Stígandi - 01.10.1946, Síða 38
kennslu í sjómannafræðum, og lærðu t. d. þeir bræður synir Þor-
steins mágis ihans á Grýtubakka, Þorsteinn, Oddur og Vilhjálmur,
allir 'hjá ihonum sjómannafræði, og hlýtur það að liafa verið eftir
að 'hann kom að Hvammi. Þeir þóttu góðir sjómenn, sem þeir
áttu ætt til, og náði Vilhjálmur ihæstum aflahlut allra hákarla-
formanna við Eyjafjörð fyrr og síðar.
Vel var Jóni tekið af gömlum sveitungum hans, er hann flutti
aftur til þeirra 1875. Hann varð brátt hreppstjóri þeirra, og svo
vinsæll, að gamalt fólk kveðst ekki ltafa heyrt hans minnzt öðru-
vísi en vinsamlega. Tók liann þó mikinn þátt í félagsmálum, og
mæddi allmjög á honuni, þar sem á forystu þurfti að halda. Þegar
Sparisjóður Höfðhverfinga var stofnaður á nýársdag 1879, var
hann kjörinn formaður sjóðstjórnarinnar, en meðstjórnendur
voru þeir Einar í Nesi, sem var gjaldkeri sjóðsins, og sr. Björn
í Laufási, sem var varaformaður. Meira félagsstarf og erfiðara
varð Jóni það, er hann tók að sér forgöngu við stofnun bindindis-
félags í sveitinni á öndverðum vetri 1877 (—’78) og formennsku
þess félagsskapar. Félag þetta varð allfjölmennt og talsvert fjör-
mikið um fundahöld, en Ijindindis'hreyfing var þá ung í landi
hér, og kunnu ýmsir illa því ófrelsi, er þeir töldu bindindið vera.
í handrituðu blaði, er lestrarfélag Höfðhverfinga gaf út um nokk-
urra ára skeiéý er svo sagt frá öðrum aðalfundi bindindisfélags-
ins 29. des. 1878: „29. if. m. var haldinn í Hvammi aðalfundur
bindindisfélagsins, sem stofnað var í fyrra hér í sveitinni. A fund-
inurn mættu 27 félagsmenn og allmargir utan félags. Þar voru
fyrst lesin upp félagslögin, og stungu nokkrir félagsmenn upp á
að breyta þeim í þá stefnu að veita öllum í félaginu undanþágu
frá bindindi í samkvæmum. Eftir nokkrar umræður var tillaga
þessi felld með rneiri hluta atkvæða. Gengu þá úr félaginu nokkrir
menn, en viðlíka margir í það aftur.“ Ári síðar er enn frásögn
af þriðja aðalfundi félagsins, sem haldinn var milli jóla og nýárs
1879: „----var hann sóttur af flestum félagsmönnum. En hvað
var þar að heyra? Hljóm úr svipaðri klukku og á síðasta aðalfundi.
Margir félagsmenn voru sárir yfir, hvað bindindið væri strangt,
og létu í veðri vaka, að iþeir mundu ekki geta lengur skrifað undir
slíka harðstjóm. Kom mönnum þá saman um á fundinum, að
leyfa þeim, er vildu, að fá þá undantekningu, að mega drekka
áfenga drykki í brúðkaupsveizlum, heldur en missa marga úr
félaginu." Þetta var kallað B-flokkur bindindismanna í félaginu.
Margt var um þetta rætt, og sýndist mjög sitt hvorum um slíka
276 STÍGANDI