Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014
Græjur og tækni
Í ritgerð Anne Franzisku Müller frá Háskóla
Íslands kemur fram að 78,4% stúdenta
höfðu veðjað á netinu síðastliðið ár. 1.230
stúdentar tóku þátt í könnuninni og var
meðalaldur svarenda 29,63 ár. 33% voru
karlar en 67% konur.
Stúdentar veðja á netinu
Kíkt í framtíðina
með alvörutækni
GRÍÐARLEG EFTIRVÆNTING ER EFTIR NÝJUSTU TEIKNIMYND DISNEY, BIG HERO 6,
EFTIR VELGENGNI FROZEN. VIÐ FYRSTU SÝN VIRÐIST MYNDIN GERAST Í NÁNUSTU
FRAMTÍÐ EN FRAMLEIÐENDURNIR, SEM ERU ÞEIR SÖMU OG GERÐU FROZEN
OG WRECK IT RALPH, NOTAST EINGÖNGU VIÐ TÆKNI SEM NÚ ÞEGAR ER TIL.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Yfirlitsmynd yfir borgina þar sem Hiro og félagar búa, San Fransokyo. Borgin
er hálfgerð samsuða af San Francisco í Bandaríkjunum og Tókýó í Japan.
ið að undanfarin misseri. „Við
sáum þennan ótrúlega handlegg
sem þau hafa verið að vinna að
undanfarin ár. Hann getur
gert einfalda hluti nú þeg-
ar eins og að
bursta
tennur
en
möguleikarnir eru endalausir,“
sagði annar leikstjóri mynd-
arinnar, Don Hall, í kynning-
armyndbandi Disney.
Þegar Hiro og Baymax ákveða
að fara að berjast við vondu kall-
ana hannar Hiro á Baymax bún-
ing sem minnir
einna helst á
búning Járn-
mannsins
eða Iron Man. Búninginn hannar
hann í tölvu og prentar með þrí-
víddarprentun
sem er
komin
lengra í
þróun en
margan
grunar.
Kannski
ekki
alveg jafnlangt og myndin sýnir
en nú þegar er hægt að fá mat
prentaðan, sjúklingar geta fengið
grædda á sig prentaða húð og
svona mætti lengi telja.
Rafmagn í háloftunum
Borgin sjálf er auðvitað tilbún-
ingur þótt framleiðendur styðjist
við bæði San Francisco og Tókýó
enda kalla þeir hana San Franso-
kyo. Í myndinni er búið að búa
til 83 þúsund byggingar, 260 þús-
und tré, 215 þúsund götuljós og
100 þúsund farartæki. Þá bjó
Disney til forrit sem kallast Deni-
zen og býr til mismunandi andlit
á vegfarendur þannig að engin
tvö andlit í myndinni eru eins.
Forritið var notað fyrst í Frozen-
myndinni og bjó þá til snjókorn.
Á himninum yfir borginni sést
það sem virðist vera loftbelgir en
er í raun vindtúrbínur sem eiga
að beisla orku vindsins og búa til
rafmagn fyrir borgina. Þessi
tækni er nú þegar til og hönnuð
af fyrirtæki sem kallast Altaeros
Energies og er hluti af MIT-
tækniháskólanum í Boston.
Þótt myndin líti út eins og
framtíðarmynd er ekkert notað í
henni sem ekki er til nú þegar.
„Myndin er lítið ástarbréf til
tækninnar sem er að koma,“
sagði John Lasseter, æðsti
stjórnandi Disney-teiknimynd-
anna, í samtali við tæknivefinn
Engadget.com.
B
ig Hero 6-teiknimyndin
frá Disney er sögð eiga
að koma í kvikmyndahús
í nóvember en hún ger-
ist í borginni San Fransokyo,
sem er einhvers konar sam-
suða af San Francisco í
Bandaríkjunum og Tókýó í
Japan. Hún fjallar um ung-
lingspiltinn Hiro Hamada og
vin hans, vélmennið Baymax,
sem berjast við vonda kalla
og reyna að stöðva glæpi.
Þrátt fyrir alvarlegan undirtón
er myndin sögð bráðfyndin.
Þegar rúllað er yfir fyrstu
stiklu myndarinnar mætti
ætla að hún væri gerð í nán-
ustu framtíð en við nánari
skoðun kemur í ljós að tækn-
in á bak við myndina er öll
til.
Innblásið frá háskóla
Vélmennið Baymax er gert
úr uppblásnu efni og er
svokallað mjúkt vélmenni
(e. soft robot). Liðið á
bak við myndina, leik-
stjórar, teiknarar og
handritshöfundar, fór
í heimsókn í Carn-
egie Mellon-háskól-
ann í Pittsburgh
og skoðaði þar
mjúka vélmennið;
handlegg sem há-
skólinn hefur
hannað og unn-
Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Kúla kynnti í vik-
unni nýjustu vöru sína, Kúla Bebe – þrívíddar-
búnað fyrir linsur snjallsíma. Lausn Kúlu er sú
eina sinnar tegundar í heiminum þar sem hún
virkar á fjölmargar tegundir snjallsíma og hægt
er að skoða útkomuna með nánast hvaða þrívídd-
araðferð sem er.
Tækið er pínulítið og auðvelt að smella því á
símann. Með Kúlu Bebe fylgir Bíóbox Kúlu, sem
gerir notendum kleift að skoða myndirnar sam-
stundis í þrívídd.
Íris Ólafsdóttir, stofnandi Kúlu, segir að það sé
engu líkt að taka upp í þrívídd.
„Mér finnst hobbitar og geimverur mjög
skemmtileg í þrívídd en þau jafnast ekkert á við
að skoða þrívíddarmyndir af dóttur minni þegar
hún var lítil, ömmu og öllum dýrunum sem ég hef
ljósmyndað í þrívídd svo eitthvað sé nefnt.
Í sumar tók ég upp þrívíddarmyndskeið af
Dettifossi og Jökulsárgljúfri og þegar ég skoða
myndbandið renna eftir brún gljúfursins finn ég
fyrir lofthræðslu,“ segir Íris.
Íslensk þrívídd
ÍSLENSK VARA SEM NEFNIST KÚLA BEBE OG
ER TIL AÐ TAKA ÞRÍVÍDDARMYNDIR MEÐ
SNJALLSÍMUM VAR KYNNT Á FJÁRMÖGN-
UNARSÍÐUNNI KICKSTARTER Í VIKUNNI.
Markmið Írisar er að safna 40.000 bandaríkjadölum
sem svarar til tæplega 4,8 milljóna íslenskra króna,
til fjármögnunar á bæði Kúla Deeper og Bebe.
Vivino-smáforritið getur þekkt
vínflöskur með einni mynd og sagt
notandanum hvaða vín hann er að
fara að drekka, hvort það hentar
með matnum sem hann er með á
boðstólum, hvað meðalverðið er í
heiminum og sögu þess. Gert í
raun hvaða vínskussa að sérfræð-
ingi.
Forritið kom í google play store
og Apple-búðina árið 2011 og
fékk strax góðar viðtökur.
Rúmlega þrjár milljónir flaskna
eru í gagnagrunni appsins frá rúm-
lega 100 þúsund framleiðendum.
Danirnir Heini Zachariassen og
Theis Sondergaard eiga hugmynd-
ina að forritinu og er það alfarið
búið til í Danmörku en fyrirtækið
er núna með skrifstofur í San
Francisco, Úkraínu og Indlandi.
Vivino er frítt hjá Google og
Apple en þá birtast auglýsingar
með. Einnig er hægt að kaupa
forritið og þá birtast engin skila-
boð.
APP VIKUNNAR
Þekktu
vínflöskurnar
Frá vinstri:
Wasabi, Honey
Lemon, Hiro,
Baymax, Gogo
og Fred.