Stígandi - 01.10.1946, Síða 34
Ingólfur þótti gott skip og aflasælt, en ekki varð það gamalt, því
að það fórst sumarið 1868 vestur við Hornstrandir og týndist þar
skipshöfnin öll. Þá var formaður skipsins bróðir Jóns, Sigfús Krist-
inn, mjög efnilegur og aflasæll sjómaður og hinn ágætasti maður.
Jón fór vestur á strandstaðinn, og er til skýrsla lians um þá för,
skýr og greinargóð. (Nf: 19. marz 1869, líka tekin í Skútuöldina
II, 183-184).
Annað gerðisit þó þarna í Keflavík, sem meira var um vert en
útgerð Ingólfs: Þar hélt Jón sjómannaskóla, líklega eina sjó-
mannaskólann, er þá var á landinu! Verður varla annar vitnis-
burður fundinn gleggri um það, hve mjög þótti um siglingakunn-
áttu Jóns vert, en að menn skyldu sækja hann heim til náms í sjó-
mannafræðum norður til Keflavíkur í Fjörðum. Árni Guðmunds-
son á Þórustöðum á Svalbarðsströnd minnist þess frá því, er hann
var smádrengur á Þönglabakka í Þorgeirsfirði,*) að Jón hafði þá
einn veturinn 3 eða 4 nemendur í Keflavík, og var einn þeirra af
Tjörnesi og annar úr Grímsey. Eflaust er við Jón átt, þar sem Ein-
ar í Nesi getur þess í riti sínu ,,Um framfarir á íslandi“, að „ein-
staka formaður (hafi) haldið heimaskóla á vetrum og kennt ungum
mönnum hið helzta af siglingafræðinni." Þetta rit Einars er sam-
ið veturinn eftir að Jón flutti frá Keflavík.
Vorið 1868 flut'ti Jón búferlum að Efra-Haganesi í Fljótum.
Þar var hann jafn vel settur til útgerðar sem í Keflavík, en betur
til félagslegrar þátttöku. Þetta sama vor stofnuðu útvegsmenn við
Eyjafjörð gagnkvæmt tryggingarfélag um hákarlaskip sín, Ábyrgð-
arfélag Eyfirðinga. Stjórn þess félags skipuðu í upphafi þrír
virkta vinir Jóns, Steinke kaupmaðui', Einar í Nesi og Tryggvi
Gunnarsson. Þegar á öðru starfsári sínu stofnaði félag þetta til
skólahalds fyrir skipstjóraefni á hákarlaskip og tók að sér að
greiða kennslugjald fyrir 8 nemendur hvern vetur, 100 rd. saman-
lagt, en annan kostnað skyldu nemendur greiða sjálfir. Félagið réð
Jón til að veita skólanum forstöðu, og var skólinn haldinn á
'heimili ihans, Efra-Haganesi, tvo vetur, jan., febr. og marz 1871 og
jan., febr. og marz 1872. Um skólahaldið fyrri veturinn segir svo í
Norðanfara (X ár, 38):
„Áður er þess getiðhér í blaðinu, að Hið eyfirzka ábyrgðarfélag
hefir heitið 100 rd. gjöf árlega til þess að koma hér upp skóla,
hvar kennd yrði sjómannafræði, siglingalist, seglagerð og ýms sjó-
*) Árni er fæddur 1. mars 1859, og var 9 ára, er Jón flutli úr Keflavík.
272 STÍGANDI