Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014
Aganefnd knattspyrnu-sambands Evrópu, UEFA,dæmdi á föstudag Serbum
3-0-sigur í leik við Albaníu, sem var
stöðvaður í miðjum klíðum, en dró
um leið þrjú stig af Serbum.
Stöðva varð leikinn, sem fram fór í
Belgrað 14. október, af því að
stuðningsmenn heimamanna rudd-
ust inn á leikvanginn eftir að flyg-
ildi með albanskan áróðursfána var
flogið yfir hann. Á fánanum var
kort af „Stór-Albaníu“ þar sem
ekki var aðeins búið að innlima
Kosovo, heldur hluta af Serbíu.
Stigin voru dæmd Serbum á
þeirri forsendu að albönsku leik-
mennirnir hefðu neitað að halda
áfram að spila, en dregin af þeim
vegna óláta fyrir og á leiknum.
Albanar segja dóminn óréttlátan,
þeir hafi ekki neitað að spila áfram,
það hafi einfaldlega ekki verið
hægt, og hyggjast áfrýja.
Læti fyrir leik
Spenna hefur verið undirliggjandi
milli Serbíu og Albaníu og Serbar
eru enn ósáttir við að Kosovo, þar
sem mikill meirihluti íbúa er alb-
anskur, skuli hafa fengið sjálfstæði
í stað þess að heyra undir Serbíu.
Serbía og Albanía drógust saman í
riðil í undankeppni Evrópumeist-
aramótsins í knattspyrnu 2016 og
var ljóst að meiri spenna yrði í
kringum viðureignir þeirra en al-
mennt gerist um landsleiki.
Það kom líka á daginn. Ef marka
má lýsingu albanska knattspyrnu-
sambandsins köstuðu stuðnings-
menn serbneska liðsins grjóti í
rútu albanska landsliðsins á leið
þess á völlinn. Þegar leikmennirnir
voru að ljúka upphitun „rigndi yfir
þá smápeningum, kveikjurum og
öðrum hlutum þegar þeir gengu að
göngunum“ inn í búningsklefana.
Meðan á upphituninni stóð öskruðu
áhorfendur „drepið Albanana“ og
nokkrum tugum serbneskra stuðn-
ingsmanna tókst að ryðja sér leið
inn á völlinn.
Lætin héldu áfram eftir að leik-
urinn hófst. Smápeningum, kveikj-
urum, hörðum hlutum og flugeldum
var kastað inn á völlinn og sér-
staklega beint að þremur albönsk-
um leikmönnum, sem voru að hita
upp.
Þegar flygildið birtist með fán-
ann í eftirdragi á 41. mínútu fyrri
hálfleiks fór allt úr böndunum.
Serbneskur leikmaður stökk upp
og náði í fánann. Þá kom albanskur
leikmaður og hrifsaði hann af hon-
um. Brátt voru leikmenn farnir að
slást og lögregla reyndi að halda
aftur af áhorfendum, en mátti ekki
við margnum. Dómarinn ákvað að
stöðva leik-
inn og þegar
albönsku
landsliðs-
mennirnir
hlupu af velli
rigndi enn yfir
þá smáhlutum.
Forseti Serb-
íu, Tomislav Nikolic, sagði að það
hefði verið „augljós ásetningur“
þeirra, sem báru ábyrgð á flygild-
inu, að „kynda undir óreiðu í Serb-
íu og reyna að grafa undan stöð-
ugleika á svæðinu öllu“.
Málið tók á sig farsakennda
mynd þegar Ivica Dacic, utanrík-
isráðherra Serbíu, bætti um betur,
lýsti uppákomunni sem vandlega
skipulagðri „pólitískri ögrun“ og
sakaði bróður Edi Rama, forsætis-
ráðherra Serbíu, Olsi Rama, um að
vera á bak við allt saman. Héldu
serbnesk stjórnvöld því fram að
hann hefði setið í heiðursstúkunni á
vellinum með fjarstýringu og stýrt
flygildinu og handtóku hann, en
slepptu aftur. Olsi, sem var fagnað
eins og hetju þegar hann sneri aft-
ur til Albaníu, neitar.
Ólga í Serbíu og Kosovo
Eftir leikinn var ráðist á verslanir í
Serbíu í eigu Albana, rúður brotn-
að og eldsprengju hent inn í bak-
arí. Á leik Rauðu stjörnunnar í
Belgrað um helgina brenndu stuðn-
ingsmenn liðsins albanskan fána.
Í Pristina, höfuðborg Kosovo,
söfnuðust 5.000 manns saman, sem
höfðu verið að horfa á leikinn í
sjónvarpi, og hrópuðu „Stór-
Albanía“ og „sigur“. Daginn eftir
fóru hundruð menntaskólanema um
borgina og hrópuðu „Stór-Albanía“.
Á myndinni á fánanum í flygild-
inu voru sýndar útlínur Albaníu
eins og landið hefði auk Kosovo
verið sameinað svæðum þar sem
Albanar búa í Svartfjallalandi,
Makedóníu og suðurhluta Serbíu.
Ástandið hefur eitthvað róast
eftir að leikurinn fór fram. Enver
Hoxhaj, utanríkisráðherra Kosovo,
og Ditmir Bushati, utanríkis-
ráðherra Albaníu, heimsóttu Serbíu
á fimmtudag. Var þetta fyrsta
heimsókn utanríkisráðherra Kosovo
frá því að landið lýsti einhliða yfir
sjálfstæði 2008. Þegar Ivica Dacic,
utanríkisráðherra Serbíu, tók á
móti þeim kvað við annan tón en
eftir landsleikinn. Sagði hann að at-
burðirnir á leiknum sýndu „hvað
mikið þarf til að koma á stöðug-
leika á svæðinu … og hvað lítið
þarf til að eyðileggja það allt og
spilla samskiptum“.
Boltabál á
Balkanskaga
ALLT FÓR Í BÁL ER ALBANSKUR ÁRÓÐURSFÁNI Í FLYGILDI
BIRTIST ÞAR SEM SERBAR OG ALBANAR ÖTTU KAPPI. MÁL-
IÐ VARÐ FARSAKENNT ÞEGAR BRÓÐIR FORSETA ALBANÍU
VAR SAGÐUR HAFA STÝRT FLYGILDINU ÚR HEIÐURSSTÚKU.
Leikmenn Albaníu leita skjóls á meðan serbneskir áhorfendur láta smáhlutum rigna yfir þá á landsleiknum í Belgrað.
AFP
* Ég óttast að þessi hugmynd [um Stór-Albaníu] sé þvímiður martröð, sem aðeins er til í huga Serbíu. Hún hefuraldrei verið hluti af okkar áætlunum eða pólitísku markmiðum.
Ditmir Bushati, utanríkisráðherra Albaníu.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
Grunnt hefur verið á því góða
milli Albana og Serba í aldanna
rás. Eftir að Sovétríkin liðuð-
ust í sundur brutust út blóðug
stríð á Balkanskaga og gamla
Júgóslavía leystist upp í sex
hluta. Serbneski herinn barðist
við sveitir albanska meirihlut-
ans í Kosovo 1998-1999. 1999
gerði Atlantshafsbandalagið
loftárásir á Serba til að stöðva
þjóðernishreinsanir þeirra í
Kosovo. Loftárásirnar stóðu í
78 daga. Kosovo lýsti yfir
sjálfstæði 2008 og hafa
rúmlega 100 ríki viðurkennt
sjálfstæði landsins. Serbar
viðurkenna ekki
sjálfstæði Kos-
ovo.
Leikmaður
Serba, Stefan
Mitrovic, grípur
áróðursfánann.
SERBÍA OG KOSOVO
HEIMURINN
SVISS
Búið verður að fram
óla-veirunni í árslotilraunabóluefni við eb
að sögn ðisstofnunarinnarAlþjóðaheilbrig (WHO).
nda skammta verða tilbúinNokkur hundruð þúsu
mögulega verður hægt aðfyrir miðbik ársins og
mönnum í Vestur-Afríku upbjóða heilbrigðisstarfs
desember næstkomandi. Wbólusetningu strax á vara
killi bjartsýni, bólefniðeigi að síður við of mi
vorki lækhanna ágæti sitt. Sem stendur sé við ebólu.
rinn
M í Brasilíu
– fy
C co-leik
16 ð he
kn aðfest H
fær
NIRUNDÚ pna„Það er mér sönn ánægja a
ninguna í dagaUpplýsinga um@ScienceMus og
hérað hafa yndi af því að sk evona að fól
ðð stafni, sag i”
gar eru gerðar til sýningarinnar seMiklar væntinfyrsta tísti á langri ævi
ú ár hjá breska vísindasafninu.rjverið hefur í undirbún
Á AS Í
SY mu
h st
úk
að slá, fe ðgið
mikil tíð i í
uleikum
A