Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 33
Borðið var sérstaklega fallegt með svörtum dúk. Hópurinn byrjaði á að drekka túrmerikdrykk til að koma meltingunni af stað. Matseðill kvöldsins var óvenjulegur að því leyti að allir réttir voru kaldir og því þægilegt að útbúa þá með góðum fyrirvara. Ragnheiður Guðfinna með hin glæsilegu salöt. 19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma. Þær hafa verið handsmíðaðar í tæp 70 ár og hvert einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það hlýtur að vera öfundsvert starf að sjá um gæða- eftirlitið með öllu þessu ristaða brauði. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Brauðristar- gæðaeftirlit Fyrir 6 600 ml rjómi 6 vanillustangir 600 g hreint skyr 400 g hvítt súkkulaði 10 eggjarauður 180-200 g hrásykur 1 límóna, safinn smávegis sykur í viðbót fyrir toppinn sletta af Vastkust-villiberja- snafsinum En Back Snaps Skafið vanillukornin innan úr stöngunum og blandið þeim sam- an við rjómann og hitið í potti þar til suðan kemur upp. Slökkvið undir og bætið skyri út í blönd- una. Bræðið hvíta súkkulaðið í vatnsbaði og bætið því líka út í þegar það er bráðið ásamt lím- ónusafanum. Þeytið saman eggja- rauður og sykur og bætið út í. Setjið allt í lítil eldföst form og bakið í 40-60 mínútur í um 170°C heitum ofni, misjafnt eftir ofnum hversu lengi, en aðalatriðið er að blandan verði ekki fljótandi. Hægt er að skoða hvort eftirrétturinn er nægilega bakaður með því að taka formin og hrista þau, ef blandan hristist mikið í miðju má hún vera lengur inni í ofni en út- koman á að vera þannig að bland- an sé orðin stíf í formunum. Takið út úr ofninum, stráið smávegis sykri yfir og brennið með gas- brennara þar til hann er stökkur. Hellið að lokum nokkrum drop- um af villiberjasnafsinum yfir og svo í staup fyrir hvern og einn til að hafa með kaffinu. Créme brulée með skyri, hvítu súkkulaði og villiberjasnafsi Fyrir fjóra ½ kúrbítur 1 box sveppir 1 rauð paprika 4 lúkur ferskt spínat fersk basilíka eftir smekk 2 plómur, skornar í báta 450 g geitaostur, rifinn eða brytjaður 1 bolli kasjúhnetur 2 msk. tamarísósa 2 msk. hunang balsamsíróp Léttristið papriku, sveppi og kúrbít á heitri pönnu. Leggið spí- nat á hvern disk og ferska basilíku þar yfir. Setjið þá loks ristað græn- metið ofan á og plómurnar. Ristið kasjúhneturnar á pönnu upp úr tamarísósu og hunangi. Stráið hnetunum yfir og geitaostinum. Setjið svo balsamsírópið yfir. Geitaostur með ristuðu grænmeti

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.