Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014
BÓK VIKUNNAR Í Grín og snilld Tyrions Lannisters er að
finna bestu tilsvör einnar eftirminnilegustu persónunnar í
Game of Thrones-bókunum og -sjónvarpsþáttunum.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
Skálmöld er fjórða og jafnframt nýjastabókin í Sturlungakvartett EinarsKárasonar, en hinar eru Óvinafagn-
aður, Ofsi og Skáld. Um leið er Skálmöld
fyrsta bókin í bálknum, þegar kemur að
tímaröð atburða, en þar er lýst aðdraganda
þess að borgarastyrjöld braust út á Íslandi.
„Í bókinni fjalla ég um það hvernig þessi
djöfulskapur allur byrjaði en segja má að það
hafi orðið vegna þess að Sturla Sighvatsson
ákvað að leggja undir sig landið og í kjölfarið
varð borgarastyrjöld sem stóð nokkurn veg-
inn í tuttugu ár,“ segir Einar. „Það er búið
að segja þessu sögu áður mjög glæsilega en
ég vildi gera það á annan hátt en þeir snill-
ingar Sturla Þórðarson og Thor Vilhjálms-
son sem skrifuðu um þetta efni, tek það mín-
um tökum og segi frá með röddum persóna
sem urðu vitni að atburðarásinni. Þar eru
bæði fórnarlömb og gerendur sem voru sitt-
hvorumegin víglínunnar. Þetta er margradda
skáldsaga eins og hinar, ég vék aðeins frá því
í Skáldi og þar voru kaflar sem sagðir voru í
þriðju persónu, en núna blanda ég náunga
sem heitir E.K. inn í frásögnina.“
Nú er Sturla Sighvatsson aðalpersóna
þessarar bókar. Hefurðu sterkar taugar til
hans?
„Ég hef velt honum mikið fyrir mér. Thor
heitinn Vilhjálmsson skrifaði bók um Sturlu,
Morgunþulu í stráum, og hafði sterka teng-
ingu við Sturlu, og allt öðru vísi en ég sem
alltaf verið heldur skeptískur á hann. Það má
kannski sjá af þeim skáldverkum sem ég hef
skrifað um Sturlungatímann að mínir menn
eru kannski helst Þórður kakali og Sturla
Þórðarson, en ég hef ekki minna gaman af
að skrifa um persónur sem ég hef krítískara
samband við, eins og Gissur Þorvaldsson
sem var miðlægur í Ofsa, og nú Sturlu Sig-
hvatsson, og það býður að sumu leyti upp á
fleiri möguleika. Sturla er gerandinn í sög-
unni en ekki mjög fyrirferðarmikill sem að-
alpersóna og þarna er fólk sem ég hef lagt
mikla vinnu í að gefa rödd, manneskjur sem
mér þykja algjörlega stórfenglegar, eins og
Guðmundur biskup góði, Þórdís, dóttir
Snorra Sturlusonar, og Sólveig kona Sturlu,
og Steinvör systir hans. Þarna fannst mér
ég sannarlega heppinn að hafa dottið niður á
þá margradda aðferð sem ég hef notað í öll-
um bókunum. Það var einstaklega gaman að
lifa sig inn í þetta fólk.“
Þú hefur lifað og hrærst í Sturlungu síð-
ustu árin og skrifað fjórar skáldsögur um
þennan tíma. Hvernig hefur verið að lifa í
þessum forna heimi og hvernig er að kveðja
hann með þessari bók?
„Fyrir mörgum árum hitti konan mín
gamlan Sturlungumann, og sagði honum að
ég væri núna lagstur í Sturlungu. Þá sagði
hann: „Það er erfitt að komast inn í Sturl-
ungu en það er útilokað að komast út úr
henni aftur.“ Og það hef ég auðvitað reynt á
sjálfum mér. Í fimmtán ár hefur það verið
minn aðalstarfi að liggja yfir þessum fræð-
um. Auk þess að skrifa þessar bækur hef ég
haldið námskeið hjá Endurmenntun Háskól-
ans og hef farið um allt land og rætt um
Sturlungu. Þetta er búið að vera stórkostlega
skemmtilegt.
Það er skrýtið að hrærast í þessum heimi
Sturlungaaldarinnar og þeir sem eru Sturl-
ungumenn eru nokkuð sérstakur þjóðflokkur.
Maður kemur í veislur eða boð og sjálfkrafa
gerist það að nokkrir Sturlungumenn eru
lentir saman úti í horni og orðnir mjög
áhyggjufullir yfir einhverju sem er að gerast
árið 1240 og hafa miklar tilfinningar til per-
sóna.
En Skálmöld er semsé sú bók sem stendur
fremst í kvartettinum þótt hún komi síðust
út, og að sumu leyti var skemmtilegast að
skrifa hana; ég gat náð í fólkið sem ég var
áður búinn að nefna og nota, og viðkynningin
við það var afar ánægjuleg og gefandi.
Mest er þó gaman hvað er alltaf mikið líf í
kringum þessar bækur. Það er alltaf verið að
biðja mig um að koma í skóla og segja frá
Óvinafagnaði, sem kom út fyrir þrettán ár-
um, og svo eru afburðasnjallar ungar
leikhúskonur, Marta Nordal og Edda Björg
Eyjólfsdóttir, búnar að gera leikgerð upp úr
Ofsa, ásamt sínum góðu liðsmönnum. Og hún
verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu núna á
sunnudagskvöldið.“
Gefandi viðkynning
„Mest er þó gaman hvað er alltaf mikið líf í kringum þessar bækur,“ segir Einar Kárason en í fimm-
tán ár hefur það verið hans aðalstarfi að liggja yfir Sturlungu.
Morgunblaðið/Ómar
EINAR KÁRASON SENDIR FRÁ SÉR
SKÁLMÖLD SEM ER FJÓRÐA BÓKIN Í
STURLUNGAKVARTETT HANS.
HANN SEGIR AÐ ÞAÐ HAFI AÐ
SUMU LEYTI VERIÐ SKEMMTILEGAST
AÐ SKRIFA ÞESSA BÓK.
Fyrstu bækurnar sem ég las voru bækur sem pabbi bar heim en hann
var prentari og komst stundum yfir gallaðar bækur. Ein af þeim var
um hana Pollýönnu eftir Eleanor H. Porter, stelpuna sem var allt-
af glöð og smitaði jákvæðni. Bókin er skrifuð í kring-
um aldamótin 1900 og hefur fallegan boðskap sem
ég hef reynt að tileinka mér á fullorðinsárum en
gengið misjafnlega.
Á eftir barnabókatímabilinu kom alvarlega tímabil-
ið þegar maður átti að vera kominn í fullorðinna
manna tölu og lesa þyngri bókmenntir. Ég var mjög
lengi að kveikja í þeirri deild og hélt áfram að lesa
ástarsögur og svo spennusögur. En svo komst ég yfir
bókina Hroka og hleypidóma eftir Jane Austen
og þá upplifði ég mjög sterkt hvernig er að komast í annan heim í
tíma og rúmi í gegnum texta, mun frekar en í gegnum kvikmyndir.
Bókin sem ég er að lesa núna er Náðarstund eftir áströlsku
skáldkonuna Hannah Kent sem var skiptinemi í Skagafirði og heill-
aðist af sögunni um Agnesi Magnúsdóttur sem var dæmd til dauða
fyrir morðið á elskhuga sínum Natani Ketilssyni. Snilldarleg þýðing
Jóns St. Kristjánssonar eykur enn á áhrif sögunnar en Jóni tekst
að setja söguna í sérlega íslenskan búning. Mjög forvitnilegt verður að
lesa bókina líka á frummálinu og gera samanburð.
Lestur ljóðabóka hefur verið áskorun fyrir mig en lengi vel skildi ég
hvorki upp né niður í því formi. Ég gaf ljóðelskri vinkonu minni bók-
ina Blóðhófni eftir Gerði Kristnýju af því ég vissi sem var að
Gerður er ein sú besta þótt ég hafi aldeilis ekki lesið ljóðabækur
hennar að ráði sjálf fram að þessu af því ég skildi ekki neitt. Ég ákvað
að verða mér úti um þessa bók til að vera samræðuhæf og viti menn,
hún náði mér og ég mæli með því að upplifa heilar sögur í meitluðum
orðum Gerðar. Það tók töluvert á en var þess virði.
Í UPPÁHALDI
SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR
RITSTJÓRI
Hannah Kent
Sólveig
Baldursdóttir
BÓKSALA 1.-16. NÓVEMBER
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 VísindabókVilla 2Vilhelm Anton Jónsson
3 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
4 Galdrabók Einars Miakels og töfrahetjannaEinar Miakel
5 Frozen matreiðslubókinSiggi Hall / Walt Disney
6 Útkall: ÖrlagaskotiðÓttar Sveinsson
7 Stóra heklbókinMay Corfield
8 Frozen hárbókinTheodóra Mjöll / Walt Disney
9 NáðarstundHannah Kent
10 Bjór - Umhverfis jörðina á 120 tegundumStefán Pálsson / Höskuldur
Sæmundsson / Rán Flygenring
Íslensk skáldverk
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 VonarlandiðKristín Steinsdóttir
3 KataSteinar Bragi
4 DNA (hljóðbók)Yrsa Sigurðardóttir
5 SkálmöldEinar Kárason
6 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
7 AfdalabarnGuðrún frá Lundi
8 DNAYrsa Sigurðardóttir
9 EnglarykGuðrún Eva Mínervudóttir
10 Litlu dauðarnirStefán Máni
STURLUNGUMENN ERU NOKKUÐ SÉRSTAKUR ÞJÓÐFLOKKUR