Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014
Þetta er gamall draumur. Nokkur kæmu til
greina en mér finnst líklegt að ég myndi lýsa
yfir stuðningi við enska fótboltafélagið Ever-
ton: Tryggvi Everton? Tryggvi Toni? Sjáum til.
Tryggvi Þór Gunnarsson, 49 ára.
Nei, ég er ánægð með mitt nafn.
Vala Tryggvadóttir, 39 ára.
Nei, ég myndi ekki vilja taka upp ættarnafn.
Ég er mjög ánægð með nafnið mitt.
Helga Ingibjörg Jóhannsdóttir, 49 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ég myndi að sjálfsögðu taka upp ættarnafnið
Hörgdal. Fæddur, uppalinn og búsettur í
Hörgárdal og er einmitt að leika núna í Verk-
smiðjukrónikunni hjá Leikfélagi Hörgdæla.
Bernharð Arnarson, 35 ára.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
SPURNING DAGSINS Á AKUREYRI EF LEYFT VERÐUR AÐ TAKA UPP ÆTTARNAFN AÐ VILD, MYNDIR ÞÚ VILJA BERA SLÍKT OG ÞÁ HVAÐ?
Í BLAÐINU
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari er
kominn á mála hjá einni virtustu umboðsskrifstofu
klassíska heimsins. Hann hefur þungar áhyggjur af
stöðu tónlistarkennslu í landinu. Menning 54
Morgunblaðið/Kristinn
EDDA BJÖRG
EYJÓLFSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Lofar ofsa-
lega ofsa-
fengnum leik
Forsíðumyndina tók
Ómar
Hver man ekki eftir Benjamín
dúfu? Eða Stellu í orlofi? Veiði-
ferðinni jafnvel, frá árinu 1980?
Sunnudagsblaðið rifjar upp nokkr-
ar fjölskyldumyndir sem síður en
svo eru börn síns tíma. Hér eru
á ferðinni sannkallaðar kvik-
myndaperlur fyrir fjölskylduna.
Fjölskyldan 16
Inga Gottskálksdóttir, eig-
andi verslunarinnar Gottu á
Laugavegi, er ávallt flott til fara.
Inga, sem leggur áherslu á gæði í
efnum og vönduð snið, segir fata-
stíl sinn einkennast af kasm-
írpeysum, gallabuxum og töff-
aralegum kjólum. Tíska 40
Guðni Einarsson
heillaðist af hrein-
dýraveiðum, ekki
síst félagsskapnum, um
leið og hann fór fyrstu
ferðina. Í nýrri bók
ræðir Guðni við gam-
alreynda veiðimenn
og aðra yngri og segir sögu hreindýraveiða á Íslandi.
Hann tileinkar bókina Hallfreði Emilssyni, veiðifélaga
sínum, sem dó í haust. Landið og miðin 12
Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona fer með eitt af aðalhlutverkum í leiksýn-
ingunni Ofsa sem er frumsýnd um helgina í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
Ofsi fjallar um átök á Sturlungaöld og er byggð á skáldsögu Einars Kára-
sonar sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2008 fyrir. Edda leik-
ur einnig í skemmti- og grínþáttunum Stelpurnar sem sýndur er á Stöð 2
og einnig leikur hún um þessar mundir í sýningunni Konan við 1000°.
Hvert er hlutverk þitt í Ofsa?
Ég leik Þuríði Sturludóttur, eiginkonu Eyjólfs ofsa.
Lofarðu gestum ofsalega ofsafenginni
sýningu?
Já. Ég lofa ofsalega góðri sýningu og ofsafengnum leik og
hljóðfæraslætti.
Hvað er Aldrei óstelandi?
Aldrei óstelandi er leikfélag sem við Marta Nordal stofn-
uðum árið 2010. Fyrsta sýningin okkar var Fjalla-
Eyvindur sem fékk gríðarlega góðar viðtökur, síðan var
það Sjöundá, því næst Lúkas eftir Guðmund Steinsson og
nú í kvöld frumsýnum við Ofsa eftir Einar Kárason. Við erum
ofsalega ánægð með hvað gengur vel og hlökkum til að taka á
móti sem flestum í Kassanum, Þjóðleikhúsinu.
Hvort ertu meira fyrir, grínleik eða alvörugef-
inn leik?
Ég heillast bæði af gríni og alvöru og helst blöndu af hvoru
tveggja í senn; þessi grátbroslegu atvik í lífinu, það er gaman að
leika þau.
Þú ert hluti af gríngenginu Stelpurnar, er það
ekki fáránlega skemmtilegt?
Það er alveg hrikalega gaman að vera hluti af Stelpunum. Þetta
er ofsalega góður félagsskapur og skemmtilegt grín.
Hvað er á döfinni?
Núna taka við hjá mér sýningar á Ofsa og áframhaldandi sýn-
ingar á Konunni við 1000 gráður. En auðvitað er ýmislegt sem
gæti orðið að veruleika og annað sem bíður þess að verða tekið
fyrir, hugsanlega einleikur, svo það eru bjartir og spennandi
tímar framundan.