Stígandi - 01.10.1946, Qupperneq 25
ÞATTUR AF JONI LOFTSSYNI
Eftir ARNÓR SIGURJÓNSSON
Undanfarin fimm ár liefi ég í hjáverkum mínum safnað drög-
um til ævisögu Einars Ásmundssonar í Nesi. Þá sögu hefði ég
(viljað geta ritað á þann veg, að hún væri jafnframt að verulegu
ieyti hagsaga Eyfirðinga og Þingeyinga á ofanverðri 19. öld. Við
snudd mitt við að safna efni til slíkrar sögu hefi ég komizt í nokk-
ur ikynni við ýmsa samtíðarmenn Einars, einkum nágranna hans,
vini og andstæðinga. Einn þeirra er Jón Loftsson, náinn vinur og
samstarfsmaður Einars lengst starfsævi þeirra beggja, einhver
hinn vaskasti og .hugþekkasti rnaður, er hófst á legg við Eyjafjörð
ummiðja öldina, sem leið, en nú flestum gleymdur, nema örfáum
gömlunr mönnum, sem enn kannast við lrann sem „skipstjórann
mikla“.
Jón (Gísli) Loftsson er fæddur í Syðstabæ í Hrísey á jóladag
1835.*) Faðir lians, Loftur Jónsson, var bjargálna útvegsbóndi af
góðum eyfirzkum og þingeyzkum bændaættum, en móðir hans,
Guðrún, var dóttir sr. Gísla í Stærra Árskógi Jónssonar biskups
á Hólum Teitssonar. Árið 1846 fluttu foreldrar Jóns að Grenivík
í Höfðahverfi, og þar náði hann fullorðinsaldri. Haustið 1856, er
hann var tvítugur að aldri, sigldi liann til Kaupmannahafnar til
að læra stýrimannafræði. 441 eru tvær frásagnir manna, sem með
honum voru í Kaupmannahöfn þann vetur, er þá fór í hönd, um
þessa námsdvöl 'hans. Þessar ifrásagnir bæta livor aðra upp, og fer
því vel á að kynna hann ungan nreð því að birta þær ihér orðrétt.
Önnur frásögnin er í æviminningum Matthíasar Jochumssonar
*) Einar Jónsson (Minningarrit fimnuíu ára afmælis Stýrimannaskólans, bls. 117)
og Gils Guðmundsson (Skútuöldin I, 494) telja Jón fæddan á jóladag 1838. Þetta
mun tekið eftir dánarminningu um Jón eftir Einar i N’esi (Fróði 9. júlí 1883). En
þó að þar hafi góður maður um fjallað, virðist ekki nægilega vandað til heimilda,
og því ýmislegt ónákvæmt. Þannig segir Einar Jón hafa farið utan „á tvítugasta
ári" og gifzt „fullt tvítugan", og kemur það ekki heim við fæðingarárið 1838. Ég
hafði þó eins og þeir Einar og Gils tekið þetta fæðingarár trúanlegt. En samkvæmt
ministrialbók Stærra Árskógs (athugun Indriða Indriðasonar) er Jón fæddur á
jóladag 1835, og kemur það betur lieim við allt, sem um hann er kunnugt.-
STÍGANDI 263