Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Síða 39
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
*Menn hafa breyst í verkfæri verkfæra sinna. Henry David Thoreau
Ertu ennþá að hlusta á Eric Clap-
ton eða Taylor Swift með eyr-
unum? En ófrumlegt. Tveir breskir
frumkvöðlar halda því nú fram að
„beinhlustun“ – semsagt það að
nema hljóð í gegnum beinin í
mannslíkamanum – geti dýpkað
hljóðskynjun fólks til muna og gert
því kleift að hlusta á tónlist á annan
hátt en áður.
Að hlusta á tónlist fyrir atbeina
titrings í líkamanum – og nema
þannig svonefnt „áþreifanlegt
hljóð“ – fremur en með bylgjum
sem ferðast í gegnum loftið er
tækni sem Steve Snooks og James
Williams ætla sér að vekja athygli á
með uppfinningu sinni, SubPac.
Á heimasíðu SubPac kemur fram
að tækið sé „hágæðabassakerfi sem
flytur lágar tíðnir inn í líkama þinn,
og dregur þannig fram í dagsljósið
líkamlega eiginleika hljóðs“.
Með öðrum orðum er hér um
að ræða hátalarastæðu í bakpoka
sem gerir hlustendum kleift að
finna fyrir hljóði í stað þess að
heyra það aðeins. Einnig er til út-
gáfa af SubPac sem fest er við stól-
bak og sendir þaðan djúpa strauma
upp í rass hlustenda og fær beinin
til að nötra.
„Mikið af raunverulegu hljóði
stafar af titringi, straumi, sem fer
beint í kuðunginn í innra eyra þar
sem unnið er úr hljóði, í stað þess
að fara með lofti í gegnum eyrað,“
sagði Sebastian Merchel frá
Tækniháskólanum í Dresden í sam-
tali við BBC. Hann benti einnig á að
börn gætu heyrt með þessum
hætti í móðurlífi.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Hlustað með beinunum
SubPac er smeygt á bakið eins og
venjulegum bakpoka.
Samskiptarisinn Facebook vinnur nú að því að setja á
laggir sérstakt tengslanet fyrir vinnandi fólk svo það geti
ræktað sambönd sín og unnið saman að vinnuskjölum.
Financial Times greindi frá þessu í vikunni.
Facebook at Work mun svipa til núverandi síðu Face-
book sem fólk styðst við í einkalífi sínu. Notendum verður
hins vegar gert kleift að aðskilja persónulega síðu sína frá
þeirri sem einskorðast við vinnu.
Starfsmenn, sem sagðir eru vinna að þróun nýju síð-
unnar, sögðu í samtali við Financial Times að notendur
myndu geta spjallað við vinnufélaga, byggt upp tengslanet
og deilt vinnuskjölum.
Nýja síðan, sem sagt er að sé nú þegar í notkun innan
höfuðstöðva Facebook, gæti veitt þjónustum á borð við
Google Drive, Microsoft Office og LinkedIn harða sam-
keppni.
LinkedIn, sem sett var á laggir árið 2003, er í dag
stærsti fagsamskiptamiðillinn. Notendur hans eru um 332
milljónir og þeir dreifast milli rúmlega 200 landa. Not-
endur Facebook um víða veröld eru hins vegar um 1,35
milljarðar. Fram kemur á vef BBC að ýmsir atvinnurek-
endur hafi sínar efasemdir um notagildi samskiptamiðla á
vinnustað og hafa bannað þá á skrifstofum sínum.
„Facebook at Work mun eflaust gagnast fyrirtækjum
að einhverju leyti, en ekki á þann hátt sem þau halda,“
segir Andre Spicer, prófessor við Cass Business School, í
samtali við BBC. „Framleiðni starfsfólks mun ólíklega
aukast, en Facebook at Work gæti gert það tengdara og
meðvitaðra. Samskiptamiðlar á borð við Facebook auð-
velda fólki að byggja upp „veik tengsl“, semsagt við fólk
sem það talar sjaldan við og þekkir aðeins lítillega. Slík
tengsl geta gefið af sér verðmæta bakgrunnsþekkingu.“
NÝJASTA NÝTT
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og Joko Widodo,
forseti Indónesíu, í vikunni.
AFP
Facebook verði
vinnutæki
S
pjaldtölvurnar munu án efa
nýtast vel,“ segir Ásgeir
Haraldsson, prófessor og
yfirlæknir barnalækninga á
Barnaspítala Hringsins, um spjald-
tölvurnar tíu sem Samsung og Sím-
inn færðu spítalanum á dögunum.
„Þótt við starfsfólkið séum
skemmtileg þurfum við oft að
dreifa athygli barnanna annað, eins
og til dæmis þegar við verðum að
taka blóðprufu eða hjartalínurit og
þau þurfa að vera róleg og vær. Þá
dreifum við huga þeirra frá því
sem við erum að gera og gagnast
spjaldtölvur einstaklega vel til
þess. Við höfum hins vegar átt til-
tölulega fáar og því kemur gjöfin
sér vel.“
Ásgeir bendir einnig á að oft sé
gott að grípa til spjaldtölva þegar
veikindin eru útskýrð fyrir börnum
og foreldrum. „Þá er auðvelt að
fara á netið og sjá góðar myndir
sem skýra stöðuna.“
Spjaldtölvurnar verða einnig not-
aðar til afþreyingar fyrir börn og
jafnvel foreldra á löngum og
ströngum dögum á spítalanum.
„Það er töluvert um að foreldrar
séu með tölvur til afþreyingar. Það
er þó misjafnt hvað fólk getur og
því gott að geta gripið til þessara,“
segir hann en á þeim öllum hefur
verið sett upp Sjónvarps Símans-
appið og aðgangur að SkjáKrökk-
um þar sem finna má á þriðja
hundrað klukkustundir af íslensku
og talsettu barnaefni.
Þrjú til fjögur þúsund börn
leggjast inn á spítalann á ári og 25
þúsund koma á bráðadeildir og
göngudeildir spítalans.
Spjaldtölvur til Hringsins
SPJALDTÖLVUR HJÁLPA TIL
VIÐ AÐ DREIFA HUGA
BARNA OG NÝTAST VEL Á
BARNASPÍTALA HRINGSINS,
SEGIR YFIRLÆKNIR.
Spjaldtölvur geta komið að góðum notum og létt dvölina á spítalanum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
iPad mini
Verð frá44.990.-
Silfur - Dökkgrár