Stígandi - 01.10.1946, Side 47
— Þú skalt komast aftur til skóganna þinna, sagði hann, ég lofa
því og þér er óhætt að treysta mér. Þú ert ungur enn þá, og ef þú
vilt rækta fyrir mig jörðina í fimm ár, trúr og geðgóður — reyndar
hefi ég borg'að þig, en við skulum láta það liggja á milli hluta —
þá skaltu fá aftur frelsi þitt.
Fimm ár.
Og þrællinn stritaði. Hann hamaðist eins og djöfull.
Það var blessun guðs yfir Korra, þar sem hann sat í húsdyrun-
um og sá liina stæltu vöðva hnykklast og kvika undir brúnni húð-
inni. Hann hafði ekki annað skemmtilegra fyrir stafni en sitja og
horfa á þrælinn vinna. Honum fór að verða það ljóst, að maður-
inn var fagur hlutur — augnayndi.
— Fimm ár — þrællinn reiknaði — jafnmörg sólhvörf og fingur
hans. Hann sá sólina ganga til viðar hvert kvöld, og miðaði við
bæðir og steina til að fylgjast með framvindu tímans. Eftir fyrstu
sólhvörf dró hann þumalfingur hægri,handar frá. Að öðrum lokn-
um — en sá tími var hræðilega lengi að líða — varð vísifingur einn-
ig frjáls. Og hann elskaði þessa tvo fingur framar liinum, sem
urðu að bíða svo lengi, lengi enn.
Þetta stóra reikningsdæmi varð auður þrælsins, hans eigin eign,
sem enginn gat frá honum tekið.
Og meðan tíminn leið, urðu útreikningar hans víðari og óskýr-
ari. Árstíðirnar hurfu fram hjá, stórar og takmarkalitlar, og hann
skildi þær ekki. En framan í ásýnd kvöldroðans endumýjaði
þrællinn von sína.
Tíminn, sem virtist svo stuttur, meðan hann var, varð óskoðan-
legur liðinn, og hvert nýtt tímabil tafði með komu sína.
Þannig varð veröld þrælsins djúp. Þegar þrá lians bar hann
gegnum tímann, hvarf rúmið einnig frá honum. Hvert kvöld,
sem leið, færði með sér meiri dýpt.
Allt var langt, langt í burtu.
Það, sem að eilífu endurtók sig, mundi aldrei nást.
Hvert kvöld starði þrællinn inn í sólarlagið.
Þegar fimm ár voru loksins liðin — það er svo auðvelt að segja
það — kom þrællinn og bað um frelsi sitt. Hann vildi fara heim.
— Þú hefir ræktað jörðina mína vel, sagði Korra athugandi, en
segðu mér, hvar áttu heima — í vestrinu? Ég hefi séð þig mæna
þangað.
Jú, þrællinn átti heima í vestri.
STÍGANDI 285