Morgunblaðið - 21.05.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kortlagning lands er heiti sýningar
sem Hildur Bjarnadóttir myndlist-
arkona opnar í Hverfisgalleríi,
Hverfisgötu 4, klukkan 18 á morgun,
fimmtudag. Sýningin er á dagskrá
Listahátíðar í Reykjavík.
„Ég er að kortleggja land sem ég
keypti nýverið austur í Flóa,“ segir
Hildur þegar spurt er út í verkin þar
sem hún hefur litað þræði og ofið úr
þeim og strengt upp á blindramma.
„Þetta er tveggja hektara spilda,
ósnortin, þarna hefur ekkert verið
ræktað og náttúruöflin hafa mótað
landið. Nú ætla ég að byggja tilvist á
þessu landi sem er minn efnis-
brunnur fyrir þessa sýningu.“
Hildur hefur kortlagt þetta land
gegnum plönturnar. Í fyrrasumar
taldi hún plönturnar sem á því eru
og reyndust þær vera yfir 90 talsins.
„Ég vann úr þeim plöntuliti og litaði
bæði ull og silki sem ég nota hér á
sýningunni,“ segir Hildur og kveðst
vinna mjög malerískt, eins og megi
sjá. „Ég stilli plöntulitunum upp
með akrýllitum, vísa beint í málara-
listina með því að nota hörþráð, sem
er hinn hefðbundni málarastigi,
húða hann með akrýlmálningu og
vef hann saman við þræði úr jurtalit-
aðri ull. Þar mætast tveir gerólíkir
heimar, tilbúinn akrýlliturinn, sem
er í raun dauður og tengist engum
stað, og jurtalitirnir af landinu mínu.
Jurtaliturinn er plantan og landið.“
Hún segir að þessir ólíku litir ögri
hver öðrum en um leið vinna þeir vel
saman í verkunum. „Þeir skerpa á
einkennum hver annars. Í akrýl eru
allir litir til í manngerðu kerfi lita, en
plöntulitirnir tilheyra kerfi plantn-
anna og líffræðinni. Ég er farin að
byggja upp mitt kerfi þar.“ Verk
Hildar eru hrífandi í áferð og litum,
og tala til áhorfandans á ýmiss kon-
ar hátt; sem úrvinnsla íslenskrar
náttúru og úr listasögunni um leið.
„Ég geri engar skissur áður en ég
vef verkin,“ segir hún. „Ég vel plönt-
urnar ekki út frá litnum heldur frek-
ar heiti plantanna eða einkennum
þeirra. Það er tilfinningalegt val og
ekki útpælt,“ segir hún og brosir.
„Litir plantnanna eru í þessum gula
tónaskala og ég vinn með hann. Það
hljómar til dæmis vel að stilla kræki-
berjalyngi saman með hvönn.“ Hild-
ur bendir á stórt gult verk og segir
að þó að það virðist úr fjarska vera
einlitt, þá sé litur úr gulmöðru í
uppistöðunni og ívafið úr vallelft-
ingu. „Þarna blandast tvær plöntur,
og sinn liturinn, sín ættkvíslin af
hvorri plöntu. Ég dreg plöntuþemað
fram í titlunum,“ segir hún.
„Jurtaliturinn er
plantan og landið“
Hildur Bjarnadóttir opnar sýninguna Kortlagning lands
Morgunblaðið/Einar Falur
Jurtalitir „Ég vísa beint í málaralistina með því að nota hörþráð, sem er hinn hefðbundni málarastrigi, húða hann
með akrýlmálningu og vef hann saman við þræði úr jurtalitaðri ull,“ segir Hildur um verkin í Hverfisgalleríi.
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta
Bifreiða-
verkstæði Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SVANIR SKILJA EKKI –„Bráðfyndin og skemmtileg sýning...“
Fréttablaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn Fös 30/5 kl. 19:30 36.sýn
Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn Lau 31/5 kl. 19:30 lokas.
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt! Sýningum lýkur í vor.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn Sun 1/6 kl. 19:30 12.sýn Fös 13/6 kl. 19:30 14.sýn
Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fim 5/6 kl. 19:30 13.sýn Lau 14/6 kl. 19:30 15.sýn
Mið 28/5 kl. 19:30 11.sýn Fös 6/6 kl. 19:30 aukas.
Fimm stjörnus ýning sem enginn ætti að missa af. Sýningum lýkur í vor.
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Sun 25/5 kl. 19:30 Lokas.
Síðustu sýningar - Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 24/5 kl. 14:00 Lau 31/5 kl. 14:00 Lau 7/6 kl. 14:00
Lau 24/5 kl. 16:00 Lau 31/5 kl. 16:00 Lau 7/6 kl. 16:00
Sun 25/5 kl. 14:00 Sun 1/6 kl. 14:00 Sun 8/6 kl. 14:00
Sun 25/5 kl. 16:00 Sun 1/6 kl. 16:00 Sun 8/6 kl. 16:00
Fimm stjörnu sýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára.
Stund milli stríða (Stóra sviðið)
Lau 7/6 kl. 19:30
Sýningin var valin áhugaverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2013 - 2014.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fim 22/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Fös 23/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Fös 13/6 kl. 20:00
Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
Dagbók Jazzsöngvarans – Síðustu sýningar
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Arty Hour (Kaffihús)
Þri 27/5 kl. 20:00