Morgunblaðið - 21.05.2014, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
X-Men: Days of Future Past
Stökkbreyttu ofurhetjurnar, hinir
sk. X-menn, eru mættar aftur til
leiks og að þessu sinni þurfa þær að
glíma við vélmenni Bolivers Trask
úr myrkum hliðarheimi. Vélmenni
þessi hafa fengið það verkefni að
veiða og myrða stökkbreytta. Pró-
fessor X og Magneto ákveða að
senda Wolverine, þ.e. Jarfa, aftur í
tímann til að breyta sögulegum við-
burði sem gæti haft áhrif á alla,
jafnt mannfólk og stökkbreytta.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Jennifer Lawrence, James McAvoy,
Michael Fassbender, Hugh Jack-
man, Ian McKellen, Halle Berry,
Patrick Stewart og Ellen Page.
Leikstjóri er Bryan Singer.
Metacritic: 72/100
Rotten Tomatoes: 92%
IMDb: 9,3/10
Walk of Shame
Gamanmynd sem segir af
fréttaþulinum Meghan Miles.
Hún vaknar dag einn skelþunn,
peningalaus, símalaus, skilríkja-
laus, jakkalaus og bíllaus í vafa-
sömu hverfi og á að mæta í mik-
ilvægasta atvinnuviðtal ævi
sinnar eftir átta klukkustundir.
Eru þá góð ráð dýr og ekki víst
að Miles takist að komast í við-
talið. Leikstjóri myndarinnar er
Steven Brill og með aðal-
hlutverk fara Elizabeth Banks,
Bill Burr, Ethan Suplee, Gillian
Jacobs, James Marsden, Kevin
Nealon, Oliver Hudson, Sarah
Wright, Tig Notaro og Willie
Garson.
Metacritic: 25/100
Rotten Tomatoes: 13%
IMDb: 6,1°/10
Blá Jennifer Lawrence sem Myst-
ique í X-Men: Days of Future Past.
Bíófrumsýningar
Skammarganga og X-menn
MÚSÍK Í
LJÓSVAKA
Guðmundur Emilsson
ge224@simnet.is
Maður vann fyrir sér samhliðagrafalvarlegu námi viðTónlistarháskólann í Skip-
holti. Sá og heyrði ýmislegt.
Guðsmaður og organisti. Hægferð-
ug Cortinu-drusla á Miklubraut.
Þokulúður. Bíll stöðvaður. Leður-
klædd lögga. Talsmaður Drottins
skrúfar niður og andar þessu í ásjónu
mannsins. Hafið þið ekkert betra að
gera en að skelfa presta milli barna-
guðsþjónustu og síðdegismessu?
Skrúfar upp. Ekur brott. Mótorhjóla-
yfirvaldið hverfur í rykmekki. Við
heimkomu: Þeir halda alltaf að maður
sé að skrölta heim af balli.
Það læra börn. Triumph Spitfire.
Löggan segir pollróleg. Ökuskírteini?
Er að hlaupa í skarð! Það er aldeilis.
Á að vera byrjaður að spila við útför!
Dramatísk þögn. Er það hann Jón
minn? Já – og farðu fyrir okkur! Ha?
Já, þú meinar það. Lúðrar þeyttir
niður órannsakanlega Miklubraut
Guðs, yfir ljós í öllum regnbogans.
Fæ svo ákúrur í skrúðhúsi. Prestar
eru sérfræðingar í svívirðilega kurt-
eislegum skömmum og þiggja laun
fyrir þær – blessaðir. Sálmanúmerin!
Þá hófst loks útför Jóns míns.
Lögreglufagnaður á mánudegi.
Hótel Saga. Að loknum endalausum
síðdegisfordrykk, þrírétta dinner,
eftirrétti og fjöldasöng – skellir Har-
ley Davidson Kaldalóns á flygilinn.
Svo kom gusa uppá hanabjálka.
Hamraborgin. Skuldadagar: Hægt
verður Cortinu-hægt. Hratt Spitfire-
hratt. Þagnir dramatískar. Millispil
svívirðilega kurteis. Loks hið fræga
háa c2, sem lýkur á ljósum í öllum
regnbogans á norðurhveli jarðar –
þegar undirleikara hentar. Vopn snú-
ast: Andvana tenór er fagnað. Alls-
herjar uppistand. Þvílík túlkun!
Kvenpeningur tárast. Foringi hækk-
aður í tign. Fólk tók að dansa! Það
var ekki á matseðli.
Píanóleikarinn fær loks pásu á mið-
nætti eftir sjö klukkustundir. Felur
sig í fatahengi. Hræddur við tenór.
Eru þá ekki lögreglustjóri og dóms-
málaráðherra á hljóðskrafi. Eigum
við ekki að framlengja? Greip síma.
Hringi í neyðarvakt. Vek söngvara
þjóðarinnar. Haukur birtist á sviði.
Aftur fögnuður. Tondeleyo og fleira.
Vansvefta þjóðsagnir tínast á svið.
Eyþór gítar, Ormslev sax, Papa djass
og Sverrir bassi. Tjúttað og trallað.
Loks leigusjúkrabíll kl. 05:00. Bíl-
stjóra spurn. Er drengurinn drukk-
inn? Syng ekki með fyllibyttum svar-
aði vammlaust sjentílmenni. Hvað er
að honum greyinu? Spilaði yfir sig – í
tólf klukkustundir svaraði Morthens
og borgaði. Það er nú ekki mikið –
sagði bílstjórinn.
Dr. Páll Ísólfsson Bach-lögga hafði
ekki hugmynd um hjáguð fermingar-
drengs. Sá hét Jimmy Smith pedala-
maður. Nemandinn hélt því leyndu.
Eins hinu – að maður spilaði á Borg-
inni í Tríói Guðmundar sénís Ingólfs-
sonar og Guðmundar Papa djass – á
pedal Hammond.
YouTube slóðir:
Haukur Morthens / Ég skal bíða
þín. #1 (og fleiri lög)
Björk - Björk Guðmundsdóttir
& Tríó Gu – Tondeleyo (og fleiri lög)
Jimmy Smith - Jazz Scene USA
(1962) Greengrass Music
Með lögum skal
land byggja
www.gudmunduremilsson.is
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
ÍSL
TALÍSL TAL
12
12
L
L
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
EMPIRE
9,3 - IMDB
93% - Rottentomatoes.com
STANSLAUS SPENNA OG BRJÁLAÐ SKEMMTANAGILDI.
LANGBESTA X-MYNDIN!
T.V. , biovefurinn og s&h
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
X-MEN 3D Sýnd kl. 7 - 10 (P)
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5 - 8 - 10:40
BAD NEIGHBOURS Sýnd kl. 8 - 10:10
LÁSI LÖGGUBÍLL Sýnd kl. 5
RIO 2 2D Sýnd kl. 5
„Meinfyndin og heldur húmornum alla leið“
T.V. - Bíóvefurinn
★★★
14
„Besta íslenska kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
GODZILLA KL.3D:5:20-8-10:402D:6-9
GODZILLAVIP2D KL.8-10:40
WALKOFSHAME KL.5:50-8-10:10
BADNEIGHBOURS KL.5:50-8-10:10
DIVERGENT KL.5:15
TRANSCENDENCE KL.8
CAPTAINAMERICA22D KL.10:40
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST3DKL.5:10-8-10:50
GODZILLA2D KL.5:20-8-10:40
WALKOFSHAME KL.5:50-8
OLDBOY KL.10:10
X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST3DKL.5:15-8-10:45
WALKOFSHAMEKL.5:50-8-10:10
GODZILLA KL.3D:5:20-8-10:40 2D: 6:50-9:30
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
LOS ANGELES TIMES
CHICAGO SUN TIMES
THE
BATTLE FOR
THESTREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
AKUREYRI
GODZILLA3D KL.5:20-8-10:30
WALKOFSHAME KL.5:50-8-10:10
KEFLAVÍK
GODZILLA3D KL.8-10:40
VONARSTRÆTI KL.8-10:40
VINSÆLASTA MYNDIN
Í HEIMINUM Í DAG
CHICAGO TRIBUNE
ROGEREBERT.COM
FRÁBÆR GAMANMYND
MEÐ ELIZABETH BANKS
FILM.COM
T.V., BÍÓVEFURINN OG S&H
STANSLAUS SPENNA OG BRJÁLAÐ SKEMMTANAGILDI.
LANGBESTA X-MYNDIN!