Stígandi - 01.10.1946, Síða 46
TYNDIR SKOGAR
Eftir JOHANNES V. JENSEN
Hann hét Korra og var akuryrki. Er hann hafði auðgast, fór
hann til borgainnar til að kaupa sér þræl.
Kaupmaðurinn sýndi honum marga þræla, en Korra var ekki
ánægður.
— Viltu kannske, að ég dragi þá alla fram fyrir þig, hvæsti
kaupmaðurinn að lokum — þetta var um miðjan daginn, meðan
þrælarnir sváfu.
— Ég get gjarnan farið í aðra verzlun, sagði Korra.
Þá það. Kaupmaðurinn kippti í hlekkina og Korra fékk að sjá
allan hópinn. Hann athugaði hvern einstakan með mikilli ná-
kvæmni.
— Taktu á þessurn hérna, hann er einstæður, sagði kaupmað-
urinn og teymdi einn fram úr hópnum.
— Ha? Er ekki brjóstkassinn dásamlegur, sláðu á liann! Og
finndu þessa handleggi, sinarnar eru eins og fiðlustrengir.
— Gaptu! Kaupmaðurinn stakk fingri í munnvik þrælsins og
sneri honum móti Ijósinu.
— Nú skaltu fá að sjá tennur. Og hann dró hnífsegg hratt yfir
framtennur þrælsins.
— Sjáðu hér, góði maður, það er málmur á þeim. Þetta eru
tennur, sem geta bitið í sundur nagla.
Korra hugsaði sig enn um nokkra hríð. Hann athugaði þræl-
inn mjög nákvæmlega og boraði fingurgómunum inn í vöðva
hans til að vita, hve þeir væru þéttir.
Að lökum ákvað hann sig og fékk þrælinn leystan úr keðjunni.
Og er fliann ,hafði borgað, súr á svip, hélt hann heimleiðis.
Innan fárra daga varð þrællinn veikur.
Þar sem hann var ekki lengur hjá þrælasalanum, heldur í ró og
næði, þá fékk hann heimþrá eftir skógum átthaganna. Korra
þekkti það vel — einkennin voru svo greinileg.
Hann settist hjá þrælnum, sem lá á bakið og vildi ekki lifa, og
talaði varfæmislega við hann.
284 STÍGANDI