Stígandi - 01.10.1946, Side 26
skálds (Söguikaflar af sjálfum mér, bls. 113—114), en Matthías var
veturinn 1856—’57 við verzlunarnám í Kaupmannahöfn:
,.Af öðrum stýrimannaefnum og iðnaðarsveinum þótti mér mest
kveða að nokkrum Eyfirðingum. Tveir þeirra voru prúðmenni:
Gunnlaugur Gunnlaugsson (týndist síðar með þilbát sínum í legu)
og Jón Loftsson, hinn mesti snyrtimaður og ör á fé. Kölluðu lags-
menn hans hann „baróninn“. Hann varð og skipstjóri og andað-
ist ungur. Var hann bróðir frú Lovísu, konu Snorra kaupmanns
Jónssonar, ogmannsefni mikið. Við Jón þessi komum okkur sam-
an um, að mikil nauðsyn væri á Joví, að iðnaðarmenn og aðrir
óráðnir sveinar og meyjar frá íslandi ættu eitthvert aðhald og at-
hvarf í Höfn, því að okkur þótti nóg um hringlandann og siðleysið.
Síðan skutum við á fundi og ræddum málið. Urðu allgóðar undir-
tektir, er við bárum upp þá tillögu, að stofna skyldi félag fyrir
ólærða landa í borginni. Því var okkur Jóni falið á hendur að
semja lög fyrir samband þetta og sýna Jóni Sigurðssyni. Þetta
gerðum við Og fórum síðan til Jóns Sigurðssonar. Honum þótti
tiltækið mjög ráðlegt og lögin vel meint, en vantreysti því, að
nokkuð yrði úr slíku félagi, þegar við færum heim og nýir og
nýir kæmu. Á næsta fundi mættu fáir, og fór svq. að tillagan dó
í fæðingunni."
Hin frásögnin er í minningum Vigfúsar bókbindara Sigurðs-
sonar landnámsmanns í Vigur á Nýja íslandi, og eru þær minn-
ingar í „Framhaldi á landnámssögu Nýja íslands" eftir Þ. Jackson
(bls. 40 o. áfr.):
„----Um vorið 1856 samdist svo með fjölskyldunni að slá
botninn í búskapinn á Brekku.--Við systkinin þrjú fórum frá
Brekku til Akureyrar.---Ég undi þar ekki lengur en til næsta
hausts. Sigldi þá til Kaupmannahafnar til að læra sjómanna-
fræði.---Þegar ég kom til Kaupmannahafnar, voru þrír landar
aðrir þar komnir, sem ætluðu að .læra sjómennsku um veturinn:
Jón Loftsson frá Grenivik, Stefán Hjörleifsson frá Skinnastað og
Jón nokkur frá Reynistað. Kom þá upp sá kvittur, að nýlega væri
búið að breyta stýrimannaskólalöggjöfinni þannig, að nú þyrfti
að læra helmingi meira en áður, ef menn ættu að taka próf, annars
fengi menn ekki að fara með skip milli landa. Áður gátu flestir
lært það, sem þurfti,, á 6 mánuðum, en nú mundi ekki veita af
12 mánaða tíma. En jafnframt vorum við 'huggaðir með því, að
við gætum verið farmenn við fiskiveiðar kringum ísland, þó að
við tækjum ekki próf.---Jón Loftsson keypti 16 lesta jakt þar
264 STÍGANDI