Stígandi - 01.10.1946, Page 37
Ekkert varð þó af þvi, að Sigurður kæmist á skip til Jóns, því
að liætt var við þorskveiðarnar á Gefjun,. og segir Sigurður það
vegna þess, að Jón varð að vera heima að búi sínu. Hins vegar
komst Sigurður í lítilsháttar kynni við foreldra Jóns, sem hann
telur félaga sína hafa kallað „mikla skipstjórann“, og var það á
leið frá Siglufirði inn Eyjafjörð. Foreldrar Jóns voru þá á Sauða-
nesi á Upsaströnd, hafa líklega átt þar bú og jörð með Jóel tengda-
syni sínum Jónassyni frá Hvammi. Sá Sigurður ekki annað fólk
þar, svo að hann myndi eftir, en þau gömlu hjónin, sem honum
ieizt (forkunnarvel á, og virðist svo, að ljóminn, sem 'hann sá um
„mikla skipstjórann", ihafi á þau fallið og einkum Loft, sem Sig-
urði sýndist að:vísu..,mikið lægri en Jón sonur hans“, en þó aug-
ljóst, að „hefði verið til einhvers“. Haustið 1871 leitaði Sigurður
til Jóns (ævisagan II, bls. 63 o. áfr.) og bað hann að kenna sér
sjómannafræði. Jón tók honum hlýlega, en kvaðst ekki hafa hús-
rúm fyrir fleiri nemendur, en hann hafði þegar lofað að taka, réð
honum að stunda sjómennsku áfram sem háseti, ef hann vildi
verða skipstjóri, 'kvað margan læra sjómannafræði, sem yrði ráða-
laus, er mest á riði, er hann tæki við skipi, sökum þess að hann
hefði ekki fengið næga æfingu við venjuleg sjómannastörf. Sagð-
ist Jón sky.ldi með ánægju kenna Siguði, ef hann kæmi til sín
síðar, er hann væri orðinn sjónurn vanari.
Svo sýndist sem öll efni stæðu til, að hagur Jóns mætti verða
hinn bezti í Efra-Haganesi. Hann bjó þar á góðri jörð, átti hlut
í mesta og ef til vill bezta skipi veiðiflotans, var formaður á því
sikipi og náinn viniur og samstarfsmaður hinna l>eztu manna á
Siglufirði og við Eyjafjörð. En svo liætti skóli hans, sem sýnist
hafagengið ágætlega og fengið bezta orð, eftir tvo vetur, um sömu
nrundir hættir Jón skipstjórn og flytur litlu síðar frá Haganesi.
Ekki er vitað, hvernig á þessum hvörfum í lífi hans stendur, en
munnmæli eru um, að setzt hafi að honum sjálfsásökun fyrir það,
að hann ætti sök á Ingólfsslysinu. Hefði Sigfús bróðir lrans færzt
undan að leggja í veiðiiför svo árla sumars, en Jón ráðið því, að
farið var engu síður. Þessi sjálfsásökun á að hafa valdið því, að
hann ákvað að hætta með öílu sjósókn og útgerð. Ekki er ólík-
legt, að þetta sé rétf. og hefir þá þessi sjálfsásökun Jóns elnað, er
ifrá atburðum leið, og getur slíkt verið vel skiljanlegt. Víst er, að
vorið 1875 flutti Jón frá Haganesi að ættargarði konu sinnar,
Hvammi í Höfðahverfi, og stundaði, að því er virðist, eftir það
landbúnað einvörðungu. Hins vegar hélt hann eitthvað áfram
18*
STÍGANDI 975