Morgunblaðið - 19.07.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 19.07.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Það rignir inn ferðamönnum, og rigningu, og þegar það leggst saman þá er hún náttúrulega tvöföld ánægj- an hjá kaupmönnum sem selja regn- fatnað,“ segir Halldór Hreinsson, eig- andi Fjallakofans, en hann er eflaust einn fárra Íslendinga sem kvarta ekki yfir tíðarfarinu það sem af er sumri. Hann segir allar vörur sem halda ferðamanni og búnaði þurrum seljast eins og heitar lummur en á móti hangi stuttbuxur og ermalausir bolir á slá og safni ryki. „Við erum með þrjár verslanir en finnum mest fyrir þessu á Laugaveg- inum þar sem ferðamenn eru í vand- ræðum, ekki endilega bara með fatn- aðinn, heldur með tjöldin og tjaldbúnaðinn sem er kannski ekki al- veg fyrir svona leiðindaveður,“ segir Halldór. „Hinn almenni ferðamaður er kannski búinn að gúgla eitthvað norm á Íslandi og kemur hingað með eitthvað sem myndi kannski sleppa í góðu árferði en sú er ekki raunin núna,“ segir hann. Halldór segir að salan hafi verið slík að um 30% aukningu sé að ræða það sem af er sumri og að hann hafi þurft að gera ráðstafanir til að fá aukasendingar frá birgjum, af vörum á borð við regnslár fyrir mann, hjól og búnað. Halldór segir viðskiptavini sína að stærstum hluta erlenda ferða- menn en einnig Íslendinga á leiðinni í sumarfrí. „Þeir aftur reyna að stíla svolítið inn á gulu kúluna, t.d. þeir Ís- lendingar sem geta farið austur þótt þeir hafi ætlað sér að fara norður. Ís- lendingarnir eru viljugri til að kú- venda ferðaplönunum,“ segir hann. Halldór stendur sjálfur vaktina í Fjallakofanum þessa dagana, enda allir kallaðir til sem vettlingi geta valdið. Hann segist þó ekki myndu sakna rigningarinnar. „Ég ætla ekki að óska þess að þetta verði svona allt sumarið, þetta er orðið ágætt,“ segir hann.  Eigandi Fjallakofans kvartar ekki yfir veðurfarinu  Salan hefur aukist um 30% það sem af er sumri  Erlendir ferðamenn búa sig eftir veðri en Íslendingar freista þess að elta sólina  Ekki allir jafn kátir Allt vatnshelt rýkur úr hillunum Morgunblaðið/Kristinn Rigningatíð Sunnanlands og vestan hefur verið vætusamt í sumar og ferðamenn orðið að klæðast eftir því. Útlit virðist vera fyrir ágæta berja- sprettu í sumar, skv. lýsingum fólks á vefnum berjavinir.com. Mörgum er tilhlökkunarefni að komast í ber þegar líða tekur á sumarið og geta áhugasamir vænst ágætrar upp- skeru, þó að vætutíð og kuldakast síðastliðinna vikna kunni að hafa sett strik í reikninginn. Á móti kemur að víðast hvar hefur verið hlýtt að undanförnu sem er gott fyrir sprettu. Grænjaxlar á Suðurlandi „Ég hef ekki kannað stöðuna sjálf. Hins vegar sé ég á veröndinni hér heima að dritið úr fuglunum er orðið blátt. Ætli það viti ekki á að einhver ber séu fullsprottin,“ segir Karólína Hulda Guðmundsdóttir, skógarbóndi á Fitjum í Skorradal, spurð um ber í Borgarfirði. Talsvert er síðan sást til fyrstu grænjaxla á krækiberjalygni á Suð- urlandi, segir Hreinn Óskarsson skógarvörður. Það segir hann hafa gefið ágæta vísbendingu um fram- haldið, að minnsta kosti hvað krækiberjum viðvíkur. Óljóst sé með aðrar tegundir. Oft sé þó gnægð berja að finna í skógum á svæðinu, í Þjórsárdal, Þórsmörk, Haukadal og víðar sunnanlands. Lýsingar úr Öskjuhlíð í Reykja- vík á berjavinir.com eru jákvæðar. Sagt er að grænjaxlar og sætu- koppar dafni vel. Þá berast góðar fréttir austan af landi. Anna Gerð- ur Hjaltadóttir, ferðaþjónustubóndi á Hafursá á Héraði, segir jafnvel líklegt að síðasta sumar, sem var afar gott, verði toppað. Vestur á fjörðum er staðan sögð ágæt og mikið leynist í lyngi ofan við Súða- víkurþorp við Álftafjörð. sbs@mbl.is Drit úr fuglun- um orðið blátt  Útlit fyrir ágæta berjasprettu í vætunni Morgunblaðið/Ómar Lyng Það er alltaf fallegt þegar blána fer yfir berjamó á sumrin. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Framkvæmdir eru nú að hefjast við smíði göngubrúar í vesturhöfninni í Reykjavík, sem liggur frá Sjóminja- safninu að svonefndri Verbúðar- bryggju sem varðskipið Óðinn ligg- ur við og er skammt frá Kaffi- vagninum á Grandagarði. Brúin verður 52 metra löng og er smíðuð úr gegnheilum bryggjuvið. Mann- virki þessu er ætlað að greiða leið gangandi vegfarenda um hafnar- svæðið sem nýtur vaxandi vin- sælda, til dæmis meðal ferðamanna, sem á Grandanum geta kynnst bryggjulífinu, hitt fiskimenn sem eru að landa afla eða skoðað stærstu togara flotans. „Við erum að hefja fram- kvæmdir þessa dagana. Teikningar ligga fyrir og allt er tilbúið,“ segir Andrés Ásmundsson, tæknifræð- ingur hjá Faxaflóahöfnum, sem hef- ur umsjón og eftirlit með þessum framkvæmdum. Verklok í nóvember Verktakafyrirtækið Knekti hf. átti lægsta tilboð í þetta verk, það er rétt tæpar 25 milljónir króna og var gengið til samninga við stjórn- endur þess. Framkvæmdum á að vera lokið 15. nóvember næstkom- andi. Það voru arkitektar frá Land- mótun ehf. sem hönnuðu brúna góðu. Svo hægt væri að hefjast handa um þessar framkvæmdir á Grandanum var stór 600 fermetra prammi sem Faxaflóahafnir eiga fluttur á staðinn. Mun hann gera mönnum verk þetta mun auðveld- ara en ella yrði. Fleki þessi var keyptur til landsins árið 1982 og var upphaflega akstursbrú fyrir ekjuskipin sem Eimskip var þá með í útgerð. Flotinn, eins og pramminn er oft kallaður, er alla jafna geymd- ur inn við Geldinganes og var á dögunum dreginn þaðan út sundin. Er þetta stykki oft notað við fram- kvæmdir á hafnarsvæðinu og hefur verið þarfaþing. Brú milli bryggja er tenging við sjómannslíf  Framkvæmdir í vesturhöfn  Flotinn þykir þarfaþing Morgunblaðið/Styrmir Kári Víkin Pramminn kominn á svæðið til undirbúnings fyrir brúarsmíðina yfir til varðskipsins Óðins. Kaupum alla bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Það eru ekki allir jafn ánægðir með rigningatíðina en hún hef- ur m.a. leikið málara grátt. „Hún er bara ekki að fara vel með okkur, það er ekkert flókn- ara. Þetta er svo ofboðslega ódrjúgt, það er alltaf einhver rigning á hverjum degi,“ segir Bjarni Þór Gústafsson, formað- ur Málarameistarafélagsins. Bjarni segir öll verk tefjast þegar veður er vott og segir marga mánuð á eftir áætlun og rúmlega það. Hann segir að enn eigi eftir að klára einhver verk sem töfð- ust vegna vætuveðurs sl. sumar en menn voni að haustið verði betra. Þá verði hægt að vinna fram eftir ef veður leyfir. Bleytan tefur málarana Á EFTIR ÁÆTLUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.