Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Upplýsingalög voru fyrst sett ár- ið 1996 en breytt 2012. Þá var bætt við grein um markmið lag- anna og með því skerpt á hlut- verki fjölmiðla og skyldum hins opinbera gagnvart fjölmiðlum. Markmið laganna er „að tryggja gegnsæi í stjórnsýslu og við meðferð opinberra hagsmuna m.a. í þeim tilgangi að styrkja: 1. upplýsingarétt og tjáning- arfrelsi, 2. möguleika almennings til þátttöku í lýðræðissamfélagi, 3. aðhald fjölmiðla og almenn- ings að stjórnvöldum, 4. möguleika fjölmiðla til að miðla upplýsingum um opinber málefni.“ Skyldur hins opinbera til að upplýsa fjölmiðla og almenning eru því ríkar. AÐ STYRKJA AÐHALD FJÖLMIÐLA ER EITT AF MARKMIÐUM UPPLÝSINGALAGA Að segja en ekki þegja Starfsmönnum sem bera titilinnupplýsingafulltrúi hefur fjölg-að á undanförnum árum hjá ýmsum stofnunum sem kostaðar eru af almannafé. Í hverju ráðuneyti er upplýsinga- eða fjölmiðlafulltrúi, margar undirstofnanir ráðuneyta hafa ráðið til sín sérstakan upplýs- ingafulltrúa, Reykjavíkurborg er með miðlægan upplýsingastjóra en undir hann heyra níu manns í upp- lýsinga- og vefdeild sem starfar þvert á svið og skrifstofur borgar- innar. Kópavogsbær er með upplýs- ingafulltrúa sem og mörg af fyrir- tækjum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá ráðu- neytum og Reykjavíkurborg var fyrst ráðið í starf upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg 1987, hjá um- hverfisráðuneyti hefur verið upplýs- ingafulltrúi frá 1992 en hjá öðrum ráðuneytum og undirstofnunum þeirra hafa upplýsingafulltrúar bæst við starfsliðið á undanförnum áratug eða svo. Ber skylda til að upplýsa Það er vel þekkt að í stórum fyrir- tækjum séu starfandi upplýsinga- fulltrúar, sem hafa þann starfa að halda utan um allar upplýsingar sem birtar eru um fyrirtækið, innan þess og utan. Eðli málsins sam- kvæmt snýst starfið að miklu leyti um það að passa upp á að jákvæðar upplýsingar komist á framfæri en minni áhersla er jafnan á það hjá upplýsingafulltrúum að koma á framfæri við almenning fregnum sem eru minna jákvæðar fyrir við- komandi fyrirtæki. Þannig reyna fyrirtæki að stýra umfjöllun um sín mál þannig að jákvæðu fréttirnar fái meira pláss en aðrar sem kunna að vera óþægilegar. Þegar í hlut eiga sveitarfélög, ráðuneyti eða stofnanir hins op- inbera lýtur þetta starf hins vegar öðrum lögmálum, því þessar stofn- anir heyra undir upplýsingalög og á þeim hvílir lagaleg skylda til að upplýsa almenning og fjölmiðla. „Upplýsingafulltrúum hefur fjölg- að mikið á meðan fréttastofur hafa verið að skera niður. Þetta er ekki góð þróun,“ segir Valgerður Jó- hannsdóttir aðjunkt við Háskóla Ís- lands og umsjónarmaður með námi í blaða- og fréttamennsku. Hún bendir á að hlutverk upplýsingafull- trúa fari ekki alltaf saman við hlut- verk fjölmiðla. „Með þessu er verið að stýra upplýsingaflæðinu því hlutverk upp- lýsingafulltrúa er fyrst og fremst að koma á framfæri sjónarmiðum vinnuveitandans á meðan hlutverk blaðamanns er að vera fulltrúi al- mennings, eða lesenda sinna og áhorfenda, og afla upplýsinga fyrir þá,“ segir Valgerður. Fleiri í að stýra upplýs- ingum en afla þeirra? Þróunin hér á landi er ekkert eins- dæmi. Í Bretlandi hafa blaðamenn haft áhyggjur af fjölgun þeirra sem hafa þann starfa að stýra upplýs- ingum sem koma frá hinu opinbera á sama tíma og skorið er niður á ritstjórnum. Á dögunum fjallaði PressGazette, fréttavefur um mál- efni blaða- og fréttamanna, um þá staðreynd að hjá bresku ríkisstjórn- inni (central government) eru 1.500 manns starfandi sem upplýsinga- fulltrúar eða við upplýsingagjöf (communications staff). Rætt er við nokkra blaðamenn í frétt um málið. „Ég hafði ekki áttað mig á að svo fjölmennur her manna starfaði við það að neita að svara spurningum og vera óhjálpleg,“ er haft eftir Ke- vin Maguire, aðstoðarristjóra Daily Mirror. Blaðamaður Guardian bend- ir á að það styttist í að fleiri upplýs- ingafulltúrar en blaðamenn fylgist með því sem gerist í þinghúsinu. Meðal blaðamanna hér á landi hefur í mörg ár farið fram umræða um það hvort fjölgun upplýsingafull- trúa þjóni þeim tilgangi að veita upplýsingar eða stýra þeim og jafn- vel hindra upplýsingar. „Við erum vön því hér að hafa nokkuð greiðan aðgang að ráða- mönnum og þeim sem taka ákvarð- anir. En þarna er kominn milliliður sem blaða- og fréttamönnum finnst stundum tefja störf þeirra. Á sama tíma er krafan um að birta fréttir sem fyrst er orðin enn ríkari, það er orðið stöðugt „deadline“ hjá blaða- og fréttamönnum. Þeir sem gegna stöðum almannatengla og upplýs- ingafulltrúa hafa sínar siðareglur og myndu aldrei skrifa upp á það að þeirra hlutverk sé beinlínis að fela upplýsingar. Hins vegar held ég að því verði ekki mótmælt að það sé reynsla blaðamanna að það sé reyndin of oft. Andinn í stjórnkerf- inu, burtséð frá lagasetningunni, virðist því miður vera þannig að blaðamönnum sé ekki treystandi til að fá upplýsingar og meta sjálfir, heldur þurfi að matreiða þær ofan í þá,“ segir Valgerður. Sú meginregla gildir nú hjá ráðu- neytum og hjá borginni að öllum fyrirspurnum fjölmiðla skuli beint til upplýsingafulltrúa. Oftar en ekki hafa þeir þó takmarkaðar upplýs- ingar og þurfa því sjálfir að afla þeirra innan úr viðkomandi stofnun. „Þetta er þróun sem hefur verið alls staðar í löndunum í kringum okkur. Það hefur fjölgað mjög í þessari stétt. Stundum finnst manni þó að með þessu sé búið að búa til þrösk- uld eða millilið þar sem maður skil- ur ekki af hverju það er nauðsyn- legt. Það er ekki alltaf verið að spyrja um hluti sem eru hápólitískir heldur bara vantar upplýsingar frá sérfræðingi á tilteknu sviði,“ segir Valgerður. Almenningur telur upplýsingum leynt Svo virðist sem upplifun almennings hér á landi sé sú að upplýsingum sé leynt. Það gefa niðurstöður rann- sóknar Jóhönnu Gunnlaugsdóttur, dósents í bókasafns- og upplýsinga- fræði við Háskóla Íslands, til kynna. Í grein sinni í ritinu Samtíð undir heitinu Leyndarhyggja: viðhorf al- mennings til upplýsingagjafar stjórnvalda og stofnana kemur fram að helsta niðurstaða rannsókn- arinnar, sem gerð var í mars árið 2012 og byggist á tilviljanaúrtaki úr þjóðskrá, sé að meginþorri svarenda taldi að upplýsingum sem vörðuðu almannahagsmuni væri leynt oft eða stundum. Hún rannsakaði afstöðu almennings til þess hvort upplýs- ingum væri leynt eða komið með- vitað á framfæri við almenning. Í ljós kom að 88% svarenda töldu að ráðuneytin leyndu almenning upp- lýsingum sem vörðuðu almanna- hagsmuni oft eða stundum. Að sama skapi töldu 78% svarenda að sveit- arfélög leyndu borgarana upplýs- ingum. Í rannsókninni kom í ljós að 90% töldu að ríkisstjórnin leyndi upplýsingum (samsvarandi rann- sókn hefur ekki verið gerð eftir að núverandi ríkisstjórn tók við). Meirihluti taldi einnig að undirstofn- anir ráðuneyta leyndu upplýsingum. Fjölgun upplýsingafulltrúa virðist ekki skila sér í auknu trausti al- mennings til þess að hið opinbera veiti upplýsingar. Þegar blaðamenn hugðust fá frekari upplýsingar um lekamálið frá innan- ríkisráðuneytinu á dögunum, eftir að játning aðstoðarmanns ráðherra lá fyrir mátti enginn svara nema upplýsingafulltrúinn – sem var í fríi. Morgunblaðið/Eggert UPPLÝSINGAFULLTRÚAR HJÁ RÍKI OG BORG, SEM MEÐAL ANNARS HAFA ÞAÐ HLUTVERK AÐ VEITA FJÖLMIÐLUM UPPLÝSINGAR, GETA VIRKAÐ SEM ÞRÖSKULDAR FREKAR EN AÐ AUÐVELDA FLÆÐI UPPLÝSINGA. ALMENNINGUR TELUR AÐ STJÓRNVÖLD, RÁÐUNEYTI OG SVEITARFÉLÖG LEYNI UPPLÝS- INGUM. AÐJUNKT VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS BENDIR Á AÐ Á MEÐAN UPPLÝSINGAFULLTRÚUM FJÖLGI SÉ SKORIÐ NIÐUR Á FRÉTTASTOFUM. Blaðamenn reka sig oft á veggi inn- an stjórnkerfisins og fjölgun upplýs- ingafulltrúa hefur ekki leitt til aukins upplýsingaflæðis. * Jafnvel þegar ríkisstjórnin sker niður nauðsynlega þjónustu við al-menning þá getur hún ekki skorið niður fjölda upplýsingafulltrúa.Nick Cohen hjá Guardian um fjölgun upplýsingafulltrúa og fækkun blaðamanna í Bretlandi. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.