Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Side 41
26.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Ólíkt góðu rauðvíni verður ilmvatn ekki
betra með tímanum. Jafnvel ilmvatn í
óopnuðu glasi á það til að missa ilm sinn
með tímanum og er því áætlaður líftími
þess þrjú til fimm ár. Ilmvatn í dökkum
glösum dugir einnig lengur en ilmvatn í
glærum eða ljósum. Ilmvatn þarf að
geyma á köldum, dimmum stað og
forða því frá sólarljósi. Þar af leiðandi
eru skúffur eða skápar góðir staðir til
þess að geyma ilmvötn. Þá er einnig
mjög gott að geyma ilvötn í ísskáp en þó
geta matvörur dregið ilm þeirra í sig,
því ber að varast að hafa ilmvatsglasið
of náægt matvöru.
Baðherbergi eru til að mynda ekki
góður staður til ilmvatnsgeymslu þar
sem mismunandi rakastig baðherberg-
isins hefur slæm áhrif á gæði ilmsins.
Þegar talað er um að ilmvötn skemm-
ist finnst það yfirleitt á því að lyktin
dofnar eða liturinn verður gulleitari,
þykkari eða lyktin verður vond.
Þá endast gjarnan þyngri ilmir lengur
og léttir sítrusilmir geta skemmst örlít-
ið fyrr. Getty Images/Fuse
Ilmurinn endist
best í ísskáp
Leikkonan Halle Berry hefur hann-
að undirfatalínu fyrir verslunar-
keðjuna Target. Línan sem ber heit-
ið „C’est un scandale“, er innblásin
af vönduðum, frönskum und-
irfötum.
Halle Berry, sem er gift franska
leikaranum Oliver Martinez, segir
eiginmanninn hafa kennt sér ým-
islegt um undirföt. Berry segir
franskar konur hafa mikinn áhuga á
undirfötum og þær vilji sífellt vera
að uppfæra nærfötin sín.
Undirfötin úr línu Bery eru afar
ódýr og kosta frá sjö dollurum.
Leikkonan Halle Berry sækir inn-
blástur til franska undirfata.
AFP
Halle Berry
hannar
undirfatalínu
Í stað þess að fara í augnháralitun
er nú kominn maskari á markað
sem helst á augnhárunum í 72 tíma
og sparar þér þar af leiðandi tíma á
morgnana. Cils Lash Tint Bare
Sensation-maskarinn frá Lancôme
er fullkominn í ferðalagið eða bú-
staðinn eða til þess að spara tíma á
morgnana.
Maskarinn helst á augnhárunum í 72
tíma og hentar vel í helgarfríið.
AFP
Maskari
sem endist
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mc Planet & 3322
Mikið úrval af árshátíðar- og jólakjólum!