Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Qupperneq 36
Í skáldsögunni Ready Player One eftir Ernest Clinekemur mjög við sögu sýndarveruleiki framtíðarinnarsem fólk tengist með því að spenna á sig einskonar
sýndarraunveruleikahjálm og hanska með skynjurum og
líður fyrir vikið eins og þeir séu raunverulega staddir í
öðrum heimi. Þessi saga rifjaðist upp fyrir mér þegar ég
spennti á mig Oculus Rift-þrívíddargleraugun til að spila
EVE: Valkyrie, nýja leikinn frá CCP sem kemur á markað
á næstu mánuðum. Nánast um leið og ég spennti tækið á mig
og setti á mig heyrnartól var ég bú-
inn að gleyma því að ég sat við tölvu
við borð vestur í bæ því mér leið eins
og ég væri að stýra geimskutlu í hör-
kuátökum. Lykill að því var að ég sá
ekki bara það sem var fyrir framan
mig heldur gat ég litið til hliðar og
meira að segja aftur fyrir mig líkt og
ég væri í stjórnklefa bardagafleys
langt úti í geimi.
Eins hagnýtar og tölvur annars eru
þá hefur menn lengi dreymt um að stíga næsta skref í notagildi,
af tvívíðum tölvuskjá og inn í þrívíddar-sýndarheim. Það stef sést
oft í kvikmyndum, allt frá því að menn sýsla með gagnagrunna í
þrívídd í að þeir stýra apparötum eða sýndarverum við ýmis verk-
efni. Fjölmörg tæki hafa líka verið kynnt sem ljúka eiga upp þrí-
víddinni en með misjöfnum árangri þó – sum tæki gera menn sjó-
veika, önnur skila svo óskýrri mynd að viðkomandi gæti eins verið
að horfa á bilað sjónvarp og svo eru það tæki sem eru svo þung
að kraftlyftingamenn kikna undan þeim.
Á síðustu árum hefur tækninni fleygt svo fram að þrívíddar-
gleraugu nálgast það að vera raunhæfur kostur og gott dæmi um
það er Oculus Rift, þrívíddargleraugu, þó það sé vissulega mun
meira en gleraugu, sem bandaríska fyrirtækið Oculus VR kynnti
fyrir tveimur árum. (Facebook keypti Oculus VR fyrir sem svarar
250 milljörðum króna í mars sl.) Fleiri eru um hituna á þessu
sviði en Oculus Rift vakti athygli meðal annars fyrir það að tækið
er með 7" skjá, 24 bita litadýpt ríflega og skjáupplausn – er
1920×1080 á tækinu sem ég prófaði (Development Kit 2), en verð-
ur víst að minnsta kosti 2000×1080 dílar á tækinu sem kemur á
almennan markað á næsta ári. Það að skjárinn sé 7" gerir að
verkum að sjónsviðið er 90 gráður sem er mun meira en á sam-
bærilegum tækjum (sjónsviðið á Sony Personal 3D Viewer er 45
gráður).
Eins og getið er um í upphafi þá var ég að spila forútgáfu af
EVE: Valkyrie frá CCP, sem kemur á markað um leið og Oculus
Rift, en það eru líka til fleiri leikir sem hægt er að spila með smá
tilfæringum með forútgáfu af tækinu, áðurnefndu Developer Kit 2
eða þriðju forútgáfunni, Crescent Bay, sem var kynnt í sept-
ember. Samkvæmt Wikipedia var Team Fortress 2 frá Valve
fyrsti leikurinn sem hægt var að spila með græjunni, en síðan má
líka spila Half-Life 2 eða Hawken.
Það gefur augaleið að þrívíddargleraugu eins og Oculus Rift
eiga eftir að hafa gríðarleg áhrif í tölvuleikjum og ná örugglega
miklum vinsældum, en ég spái því að tækið eigi eftir að verða not-
að á fleiri sviðum, til að mynda hvað varðar kappleiki í íþróttum,
til að skoða fjarlæga staði (fara í sýndarferðalag), fylgjast með
markverðum viðburðum, fundum eða fréttnæmum uppákomum,
taka þátt í ráðstefnum eða samkomum, „mæta“ á mótmælafundi
eða nema á námskeiði og svo má lengi telja. Þegar svo verður bú-
ið að þróa hanska sem vinna á sama hátt, þ.e. stýra „höndum“
manns í sýndarheiminum sem gleraugun sýna þá erum við komin
á enn annað stig – en eins framúrskarandi og það var annars að
spila leikinn með stýripinna, þá langaði mig mikið til að geta not-
að hendur og fingur á sem eðlilegastan hátt, að geta „snert“
stjórntækin og annað sem ég sá í stjórnklefanum. Það er bylting í
aðsigi og það engin smá bylting.
BYLTING Í AÐSIGI
ÞRÍVÍDD ER NÆSTA SKREF Í TÖLVULEIKJUM
OG ÞÁ ÞRÍVÍDD MEÐ ÞEIM HÆTTI AÐ
NOTANDI SPENNIR Á SIG ÞRÍVÍDDARGLER-
AUGU EINS OG OCULUS RIFT OG HEYRN-
ARTÓL OG HVERFUR INN Í NÝJAN HEIM.
SLÍKT MUN ÞÓ EKKI BARA VERÐA
NOTAÐ Í TÖLVULEIKJUM, ÞVÍ NOTAGILDIÐ
ER SVO MIKLU, MIKLU MEIRA.
* Þó að vel miði með OculusRift, eða virðist miða vel í það
minnsta, þá er enn talsvert í land
með að koma græjunni á almennan
markað. Crescent Bay er fyrsti vísir
þeirrar græju sem seld verður á al-
mennum markaði og með flesta þá
möguleika sem eiga að vera til
staðar, en fyrirtækið segir að það
séu nokkrir mánuðir eftir og því
ljóst að hún kemur ekki út fyrr en
á næsta ári og líklega ekki fyrr en
næsta haust.
* Crescent Bay-frumgerðin ermeð innbyggð heyrnartól, sem er
til mikilla bóta, og styður mun
meiri hreyfingu, er með fleiri hrey-
fiskynjara og nákvæmari. Skjárinn er
með meiri upplausn en eldri gerðir,
en ekki er gefið upp hver hún er,
þó að fyrirtækið hafi lýst því yfir að
hún verði meiri en 2000×1080 dílar
í endanlegri útgáfu.
* Eins og ég nefni hér til hliðarþá langar mann í meira en hefð-
bundinn stýripinna þegar maður
notar Oculus Rift á kollinum og
annar stofnandi fyrirtækisins hefur
látið þau orð falla að þróa þurfi
fullkomnari stýripinna til að not-
endur geti nýtt þrívíddarmöguleik-
ana til fulls, þó enn viti menn ekki
hvernig sá stýripinni muni líta út
eða virka.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Ekkert gefur betri mynd af því hvernig er að spila með Oculus Rift en að horfa um öxl.
Þegar maður horfir framfyrir sig sjást hendur á stýripinna - ég vil geta hreyft þær.
Græjur
og tækni
Salernisleit með appi
*Að hringsóla í stórborgum klukkustundumsaman, með viðkomu á kaffihúsum, kallar oftá tíðar klósettferðir og þá geta málin vand-ast; að finna þau. Ágætis smáforrit sem kall-ast Crohn’s er vinsælt meðal þeirra semdvelja á nýjum stöðum í heiminum og vita aðþeir muni þurfa að bregða sér á salernið en
með appinu má auðveldlega finna góð salerni
í næsta nágrenni notandans.
Saga Oculus Rift byrjaði sem Kickstarter-verkefni og meðal
þeirra sem studdu það í upphafi var íslenska leikjafyrirtækið
CCP. Leikjahönnuðir CCP byrjuðu snemma að þróa leik
fyrir það sem þeir kölluðu EVE-VR sem var svo sýndur á
hátíð EVE-unnenda í Hörpu og síðan á E3-kaupstefnunni á
síðasta ári. Á endanum varð EVE-VR síðan að fullbúnum
leik, EVE: Valkyrie, sem kemur á markað um leið og Oculus
Rift, en síðan verður hann fáanlegur fyrir þrívíddargræju
Sony, Project Morpheus, þegar hún kemur á markað.
EVE: Valkyrie er hasarleikur eins og þeir gerast bestir;
leikurinn hefst þar sem sá sem spilar stýrir þungvopnaðri
orrustuflaug sem tekur þátt í snörpum bardaga út í geimn-
um. Á vefsetri leiksins, http://evevalkyrie.com/, kemur fram
að spilendur geta unnið sig upp í metorðastiganum eftir
færni og getu og eins verður hægt að velja hvort maður vill
vera í framlínubardaga eða stuðningshlutverki, aukinheldur
sem maður getur bætt við sig vopnum og komist á betri
flaugar eftir því sem manni fer fram og líka hægt að skipta
um fley í miðjum bardaga ef hentar.
Eins og leikurinn er í dag þá er í honum mikill hraði og
spenna og eins gott að hafa sig allan við, ekki síst í ljósi þess
að óvinir geta birst úr öllum áttum.
EVE-VR VERÐUR AÐ EVE: VALKYRIE
Barist upp á líf og dauða