hafnakona, bús. á Þóru-
stöðum 1 í Ölfusi.
Börn: Sigurður Edgar, f.
1992, Dagbjört, f. 2000,
og Sigríður Pála, f. 2007.
Foreldrar: Sr. Sigurður
Sigurðarson, f. 1944, d.
2010, prestur á Selfossi
og vígslubiskup í Skál-
holti, og Arndís J. Jóns-
dóttir, f. 1945, fv. skóla-
stjóri í Reykholti í
Biskupstungum.
Stefanía
Sigurðardóttir
40 ára Linda Björk er
framkvæmdastj. Fimleika
ehf. og býr í Kópavogi.
Maki: Jón Finnbogason, f.
1973, forstöðumaður hjá
Stefni.
Börn: Elsa, f. 1997, Lauf-
ey, f. 1999, María, f. 2005,
Andri, f. 2007 og Logi, f.
2009. Elsa og Logi eiga
einnig afmæli í dag.
Foreldrar: Logi Knútsson,
f. 1952, prentari, og Ásta
Kristjánsdóttir, f. 1954,
ritari, bús. í Kópavogi.
Linda Björk
Logadóttir
Laser Blade er enn ein byltingin frá
iGuzzini í framleiðslu LED lampa. Með
nýrri tækni lýsir Laser Blade upp hlutinn
án þess að ljósgjafinn trufli. Laser Blade
hefur hlotið margar alþjóðlegar viður-
kenningar fyrir hönnun og gæði.
Ármúla 24 • S: 585 2800