Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú nýtur þess að ræða við vini þína í dag, ekki síst vinkonur. Settu tónlistina á fullt á leiðinni í og úr vinnu eða kenndu börnunum leik sem þú kunnir í gamla daga. 20. apríl - 20. maí  Naut Einlæg manneskja leikur lykilhlutverk í því að hjálpa þér við að klára tiltekið verkefni. Annars ætti þér að ganga allt í haginn í dag, haltu bara ró þinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú slakar vel á og ert í góðu jafn- vægi. Því ertu í stakk búin/n til að sýna hvað í þér býr. Klappaðu þér á bakið fyrir að þora að færa út kvíarnar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Forðastu rifrildi um peninga og eignir við vini eða félaga. Veltu þér ekki upp úr því þótt eitthvað fari úr skorðum, þetta mjakast allt í rétta átt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú veist nú þegar allt sem þú þarft að vita. Skjótt skipast veður í lofti og það sem þú taldir öruggt, er allt í einu ótryggt og snúið mál. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert eins og suðupottur og þarft að fá útrás fyrir reiði þína. Talaðu við vini þína. Lífið þarf ekki að vera afdrifaríkt til að vera eftirminnilegt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fróðleiksfýsnin hefur náð tökum á þér svo láttu einskis ófreistað til að svala henni þótt nú sé sumar og sól. Láttu ekkert verða til að trufla það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur tilhneiginu til að halda í hlutina af því að þú færð ekki af þér að losa þig við þá. Mikið er hægt að gera með litlum tilkostnaði og pottþéttri áætlun. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hittir fólk sem hefur ekki alltaf verið í góðu sambandi við sannleikann. Nú ertu að verða sú eftirtektarverða manneskja sem þú vildir verða. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur sterkt innsæi – þú skilur hvað hreyfir við fólki. Láttu þér ekki til hugar koma að framkvæma hluti, sem þú ert innst inni alfarið á móti. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver þér eldri getur gefið þér góð ráð í dag. Hann lumar á hugmynd, sem þegar hefur verið mótuð og pakkað fallega inn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er göfugt að halda sig við áætlun – nema þegar hún er hreint og beint heimskuleg. Til þess þarf góðan málstað og umfram allt kurteisi og lempni. Höskuldur Jónsson lét þess getiðá Leirnum, að hann hefði tek- ið þátt í hinu litla hagyrðingamóti kvæðamannafélagsins Iðunnar og ort þessar: Fuglar Hanar gala, glæðist allt, grænka dalir fjalla. Lækir hjala fjórtánfalt, fuglar tala’og kalla. Flugur Frjó í stuði fylla loft, flugur suða mikið, svo má tuða ansi oft upp er fuðrast rykið. Heiðmörk Fögur heiðin fagnar mest við fuglahljóðin spöku og upp í Heiðmörk einhver sest að yrkja góða stöku. Helgi Zimsen lét þess getið, að venjan væri sú að fá þrjá hagyrð- inga á pall á litla hagyrðinga- mótinu, sem væri fastur liður á fundum Kvæðamannafélagsins Ið- unnar. Það virtist eilítið tvísýnt hversu góð mæting yrði á mótið svo ég leir- aði vísur til að hafa í bakhöndinni ef þannig færi að Höskuldur mætti einn. Ekki þurfti að grípa til þeirra á mótinu en fundargestir voru svo uppteknir við dagskrána, að hlýða á söngvísur Sigurðar Þórarins- sonar og einnig samkveðskap, að lítið var ort í skipið Skáldu er safn- ar vísum ortum á fundinum, þannig að þær fengu að fylgja þar sem meðafli. En svona voru sum sagt bakhandarvísurnar. Fuglar Lóa, spói og einnig ugla ofar brosið draga. Best er þó ef furðufugla finn um mína daga Fluga Falleg blómin frjóvga má flugan puðandi. Suð í eyrum sýnist þá sumum stuðandi. Heiðmörk Nonni sem að Nissan ók náði að skora í breið mörk, og dóttir gellu er gaurnum tók – getin var í Heiðmörk. Dagbjartur Dagbjartsson komst ekki af „tæknilegum ástæðum“ á „Málþing og ljóðalestur“ Óðfræði- félagsins Boðnar. – „Útskýring kemur hér með einni af mínum uppáhaldsvísum, sem er eftir Onna (Georg Jón Jónsson) á Kjörseyri: Okkar leið er vörðuð von um að víkja burt frá syndunum. Menn frelsast helst í fjárhúsunum. Friður sé með kindunum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur af Litla hagyrðingamótinu Í klípu MAMMA VILDI AÐ ÉG FLYTTI AÐ HEIMAN. SAMT KOM HÚN Á HVERJU KVÖLDI TIL AÐ BREIÐA YFIR MIG OG SEGJA MÉR SÖGU. EÐA, HÚN SAGÐI AÐ ÞAÐ VÆRI ÞAÐ SEM HÚN VAR AÐ GERA. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „FLUGFÉLAGIÐ TÝNDI FARANGRINUM MÍNUM AFTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga mynd af honum frá því hann var lítill. ÞÚ HEFUR EKKI FARIÐ Í RÁNSFERÐ SVO VIKUM SKIPTIR! HVAÐ ER Í GANGI? ÉG GAF MÉR TÍMA TIL AÐ NEMA STAÐAR TIL AÐ LYKTA AF BLÓMUNUM OG FÉKK SVO ROSALEG OFNÆMISVIÐBRÖGÐ! EKKERT MAGAKLÓR! TIL HVERS ERTU ÞÁ? Orð geta verið tvíræð og fyrirkemur að sama orðið er notað um gerólíka hluti. Stundum breytist líka merking orða. Eitt sinn var sómi að því að vera sæmilegur, en nú er það ekkert sérlega eftirsóknarvert þótt það gangi. x x x Þegar Víkverji var lítill var ekkisérlega eftirsóknarvert að vera slakur, en nú er það hið besta mál. Ef „KR-ingar slakir“ stóð í fyrirsögn þurfti ekki að lesa lengra til að sjá að þeir hefðu tapað. Nú mætti alveg eins túlka slíka fyrirsögn sem svo að KR-ingar hefðu verið afslappaðir. „Ertu slakur?“ heyrði Víkverji ný- lega einn mann ávarpa annan við kaffivélina. Víkverja brá og átti von á því að brjótast myndu út slagsmál, eða í það minnsta rifrildi. En sá sem var borinn þessum sökum brosti bara og vissi greinilega upp á sig skömmina: „Já, ég er slakur.“ Þegar Víkverji áttaði sig á að þessi árás myndi ekki valda neinu uppnámi varð hann líka slakur. x x x Þetta þus Víkverja um marghátt-aða merkingu orðsins slakur má ekki skilja sem svo að hin nýja merking orðsins sé honum á móti skapi. Síður en svo. Slakur í merk- ingunni afslappaður eða áhyggju- laus er fullkomlega rökrétt. Talað er um að menn slaki á eftir erfiðan vinnudag, eða slaki á taumi í stað þess að toga í hann.Víkverji er því fullkomlega slakur gagnvart þessari notkun orðsins slakur. x x x Víkverji er hins vegar ekki slakurgagnvart þeirri beygingarfælni, sem virðist vera að breiða úr sér þessa dagana. Hann vill segja Útilífi, Blómavali, Bónusi, Hagkaupi (eða -kaupum) og skilur ekki að máltil- finning manna skuli vera svo dofin að þeir leyfi sér að nota nöfn á fyrir- tækjum óbeygð í auglýsingum og til- kynningum. Útlend heiti á innlend- um fyrirtækjum eru síðan kapítuli út af fyrir sig. Víkverja finnst einu gilda hversu alþjóðleg fyrirtæki kunni að vera, það eigi að vera þeim kappsmál að halda í sín íslensku nöfn heima í héraði. víkverji@mbl.is Víkverji Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. (Sálmarnir 100:5)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.