Morgunblaðið - 21.05.2014, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
KOMDU ÞÉR AF STAÐ!
SUMAR 2014
SPORTÍS
HLAUPAFATNAÐUR OG HLAUPASKÓR Í MIKLU ÚRVALI
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mér finnst alltaf best að semja
textana við drög að tónlistinni til
þess að hafa einhvern ytri ramma.
Því stemningin í lögunum hefur
mikil áhrif á textagerðina mína,“
segir Jóhannes Birgir Pálmason,
forsprakki hljómsveitarinnar Epic
Rain sem nýverið sendi frá sér
breiðskífuna Somber Air. Á plöt-
unni er að finna
átta frumsamin
lög eftir hljóm-
sveitarmeðlimi,
en Epic Rain
skipa, auk Jó-
hannesar sem
syngur, hljóðblandar og semur alla
textana, þeir Bragi Eiríkur Jó-
hannsson söngvari og gítarleikari,
Stefán Ólafsson píanóleikari og
Guðmundur Helgi Rósuson gít-
arleikari. Á plötunni leggja sveit-
inni lið þeir Roland Hartwell á fiðlu
og víólu, Richard Korn á kontra-
bassa og Magnús Elías Tryggvason
á trommur auk þess sem Elín Ey-
þórsdóttir, Ingunn Erla Bóadóttir
og Rachel Langlais eru gesta-
söngkonur. „Tónlistin okkar er
fremur hrá og raddir okkar Braga
djúpar og hrjúfar og þess vegna
finnst okkur mikilvægt að fá kven-
legt mótvægi.“
Allt leyfilegt í Frakklandi
Hálft annað ár er síðan Epic Rain
sendi frá sér sína síðustu plötu,
Elegy, og því liggur beint við að for-
vitnast um hvað sveitin hafi verið að
fást við í millitíðinni fyrir utan að
undirbúa nýja plötu. „Við erum
búnir að vera að spila víða um Evr-
ópu, bæði á tónlistarhátíðum og tón-
leikum,“ segir Jóhannes og dregur
ekki dul á að heitustu aðdáendur
sveitarinnar séu á meginlandinu.
„Mér finnst það frekar regla en hitt
að íslenskar hljómsveitir séu eft-
irsóttari erlendis en hérlendis,“ seg-
ir Jóhannes og tekur fram að sér
finnist hentugra fyrirkomulagið er-
lendis þar sem tónleikar byrji kl. 20
en ekki kl. 23 eins og hérlendis.
„Það er allt öðruvísi og skemmti-
legra andrúmsloft á tónleikum úti,
en íslenskir tónleikagestir mæta
iðulega mjög seint á tónleika og eru
í meira djammstuði.“ Aðspurður
hvaða land sé í mestu uppáhaldi
þegar kemur að tónleikahaldi
stendur ekki á svari hjá Jóhannesi:
„Það er Frakkland og þar hafa við-
tökur alltaf verið gríðargóðar. Tón-
listin okkar virðist virka mjög vel
þar,“ segir Jóhannes og tekur fram
að þar virðist allt leyfilegt.
Erfitt að skilgreina tónlistina
„Í viðtölum úti erum við oft
spurðir að því hvernig við skil-
greinum tónlist okkar og ég hef enn
ekki fundið almennilegt svar við
því. Það eru svo margir þættir og
tónlistartegundir sem blandast sam-
an í tónlist okkar og því erfitt að
finna eitthvert eitt orð sem skil-
greinir það,“ segir Jóhannes og tek-
ur fram að stíll hljómsveitarinnar
mótist af ólíkum bakgrunni hljóm-
sveitarmeðlima. „Bragi er með bak-
grunn í blús og fólk-tónlist. Við
Stebbi ólumst meira upp við hipp-
hopp og raftónlist. Gummi hlustaði
frekar á blús og gamalt djassstöff,“
segir Jóhannes og tekur fram að
helst megi lýsa tónlist sveitarinnar
sem dimmri og drungalegri. „Enda
finnst mér mikilvægt að mynda ein-
hvers konar mótvægi við allt létt-
metið. Persónulega finnst mér
þyngri tónlist skilja meira eftir við
hlustun.“
Hreinlega verður að semja
Að sögn Jóhannesar snýr næst-
algengasta spurning erlendra
blaðamanna að því hvort íslenska
náttúran hafi mikil áhrif á tón-
sköpun sveitarinnar. „Ég held að öll
íslensk bönd séu spurð að þessu.
Satt að segja hef ég aldrei pælt í því
hvort náttúran hafi einhver áhrif.
Maður er svo vanur að hafa hana í
kringum sig að maður tekur ekki
eftir henni, en kannski hefur hún
ómeðvitað áhrif,“ segir Jóhannes og
bendir á að textar hans vísi fremur í
borgina en náttúruna. „Ég skrifa
sögur um fólk og aðstæður í borg-
inni, en ég er mjög forvitinn um
náungann.“
Spurður hvort auðvelt sé að finna
sér tíma til að skrifa texta og semja
tónlist samhliða tónleikahaldi og
vinnu svarar Jóhannes því játandi.
„Maður finnur sér alltaf tíma. Ég
ákveð samt aldrei hvenær ég ætla
að skrifa eitthvað, heldur kemur
efnið einfaldlega til mín og þá
hreinlega verð ég að setjast niður
og skrifa. Þetta er því meira af þörf
heldur en planlagt.“
Inntur eftir því hvað sé fram-
undan hjá Epic Rain segir Jóhannes
að Somber Air sé væntanleg á vínyl
í 100 eintökum þar sem listamenn
frá Möller Records á borð við Steve
Sampling, Futurgrapher, Orang
Volante, Ambátt, Thiz One og
Bistro Boy munu endurhljóðbanda
plötuna.
„Í nóvember verðum við með
stóra tónleika í Caen í Frakklandi,
en tónleikastaðurinn tekur um 750
áhorfendur. Kannski má segja að
tónleikarnir séu frekar eins og leik-
sýning, því við verðum með leik-
mynd, búninga, leikmuni, ljós, sjö
manna band, franskan strengja-
kvartett og leikara sem miðla tón-
listinni með okkur,“ segir Jóhannes
og tekur fram að á efnisskránni
verði lög bæði af Somber Air og
Elegy. Að sögn Jóhannesar eru
fleiri en íburðarminni tónleikar á
dagskránni í Frakklandi í ágúst og
september, auk þess sem til stendur
að finna tíma fyrir útgáfutónleika
plötunnar hérlendis.
Þyngri tónlist skilur meira eftir
Epic Rain sendir frá sér plötuna Somber Air og hyggur á endurhljóðblöndun
hennar Skipuleggur umfangsmikla tónleikasýningu í Frakklandi í árslok
Drungi Bragi Eiríkur Jóhannsson og Jóhannes Birgir Pálmason flytja lögin sem þykja býsna drungaleg og dökk.
Tríó saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar, Himnastigatríóið, held-
ur tónleika í Hannesarholti í kvöld
kl. 20.30 til heiðurs söngkonunni
Billie Holiday en hún hefði orðið 99
ára 7. apríl sl. Á efnisskrá verða lög
sem Holiday hljóðritaði og tengjast
henni sterklega. Tríóið skipa auk
Sigurðar þeir Eyþór Gunnarsson á
píanó og danski kontrabassaleik-
arinn Lennart Ginman en hann
kemur hingað til lands sérstaklega
vegna þessara tónleika. „Tríóið er
stundum kennt við sinn fyrsta disk;
Himnastigann sem kom út árið
1999 og fékk frábæra dóma,“ segir
m.a. í tilkynningu. Miða má nálgast
á midi.is og við innganginn.
Himnastigatríóið Sigurður Flosason,
Lennart Ginman og Eyþór Gunnarsson.
Tónleikar til heið-
urs Billie Holiday
Út er kominn hljóðdiskurinn
Söngvar hnúfubaksins sem byggist
á rannsóknum Eddu Elísabetar
Magnúsdóttur á hljóðnotkun hvala
við Íslandsstrendur, er hún stund-
aði í doktorsnámi sínu við HÍ. Neð-
ansjávarupptökurnar eru frá
þriggja ára tímabili. „Hnúfubaks-
tarfar eru með sanni söngvarar
hafsins en hægt er að greina lög,
sem þeir nota til þess að laða að
maka og halda öðrum karldýrum
frá, á fengitímanum,“segir m.a. í
tilkynningu. Diskurinn er einnig fá-
anlegur á ensku og nefnist þá
Songs and Sounds of the Icelandic
Humpback whale.
Söngvar hnúfu-
baksins gefnir út
Dansk-íslenskur djasskvartett
Richards Andersson kontrabassa-
leikara heldur þrenna tónleika á Ís-
landi á næstu dögum. Fyrstu tón-
leikarnir verða á morgun,
fimmtudaginn 22. maí kl. 21 á kaffi-
húsinu Bryggjunni í Grindavík.
Laugardaginn 24. maí kl. 21 leikur
kvartettinn á Hendrix í Reykjavík
og sunnudaginn 25. maí kl. 15 á
Kex hosteli í Reykjavík.
Kvartettinn skipa auk Andersson
Danirnir Simon Krebs á gítar og
Rasmus Schmidt á trommur auk Ís-
lendingsins Agnars Más Magnús-
sonar á píanó.
Samkvæmt tilkynningu frá lista-
mönnunum er tónlistin á tónleik-
unum samin af Richard Andersson
og Simon Krebs. Hún mun vera inn-
blásin af nútímadjassi New York
borgar ásamt tilfinningu tvímenn-
inganna fyrir norrænum djass-
hljóm.
Niðursokknir Gítarleikarinn Simon Krebs, trommuleikarinn Rasmus
Schmidt og bassaleikarinn Richard Andersson eru allir frá Danmörku.
Djasskvartett
Andersson leikur víða