Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Matur og drykkir V ið hittumst reglulega og eigum saman góða stund við samstarfs- fólkið á Kopar og við hittumst nokkur þetta kvöld heima og snæddum saman ljúffenga máltíð,“ segir Ylfa Helgadóttir en hún og sambýlismaður hennar, Alfreð Pétur Sigurðsson, buðu heim í mat. Ylfa er einn af eigendum Kopars en í boðinu voru auk Ylfu og Alfreðs einn af meðeigendum Ylfu í Kopar; Ásta Guðrún Óskarsdóttir, Inga Dís Richter samstarfskona þeirra og svo móðir Ylfu, Þórdís Rafnsdóttir, sem hefur verið viðloðandi veitingastaðinn, svo að hópurinn þekkist vel. „Það er svolítil áskorun að útbúa risotto og svo finnst mér fátt betra en vel steiktur lax sem er bleikur í miðjunni svo það varð úr að ég útbjó það sem forrétt. Í aðalrétt var lambakjöt og þegar maður er með þungan mat á maður það til að missa sig í meðlætinu sem er óþarfi. Maður sér fyrir sér að hafa þetta og hitt en endar uppi með að allir fá sér hálfa teskeið af hverju og einu og þetta dagar uppi í ísskápnum. Þetta er því mjög ein- faldur aðalréttur. Það er helst forrétturinn sem er kannski flókinn en að- al- og eftirétturinn eru það alls ekki.“ Á Kopar er bakað hvítt súkkulaði notað sem konfekt og eftirrétturinn er með bökuðu hvítu súkkulaði. Ylfa segir að bragðið sem kemur af súkkulaðinu sé allt öðruvísi þegar það er bakað og minni helst á Daim en sjálf er hún mikill Daim-aðdáandi. „Fólk þarf að hafa tímann fyrir sér með eftirréttinn og ágætt að útbúa hann til dæmis kvöldið áður en hann er ekki flókinn, engin egg sem þarf að þeyta eða neitt slíkt.“ Ertu dugleg að halda boð? „Já, ég hef verið það í gegnum tíðina en kannski ekki alveg síðustu mánuði. Ég tek gestgjafahlutverkinu fagnandi og ef ég býð fjölskyldunni til dæmis í hádegisverð á sunnudegi nýt ég þess að baka og stússa allan laugardaginn. Ég upplifi það aldrei sem kvöð heldur bara skemmtun.“ Ylfa segist alltaf taka gestgjafahlutverkinu fagnandi. LAX, LAMB OG BÚÐINGUR Í EFTIRRÉTT Þríréttuð sælkeramáltíð Ylfu Hópurinn frá vinstri: Inga Dís Richter, Ylfa Helgadóttir, Alfreð Pétur Sigurðsson, Þórdís Rafnsdóttir og Ásta Guðrún Óskarsdóttir. YLFA HELGADÓTTIR, EINN AF EIGENDUM VEITINGASTAÐARINS KOPARS, BAUÐ HEIM Í ÞRÍRÉTTAÐA MÁLTÍÐ ÞAR SEM LAX, LAMBAKJÖT OG HVÍTT SÚKKULAÐI VORU Í AÐALHLUTVERKI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Eplin skorin niður í salsað með forréttinum. 400 g arboriohrísgrjón 2 skallottlaukar 1 dl þurrt hvítvín 2 dl humarsoð eða annað skelfiskssoð 1dl þeyttur rjómi ½ dl parmesanostur, rifinn safi úr 1 sítrónu salt eftir smekk olía til steikingar Saxið laukinn smátt og svitið hann á pönnu með smáolíu. Hann má ekki verða brúnn. Bæt- ið hrísgrjónunum út á pönnuna og steikið smá. Hellið þá helm- ingnum af hvítvíninu út á grjónin og hrærið stöðugt í á meðan vínið sýður niður. Hellið þá helmingnum af soðinu saman við. Hrærið stöðugt í blöndunni. Endurtekið eins og þarf, bætið afganginum af hvítvíninu og soð- inu til skiptis saman við eða þar til grjónin eru soðin. Kannski þarf minna af víni og soði, kannski meira. Fer eftir smekk. Rétt áður en risottoið er borið fram er þeyttum rjóma og par- mesanosti blandað varlega sam- an við. Smakkið til með sí- trónusafa og salti. LAXINN 1 laxaflak 1 dl sykur 1 dl salt olía til steikingar Roðflettið laxinn og leggið á bakka. Blandið salti og sykri sam- an og sáldrið yfir flakið, leyfið því að standa í ísskáp í 30 mínútur að minnsta kosti. Skerið í hæfi- lega bita, Ylfa mælir með bitum upp á 70-80 g. Hitið pönnu og steikið laxinn upp úr smáolíu í u.þ.b. tvær mínútur á annarri hliðinni og rétt svo í 10-30 sek- úndur á hinni. Leggið laxinn á bakka og leyfið hitanum að vinna sig inn að miðju laxins áður en hann er borinn fram með ris- ottoinu. Humarrisotto og steiktur lax
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.