Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 56
Event, verk eftir Sigurð Guðmundsson frá árinu 1974. Þ essi verk Sigurðar Guðmunds- sonar frá áttunda áratugnum eru meðal eftirlætisljósmynda- verka minna og þá er ég að tala um alla ljósmyndasöguna,“ sagði sænskur galleristi við mig í Berlín í liðinni viku. Og mikil hrifning erlendra listáhuga- manna á þessu merka tímabili í listsköpun Sigurðar eru ekki nýjar fréttir; þegar ég setti ásamt fleirum upp sýningu á verkum úr íslenskri ljósmyndasögu í Moskvu fyrir rúm- um áratug voru þetta til að mynda verkin sem þarlendir sýningargestir þekktu og kom ekki á óvart; þau hafa verið sýnd í söfnum víða um lönd og haft áhrif víða. Saman eru þau iðulega kölluð „Situations“ og eru án efa með því merkasta sem íslenskur myndlist- armaður hefur lagt til alþjóðlegrar listasögu. Á dögunum kom út myndarleg bók, Danc- ing Horizon – Ljósmyndaverk Sigurðar Guð- mundssonar 1970-1982, á vegum Crymogeu og var útgáfunni fagnað í Amsterdam í hinu þekkta samtímalistasafni Stedelijk Museum, um leið og þar var opnuð sýning á verkum listamannins úr eigu safnsins. Sigurður bjó um langt árabil í Hollandi, er vinsæll og virt- ur listamaður þar, en hann býr nú að mestu í Kína. Þegar við setjumst niður til að ræða nýju bókina, sem veitir endanlegt yfirlit yfir ljósmyndaverk þessara tólf ára, kemur í ljós að verkin voru flest sköpuð í Hollandi. „Já, þessi verk voru nær öll sköpuð í Hol- landi. Og umsögnin sem ég fékk oft þar var hvað ég færi vel með íslenskt landslag!“ seg- ir Sigurður og hlær. „Það er svo skáldlegt íslenska landslagið, eitthvað annað en hjá okkur Hollendingum, sögðu þeir. Einu sinni á þessum tíma, árið 1977, fór ég í Íslandsferð og hugsaði mér gott til glóð- arinnar. Ég ætlaði að skapa nokkur verk í leiðinni og nota hreinan himin – því ég var farinn að lenda í vandræðum í Hollandi vegna þess hve mikið var af flugvélarákum á himninum þar – og náttúru sem væri laus við símastaura og raflínur. Ég var með mót- aðar hugmyndir að verkum sem ég hugðist gera.“ Sigurður opnar bókina og bendir á tvö verk, Possibilities, þar sem hann sést standa við dúkað borð úti í náttúrunni og á því eru steinn, skór og pera, og Short Dioscovery, þar sem hann sést benda á stein með fingri sem logandi stjörnuljós er fest við. „Ég ætlaði að gera miklu fleiri verk en þegar ég kom út í íslenskt landslag þá var það of sterkt. Ég fann ekki jafnvægið sem ég þurfti á að halda, náttúran var of yfir- þyrmandi. Ég áttaði mig á því hvað hol- lenskt landslag var hlutlaust, svo dauft. Ís- lenska landslagið kæfði mig með mína litlu póesíu. Verkin urðu aðeins tvö í ferðinni.“ – Íslensk listasaga segir frá fjölda ís- lenskra listamanna sem læra og starfa er- lendis og vinna þá út frá nærumhverfi sínu þar, mannlífi og borgum, og láta hugann jafnvel ekki hvarfla að náttúru, en þegar þeir snúa heim til Íslands fer náttúran hér að seytla inn í verkin. „Jú, en náttúran dúkkaði ekki meira upp hjá mér, því ég hljóp til baka til Hollands,“ segir Sigurður. „Eins og mér finnst íslensk náttúra mögnuð og allt það þá náði ég ekki í henni þessu perfekt sambandi milli mann- gerðs ljóðs og náttúru. Að úr þessu tvennu yrði ein heild.“ – Var íslenska náttúran of frek? „Já,“ segir hann. Ákveðin póesía, tilvist og ást Nokkrar bækur hafa verið gefnar út um myndlist Sigurðar. Hann hefur unnið í ýmsa miðla og þekkja margir til að mynda skúlptúra hans, á borð við eggin á Djúpavogi, „Eggin í Gleðivík“, og fægða grjótið við Sæbraut í Reykjavík, „Fjöruverk“, auk bókanna sem hann hefur skrifað: Tabúlarasa (1993), Ósýni- lega konan (2000) og Dýrin í Saigon (2010). Í útgáfum um myndlist hans hefur verið ítarlega fjallað um ljósmyndaverkin en í nýju bókinni er hins vegar endanleg skrá yfir þau öll og út- gáfur á þeim, auk inngangs Lily van Ginne- ken, og þá er birt samtal ritstjórans, Kristínar Dagmarar Jóhannesdóttur, við listamanninn. „Mikil rannsóknarvinna liggur að baki þess- ari bók,“ segir Sigurður og styður fingri á kápu nýja verksins. „Fyrri bækur voru óná- kvæmar. Hér er þetta allt rétt, allar upplýsingar; þetta er catalogue raisonné. Nú verður flett upp í þessari bók til að vita hvað er satt og rétt um þessi verk.“ Og Sigurður er ánægður með útkomuna, hrósar vinnu þeirra sem komu að verkinu, hönnun, skrifum sem prentverki. „Viðtökurnar í Stedelijk-safninu á dögunum voru mjög góðar. Um leið settu þeir upp þessa sýningu með verkum úr bókinni, safnið þar á mörg, alls á það yfir fimmtíu verk eftir mig; auk ljósmyndaverka á það skúlptúra og annað slíkt. Ég var hissa á því hvað þeir sögðust eiga mikið. En í gegnum það fjögurra ára ferli sem unnið var að bókinni var hrist upp í ýmsum safneignum og leiðréttingar gerðar. Sum verk- anna höfðu jafnvel verið römmuð vitlaust inn, þannig að ekki sást nema helmingurinn af þeim.“ Sigurður brosir. „Það þurfti að fara gegnum þetta allt saman og á Evrópuferðum mínum var ég kallaður í geymslur safna að fara yfir verkin. Í þessari bók er þessi hluti ferils míns tæmdur, hvað ljósmyndaverkin varðar, því ég gerði vissulega objekta og ýmis önnur verk á sama tíma.“ – Þessi verk hafa notið mikillar hylli gegn- um árin. „Já, um allan heim. Ég hef oft verið spurður hvers vegna þau hafi orðið þetta vinsæl. Án þess að ég geti fullyrt eitthvað um það, þá tel ég skipta máli að innihald þeirra er ekki dæg- urmál líðandi stundar. Sumir listamenn gera pólitísk verk, um aðskilnaðarstefnu eða eitt- hvað annað, og það er hið besta mál, en ég get ímyndað mér að slík verk eldist á fjörutíu ár- um. Andi þessara verka hér er ákveðin póesía, tilvist og ást, vangaveltur um dauðann og lífið; allt eru þetta umfjöllunarefni sem fyrnast ekki í mannheimi. Þetta eru sammannlegir þættir og ég hugsa að það skipti máli …“ Hlegið inn í myndlistarverk Elstu ljósmyndaverk Sigurðar, frá því um 1970, sýna þá Kristján bróður hans saman með hugsana- og talblöðrur eins og í teikni- myndum; í Horizontal Thoughts sitja þeir saman í fjöru og hugsa um hafið, eins og sjá má í hugsunum úr frauðplasti sem standa upp af höfði þeirra. Í Eight Poems frá 1971 hefur átta hlutum verið raðað á gólf, inniskóm, lykl- um, brauði og fleiru, og eru hlutirnir taldir upp á textaspjaldi sem er jafnstórt ljósmynd- HEILDARYFIRLIT LJÓSMYNDAVERKA SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR FRÁ 1970 TIL 1982 KOMIÐ ÚT Á BÓK Skemmtilega tímasettar minningar „NÚ VERÐUR FLETT UPP Í ÞESSARI BÓK TIL AÐ VITA HVAÐ ER SATT OG RÉTT UM ÞESSI VERK,“ SEGIR SIGURÐUR GUÐMUNDSSON MYNDLISTARMAÐUR UM NÝJA BÓK ÞAR SEM FJALLAÐ ER UM LJÓSMYNDAVERK HANS. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Collage, 1979. Maður - Sigurður í fósturstell- ingu - og höfuðskepnurnar loft, jörð og eldur. Horizontal Thoughts, eitt elstu ljósmyndaverka Sigurðar, frá árunum 1970/71. 56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014 Listahátíðin 700IS Hreindýraland verður opnuð í níunda sinn í dag, laugardag, klukkan 17, í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þema hátíð- arinnar í ár er ljóð á skjá, þar sem bæði er unnið með listafólki sem vinnur með vídeó og hljóð og texta og ljóð. Sett hafa verið upp vídeóverk víða um Sláturhúsið, eins og undanfarin ár, og mega gestir búast við því að húsið sjálft verði not- að fyrir sýningu utanhúss. Fjölbreytileg verkin á sýningunni að þessu sinni eru frá Íslandi, Finnlandi, Danmörku, Frakklandi, Hong Kong, Þýskalandi og Sví- þjóð. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Kristín Scheving sem nýverið opnaði nýja raf- listadeild í Listasafni Íslands, Vasulka-stofu, og er hún deildarstjóri þeirrar deildar. 700IS HREINDÝRALAND OPNAÐ LJÓÐ Á SKJÁ Stilla úr kvikmynd Marie Thams, Postman’s White Nights, sem verður sýnd á þriðjudag. Dansflokkurinn frumsýnir verkið EMO1994 eftir norska danshöfundinn Ole Martin Meland. Morgunblaðið/Þórður Undir yfirskriftinni „Emotional“ frumsýnir Ís- lenski dansflokkurinn í Borgarleikhúsinu í kvöld, laugardagskvöld, tvö verk eftir unga og efnilega danshöfunda; „Meadow“ eftir Brian Gerke og „EMO1994“ eftir Ole Martin Meland. Gerke hefur verið búsettur hér á landi frá 2007 og hlotið Grímuverðlaun. Við gerð verksins sækir hann innblástur til æskuslóða sinna í Montana í Bandaríkjunum. Útkoman er hugnæmt dansverk sem reynir á tæknilega færni dansaranna. Verk Melands er sagt hrátt, kraftmikið og líkamlega krefjandi. Höf- undurinn starfar með dansflokki í Noregi. ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN EMOTIONAL Anna Jónsdóttir sópr- ansöngkona heldur tvenna útgáfutónleika nú um helgina í tilefni af útgáfu hljómdisksins „Var“. Á honum eru fimmtán þjóð- lög sem Anna syngur án meðleiks, að undan- skildum tveimur lögum þar sem Svavar Knútur leikur með henni á harmóníum. Fyrri tónleikar Önnu verða í Ásmundar- safni í dag, laugardag klukkan 17, og þeir síð- ari í Akranesvita á morgun, sunnudag klukk- an 15. Hljómdiskurinn var hljóðritaður á tveimur stöðum, í lýsistanki gamallar yfirgefinnar síld- arverksmiðju í Djúpavík á Ströndum og í Akranesvita. Að sögn Önnu var hljómburð- urinn í tankinum í Djúpavík svo fullkominn að meðleikur var óþarfur. ÚTGÁFUTÓNLEIKAR VAR ÖNNU Anna Jónsdóttir Menning

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.