Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 44
Fjármál heimilanna AFP *Hver vill ekki vera lögfræðingur eða læknir? Við-skiptajöfur eða valdamikill pólitíkus? Kannski er samtvert að skoða óhefðbundnari störf, sem gefa samt vel íaðra hönd. Hvern hefði t.d. grunað að græða má mik-ið á að kafa eftir golfkúlum. Bandarískir golfkúlukaf-arar, sem hreinsa tjarnir golfvalla geta vænst 6-12 millj-óna króna í árslaun. Algeng árslaun hjá fólki sem þrífur vettvang glæpa eru 6 milljónir og þeir sem starfa við að undirbúa lík fyrir greftrun fá um 5,5 milljónir á ári. Undarleg störf fyrir ágæt laun Á sunnudag kl. 16 mun Ágúst Ólafsson halda ljóðasöngstónleika í Hannesarholti. Gerrit Schuil spilar á píanó og verða flutt verk eftir J. Brahms. Hvað eruð þið mörg á heimilinu? Við erum tvö, ég og kærasta mín, Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Egg, lýsi, epli og grænmeti í morgunorku- drykkinn. Svo pössum við okkur á að eiga allt- af hvítlauk, hann fer í flestalla rétti heimilisins. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Höfum bara aldrei tekið það saman beint og svo kaupum við oft til skiptis inn og því erfitt að henda reiður á því. Hvar kaupirðu helst inn? Í Bónus og Krónunni þar sem þær verslanir bjóða upp á besta verðið, en við förum reglu- lega í kaupleiðangra í Víði til að kaupa fersk- vörur og Kost til að kaupa magnpakkningar eða einstaka vörur á tilboðsverði. Hvað freistar helst í matvörubúðinni? Lífrænu vörurnar hafa sérlega mikið aðdrátt- arafl af einhverjum sökum. Lífræna teið er svo ómótstæðilegt að tehillan er orðin stútfull. Það er því búið að loka á frekari tekaup þang- að til birgðir hafa minnkað verulega. Hvernig sparar þú í heimilishald- inu? Með því að finna hagstæðasta verðið og kaupa ekki of mikið. Synd að þurfa að henda mat. Hvað vantar helst á heimilið? Frystikista er ofarlega á listanum. Eyðir þú í sparnað? Frystikistan myndi víst flokkast undir eyðslu í sparnað. Skothelt sparnaðarráð? Tja… nú veit ég ekki um skothelt enda ekki víst að ráðið henti öllum, en ég þyk- ist hafa sparað mér heilmikið á því að kaupa mér ekki kort í líkamsrækt síðan ég fluttist aftur heim til Íslands. Skokka bara þegar veður leyfir og syndi annars. Það er svo mikil snilld að geta að sundi loknu rennt sér niður spennandi vatns- rennibraut, jafnvel þótt maður þurfi að þola glottið í fullorðna fólkinu í pottinum á eftir. ÁGÚST ÓLAFSSON SÖNGVARI Með hillu fulla af lífrænu tei Ágúst segist m.a. spara með því að kaupa ekki lík- amsræktarkort en skokka og synda í staðinn. Morgunblaðið/Ómar Aurapúkinn veit að það er dyggð að fara vel með peninga, en hann veit líka að allt er gott í hófi. Það minnti Púkann á gidi hóf- seminnar þegar hann sá glefsu úr sjónvarpsþáttunum Extreme Cheapskates. Þar var skyggnst inn í líf bandarískrar fjölskyldu sem gengur svo langt í sparnaðinum að allir fjölskyldumeðlimir baða sig úr sama, kalda baðvatninu. Í stað salernispappírs notar fjöl- skyldan gömul dagblöð sem hún fær gefins. Verst er að greinilegt er að unglingurinn á heimilinu líður fyrir þessar öfgar í sparnaði. Það gerir engum gott að vera alinn upp á heimili þar sem ekki má eyða krónu. Að mati Púkans ætti fólk að gæta sín á því að ganga ekki of langt í sparseminni. Lífið er verðmætara en svo að hægt sé að sóa ævinni í litlausan og bragðlausan meinlætalifnað. Það er eitt að hafa ekki kampavín og kavíar í hvert mál, og annað að lifa ekki á öðru en vatni og brauði. púkinn Aura- Ekki spara of mikið F yrr í vikunni var Mark Zuc- kerberg gestur á ráðstefnu við Tsinghua-háskólann í Beijing. Þegar hann fékk hljóðnemann í hendurnar tóku gestir andköf. Zuckerberg talaði nefnilega við hópinn á reiprennandi kínversku. Kom í ljós að samhliða því að stýra vinsælasta samfélagsvef heims og raka saman milljörðunum hafði tíundi ríkasti maður heims dundað sér við að ná valdi á einu erfiðasta tungumáli sem læra má. Zuckerberg hefur það víst fyrir sið að takast á við eina stóra per- sónulega áskorun ár hvert og árið 2010 var áskorunin að læra mand- arín. Hefur þar eflaust haft áhrif að eiginkona Zuckerbergs er af kínverskum uppruna og segist tæknijöfurinn m.a. hafa viljað læra málið til að geta kynnst betur kín- verskumælandi tengdafólki sínu. Naskir blaðamenn hafa þó bent á að kannski sé besta ástæðan fyr- ir tungumálanámi Zuckerbergs að Facebook er lokað í Kína. Ef tungumálakunnátta hans dugar til að heilla Kínverja upp úr skónum og losa um hömlurnar þá myndi aðgangur að kínverskum netnot- endum vera milljarða virði. Nokkrar milljónir yfir ævina En ekki eru allir Zuckerberg og við hæfi að spyrja hvers virði það sé fyrir hinn almenna borgara að læra erlent tungumál. Bandarískar rannsóknir benda til að heilt yfir sé ávinningurinn lít- ill, en mjög breytilegur eftir því hvaða tungumál fólk lærir. Albert Saiz við Pennsylvaníuhá- skóla reiknaði það út að dæmigerð- ur Bandaríkjamaður geti reiknað með 2% launahækkun, að jafnaði, út á það að að tala fleiri en eitt tungumál. Spænskukunnátta gefur minnst í aðra hönd, eða 1,5% hækkun, franskan skilar 2,3% hækkun og þýska 3,8%. Þetta eru ekki háar fjárhæðir en safnast upp yfir ævina, sérstaklega ef fólk er með meiri menntun og þar af leiðandi hærri viðmiðunar- laun. The Economist reiknar út að miðað við u.þ.b. 5,4 milljónir króna í byrjunarárslaun verði 2% launa- hækkun að um 8 milljónum króna yfir 40 ára starfsævi. Sá sem talar fína þýsku og fær 3,8% hærri laun hagnast, miðað við sömu forsendur, um 15,6 milljónir yfir ævina. Munurinn á arðsemi tungumál- anna virðist helst liggja í því að í Bandaríkjunum eru spænskumæl- endur fleiri og þýskumælendur mun færri. Reglur framboðs og eftirspurnar virðast því ráða hvaða mál gefur mest í aðra hönd. Námslán í boði En hvað þýðir þetta fyrir Íslend- inga? Fyrst er að reyna að velja mál sem er eftirsótt á vinnumark- aðinum og ekki talað (vel) af of mörgum. Það gæti t.d. verið að spænskukunnáttan sé verðmætari hér á landi því spænskumælandi eru frekar fágætir borið saman við t.d. þýsku- og frönskumælandi. Svo er rétt að minna á að LÍN lánar fyrir tungumálanámi við út- lendingadeidir háskóla erlendis, að vissum skilyrðum uppfylltum, í eitt til þrjú misseri eftir því hvaða tungumál fólk hyggst læra. Gæti verið ógalið að taka syrpu í Istanbúl, Moskvu eða Tókýó og sjá hvað það gerir fyrir launamögu- leikana að geta „tekið Zuckerberg- inn á þetta“ á næstu ráðstefnu eða viðskiptafundi. MONTREZ-MOI L‘ARGENT Borgar sig að læra erlend tungumál? BANDARÍSKAR RANNSÓKNIR BENDA TIL ÞESS AÐ TUNGUMÁLAKUNNÁTTA HAFI FREKAR LÍTIL ÁHRIF Á TEKJUMÖGULEIKA FÓLKS, EN ÞAR MEÐ ER EKKI ÖLL SAGAN SÖGÐ. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Facebook-milljarðamæringurinn Mark Zuckerberg kom öllum á óvart með því að halda uppi samræðum á kín- versku í 30 mínútur. Ef það blíðkar kínversk stjórnvöld gæti samfélagsvefurinn risavaxni grætt marga miljarða. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.