Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 16
Jón Oddur og Jón Bjarni eru
sniðugir bræður, tvíburar
reyndar! Hvers manns hug-
ljúfi en prakkarar þó. Mynd-
in er skemmtileg fjöl-
skyldumynd og fjallar um
þegar tvíburarnir halda í
sumarbúðir. Þeir staldra
ekki lengi við þar heldur
laumast úr sumarbúðunum
með tveimur vinum sínum.
Á ferðum sínum lenda þeir í
ótal ævintýrum og átta sig á
því að í þessari veröld er
margt að finna. Sagan um
Jón Odd og Jón Bjarna er tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Þráinn
Bertelsson leikstýrði myndinni en hún er gerð eftir bók Guð-
rúnu Helgadóttur. Páll Jósefs Sævarsson og Wilhelm Jósefs
Sævarsson fara með hlutverk tvíburanna. Aðrir leikarar eru
Egill Ólafsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Laufey Sigurðardóttir,
Þórhildur Ýr Arnardóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og fleiri.
Jón Oddur og
Jón Bjarni
Það er óhætt að segja að Veiðiferðin frá
árinu 1980 sé mikil klassík. Myndin er
skemmtileg fjölskyldumynd og fjallar um fjöl-
skyldu sem skundar í dagsferð á Þingvelli í
rjómablíðu. Hjón og börn þeirra ásamt
veiðifélaga og dóttur hans koma sér fyrir
við Þingvallavatn í því skyni að reyna að fá
eitthvað á öngulinn. Félagarnir hefja veiði á
meðan frúin sólar sig í veðurblíðunni.
Börnin verða hins vegar vör við skugga-
lega menn sem virðast hafa eitthvað
óhreint í pokahorninu. Börnin taka málin
í sínar hendur sem verður til þess að upp
hefst mikill spennuleikur og lenda þau í
ýmsum ævintýrum. Handrit er eftir
Andrés Indriðason en hann leikstýrði myndinni einnig.
Meðal leikara í myndinni eru Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður Karlsson, Kristín
Björgvinsdóttir, Guðmundur Klemenzson, Sigurður Skúlason, Yrsa Björt Löve, Pét-
ur Einarsson, Árni Ibsen og Guðrún Þ. Stephensen.
Veiðiferðin
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014
Fjölskyldan
Nóg um að vera fyrir börnin
Hvað og hvenær? Bókamessa í Ráðhúsi Reykjavíkur, barnadagskrá frá laug-
ardegi til sunnudags kl. 13.15-16.30 í matsalnum 1. hæð. Nánar: Fjölbreytt dag-
skrá og mikið í boði fyrir börnin. Teiknikeppni, Vísinda-Villi, Ævar vísindamaður,
fótboltafjör, sögustund og fleira. Nánar á www.bokmenntaborgin.is
ÞESSAR BÍÓMYNDIR VERÐA SEINT ÚRELTAR
Klassískar
fjölskyldu-
myndir
Í ÍSLENSKRI KVIKMYNDASÖGU MÁ FINNA MARGAR FRÁBÆR-
AR FJÖLSKYLDUMYNDIR. MARGAR HVERJAR SEM SKILDU
EFTIR SIG SPOR. SUNNUDAGSBLAÐIÐ VALDI NOKKRAR
PERLUR SEM FRUMSÝNDAR VORU FYRIR ALDAMÓT OG
GAMAN VÆRI FYRIR FJÖLSKYLDUNA AÐ HORFA Á SAMAN.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Þessi hjartnæma bíómynd frá 1994
er gerð eftir bók Guðmundar Ólafs-
sonar, Emil og Skundi. Falleg saga
sem fjallar um Emil, átta ára strák,
sem þráir ekkert meira en að eignast
hundinn Skunda. Hann leggur mikið
á sig til þess að eignast hundinn en
þegar draumurinn er loks orðinn að
veruleika kemur upp vandamál og
ákveður Emil að fara sínar eigin leiðir
til að redda málunum. Drenginn
dreymir auk þess dagdrauma og sér
reglulega fyrir sér kóng og drottn-
ingu sem eru í óðaönn við að byggja
risastóra höll en gleyma litla strákn-
um sínum í hamaganginum. Þor-
steinn Jónsson leikstýrir myndinni en með hlutverk fara Kári Gunn-
arsson, Guðrún Gísladóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og fleiri.
Skýjahöllin
„Goggi, hentirðu útigrillinu?
Viltu gjöra svo vel að fara
og ná í það? Því gæti verið
stolið!“ Stella í orlofi er
bíómynd sem allir þekkja.
Edda Björgvinsdóttir fer á
kostum í myndinni í hlut-
verki Stellu, Þórhallur Sig-
urðsson einnig í hlutverki
Salomons og fleiri leikarar.
Stella tekur að sér að fara
með viðskiptavin eig-
inmanns síns í laxveiði. Mik-
ill misskilningur verður að
kómískri fléttu og er hér á
ferðinni ekta íslenskt grín.
Myndin er frá árinu 1986 í leikstjórn Þórhildar Þorleifs-
dóttur en handritið er eftir Guðnýju Halldórsdóttur. Aðr-
ir leikarar í myndinni Gestur Einar Jónasson, Sólveig Arn-
arsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hildur
Guðmundsdóttir, Gísli Rúnar Jónsson og Sigurður Sig-
urjónsson. Hreint frábær mynd sem hefur að geyma gullna
frasa sem án efa eru gjarnan notaðir í gríni enn þann dag í
dag. „Út með gæruna!“
Stella í orlofi
Skáldsaga Her-
dísar Egilsdóttur
um Pappírs Pésa
var notuð í
handrit að sam-
nefndri bíómynd
fyrir fjölskyld-
una. Myndin
kom út árið
1990 og var hún
send í forval
Óskarsins árið
1991. Pappírs
Pési lendir í alls-
konar ævintýr-
um með uppá-
tækjasömum krökkum og má þar nefna
óvæntri flugferð, kassabílarallíi og gera þau
ýmis prakkarastrik í stórmarkaði. Nokkuð
sem fjölskyldan getur notið þess að hlæja að
saman. Ari Kristinsson leikstýrði myndinni en
leikarar er m.a. þau Kristmann Óskarsson,
Högni Snær Hauksson, Rannveig Jónsdóttir,
Magnús Ólafsson, Ingólfur Guðvarðsson og
fleiri.
Pappírs Pési
Stikkfrí er algjörlega frábær fjöl-
skyldumynd um tíu ára stúlku,
Hrefnu, sem leikin er af Berg-
þóru Aradóttur. Hrefna býr hjá
móður sinni en hefur aldrei
kynnst föður sínum og telur
hún föður sinn búa í Frakklandi.
Hún kemst þó að því að hann
býr í raun í Breiðholti. Þar hefur
hann stofnað nýja fjölskyldu, er
giftur og á tveggja ára gamalt
barn. Hrefna og vinkona hennar
Yrsa leggja á ráðin um að skoða
þennan umrædda pabba aðeins
betur sem hrindir af stað
skemmtilegri og spennandi atburðarás.
Stikkfrí var frumsýnd árið 1997 undir leikstjórn Ara Krist-
inssonar. Aðrir leikarar í myndinni eru Bryndís Gunnlaugs-
dóttir, Halldóra Björnsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson, María
Ellingsen, Halldóra Geirharðsdóttir, Hlynur Helgi Hall-
grímsson og Kristbjörg Kjeld.
Stikkfrí 1997
Benjamín dúfa er byggð
á samnefndri bók eftir
Friðrik Erlingsson. Fjórir
vinir í Reykjavík ákveða
að stofna riddarareglu
Rauða drekans og berj-
ast gegn ranglæti eftir að
hrekkjusvínið í hverfinu,
Helgi svarti, drepur
köttinn sem gömul kona
og vinkona drengjanna,
Guðlaug gamla, á. Með
reglunni vilja þeir hefna
fyrir morðið á kettinum. Í kjölfarið lenda strákarnir í
lífsreynslu sem mun rista djúpt. Allt í senn skemmti-
leg, spennandi og átakanleg saga um lífið og tilveruna
og baráttu góðs og ills.
Benjamín dúfa