Stígandi - 01.10.1946, Síða 26

Stígandi - 01.10.1946, Síða 26
skálds (Söguikaflar af sjálfum mér, bls. 113—114), en Matthías var veturinn 1856—’57 við verzlunarnám í Kaupmannahöfn: ,.Af öðrum stýrimannaefnum og iðnaðarsveinum þótti mér mest kveða að nokkrum Eyfirðingum. Tveir þeirra voru prúðmenni: Gunnlaugur Gunnlaugsson (týndist síðar með þilbát sínum í legu) og Jón Loftsson, hinn mesti snyrtimaður og ör á fé. Kölluðu lags- menn hans hann „baróninn“. Hann varð og skipstjóri og andað- ist ungur. Var hann bróðir frú Lovísu, konu Snorra kaupmanns Jónssonar, ogmannsefni mikið. Við Jón þessi komum okkur sam- an um, að mikil nauðsyn væri á Joví, að iðnaðarmenn og aðrir óráðnir sveinar og meyjar frá íslandi ættu eitthvert aðhald og at- hvarf í Höfn, því að okkur þótti nóg um hringlandann og siðleysið. Síðan skutum við á fundi og ræddum málið. Urðu allgóðar undir- tektir, er við bárum upp þá tillögu, að stofna skyldi félag fyrir ólærða landa í borginni. Því var okkur Jóni falið á hendur að semja lög fyrir samband þetta og sýna Jóni Sigurðssyni. Þetta gerðum við Og fórum síðan til Jóns Sigurðssonar. Honum þótti tiltækið mjög ráðlegt og lögin vel meint, en vantreysti því, að nokkuð yrði úr slíku félagi, þegar við færum heim og nýir og nýir kæmu. Á næsta fundi mættu fáir, og fór svq. að tillagan dó í fæðingunni." Hin frásögnin er í minningum Vigfúsar bókbindara Sigurðs- sonar landnámsmanns í Vigur á Nýja íslandi, og eru þær minn- ingar í „Framhaldi á landnámssögu Nýja íslands" eftir Þ. Jackson (bls. 40 o. áfr.): „----Um vorið 1856 samdist svo með fjölskyldunni að slá botninn í búskapinn á Brekku.--Við systkinin þrjú fórum frá Brekku til Akureyrar.---Ég undi þar ekki lengur en til næsta hausts. Sigldi þá til Kaupmannahafnar til að læra sjómanna- fræði.---Þegar ég kom til Kaupmannahafnar, voru þrír landar aðrir þar komnir, sem ætluðu að .læra sjómennsku um veturinn: Jón Loftsson frá Grenivik, Stefán Hjörleifsson frá Skinnastað og Jón nokkur frá Reynistað. Kom þá upp sá kvittur, að nýlega væri búið að breyta stýrimannaskólalöggjöfinni þannig, að nú þyrfti að læra helmingi meira en áður, ef menn ættu að taka próf, annars fengi menn ekki að fara með skip milli landa. Áður gátu flestir lært það, sem þurfti,, á 6 mánuðum, en nú mundi ekki veita af 12 mánaða tíma. En jafnframt vorum við 'huggaðir með því, að við gætum verið farmenn við fiskiveiðar kringum ísland, þó að við tækjum ekki próf.---Jón Loftsson keypti 16 lesta jakt þar 264 STÍGANDI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.