Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Qupperneq 26
Lífrænar teikningar einkenna glugga vinnu- stofunnar og skapa skemmtilegan svip. Heiðdís málaði falleg munstur á veggina. Í gömlu húsi við Strandgötu 29 hefur Heiðdís Helgadóttir, sem hefur vakið athygli fyrir afar fallegar teikningar, opnað skemmtilegt, opið vinnurými. „Mig vantaði pláss sem var hvorki búð né gallerí en samt einhverskonar búð, gallerí og vinnustofa. Ég hoppaði á þetta húsnæði um leið og það var opnað enda ótrúlega stórt og gott rými, staðsett í Hafn- arfirði, sem er besti bær í heimi,“ segir Heiðdís og bætir við að hún geti jafnframt ekki skilgreint rýmið sem hún kýs að kalla Snilldina. Þá segir hún vinnu- stofuna notalega aðstöðu með góðum anda sem ein- kennist af miklum umgangi vina og vandamanna. Heiðdís segist taka hvatvísar ákvarðanir og hafi þar af leiðandi ekki verið lengi að innrétta vinnurým- ið. „Það fyrsta sem ég gerði var að velja tvo liti sem ég síðan gekk út frá, mér finnst ótrúlega mikilvægt að hafa mikið af litum. Ég valdi grá-blá-gula tóna og vann svolítið út frá þeim,“ segir Heiðdís og bætir við að hún hafi alltaf haft það hugfast að fá sér Chester- field-sófa. „Ég hafði í raun aldrei pælt í því áður, þetta bara kom upp í hugann. Ég lá síðan yfir bland- .is þar til ég fann einn fullkominn og svo byggði ég restina af stílnum út frá honum, bláa veggnum og plöntunum mínum,“ segir Heiðdís sem hefur tekist vel að skapa skemmtilegan anda inni í litríku og lif- andi vinnurými. „Svo er maður að kvarta yfir því að það sé aldrei verið að gera neitt almennilegt fyrir miðbæinn í Hafnarfirði en maður þarf stundum að gera hlutina sjálfur í stað þess að vera að bíða eftir að eitthvað gerist. Það hefur líka myndast mjög góð stemning hérna í vinnurýminu og skapast oft skemmtilegar umræður, ung kynslóð af fólki sem hefur hugmyndir. Við nefndum þetta stúdíó Snilld, því við vorum alltaf að hittast í snilldinni og gera einhverja snilld,“ segir Heiðdís og hlær og bætir við að það séu mikil forrétt- indi að geta starfað alfarið við teikningarnar. Heiðdís vinnur nú að nýjum teikningum og segist undanfarið hafa unnið að fjölda fígúruteikninga og líf- rænum formum. „Frá því að ég var í listaháskólanum hef ég verið afskaplega hrifin af lífrænum teikn- ingum. Ég hef alltaf heillast mikið af marglyttuformi en ég hef ekkert mikið verið að teikna það enda svo- lítið feimnari við að sýna það þar sem mér þykir ákaflega vænt um þær teikningar.“ Heiðdís útilokar ekki fleiri aðferðir og segist heillast mikið af textíl og barnateikningum. „Nú er ég mikið að skoða munstur út frá silki- þrykki. Ég fór á silkiþrykksnámskeið í Myndlista- skóla Reykjavíkur og langar svolítið að vinna meira með silkiþrykk.“ Heiðdís stefnir á að hafa vinnustofuna opna eitt- hvað í desember enda segir hún miðbæ Hafnar- fjarðar sérlega skemmtilegan á aðventunni „Vinkona mín kemur hingað að spila á harmonikku um jólin og svo verð ég með jólaglögg og einhverja svona… Snilld.“ Heiðdís gerði skemmtilegar mac- rame-hnýtingar úr neonböndum. Nýjar teikningar Heiðdísar einkennast meðal annars af lífrænum formum og fígúruteikningum. Heiðdís segir að skemmtilegar umræður myndist oft við stofuborðið eða sólina, eins og hún kýs að kalla það. Rúmgóð vinnuaðstaða Heiðdísar sem hún segir notalega aðstöðu með góðum anda. Heiðdís ásamt syni sínum Brynjari Val í eldhúsi vinnustofunnar. Morgunblaðið/Kristinn INNLIT Á VINNUSTOFU Litríkt og lifandi vinnurými HEIÐDÍS HELGADÓTTIR TEIKNARI HEFUR OPNAÐ SKEMMTILEGA VINNUSTOFU Í MIÐBÆ HAFNARFJARÐAR. HEIÐDÍS VINNUR NÚ AÐ NÝJUM TEIKNINGUM OG SEGIR ÞAÐ AFAR JÁKVÆTT AÐ FÁ AÐ TAKA ÞÁTT Í UPPBYGGINGU MIÐBÆJARINS. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Heimili og hönnun *Fallegu snagarnir Krummi og Ekki Rúdolfeftir Ingibjörgu Hönnu hafa notið gríð-arlegra vinsælda bæði hér heima og er-lendis. Krummi og fatahengið Ekki Rúdolf erufáanleg í nokkrum litum en nú hefur viðureinnig bæst við flóruna. Þessi flotta viðbót er falleg inn á hvert heimili og því tilvalin í jólapakkann. Nýtt frá Ingibjörgu Hönnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.