Stígandi - 01.10.1946, Side 62
HÓLMFRÍÐUR INDRIÐADÓTTIR
Eftir BRAGA SIGURJÓNSSON
5. júní 1802 fæddist meybarn eitt að Grænavatni í Mývatnssveit.
-Það hlaut í skírninni nafnið Hólmfríður. Foreldrar barns þessa
voru vinnuhjú á bænum, gift þá fyrir tuttugu dögum. Hétu þau
Indriði Illugason og Rósa Guðmundsdóttir. Illugi Þorgrímsson,
faðir Indriða, bjó búskaparár sín í Fremri-Hlíð og á Ljótsstöðum
í Vopnafirði ásamt konu sinni, Hólmfríði Hallgrímsdóttur, en
bæði munu þau hafa verið þingeysk að ætt. Rósa Guðmundsdótt-
ir, móðir Hólmfríðar, var dóttir hjónanna Guðmundar Árnason-
ar í Kasthvammi og Ólafar Hallgrímsdóttur. Systkini Ólafar voru
séra Gunnar Hallgrímsson, föðurfaðir Tryggva Gunnarssonar og
Kristjönu, móður Hannesar Hafstein; og Ingibjörg Hallgríms-
dóttir, langamma Sigurjóns á Laxamýri, föður Jóhanns skálds og
þeirra systkina.
Árið 1803 flytja foreldrar Hólmfríðar að Baldursheimi í Mý-
vatnssveit og hefja þar búskap. Þaðan fluttu þau 1810 að Þverá í
Reykjahverfi og búa þar síðan til æviloka. Varð þeim 12 barna
auðið, og var Hólmfríður elzt þeirra.
Það lætur að vonum, þegar þess er gætt, á hvaða tíma Hólm-
fríður elzt upp og í hve stórum systkinahópi, að uppfræðsla henn-
ar mun varla hafa verið nokkur fram yfir lestrarnám, kverlærdóm
og ef til vill einliverja lítilfjörlega skriiftarkennslu. Ekki munu
heldur tómstundirnar hafa margar orðið, sem hún hefir getað
leitt hugann að hugðarefnum sínum, er ekki fylgdu sömu slóðum
og hversdagsstörfin.
Þegar Hólmfríður er enn í föðurgarði og ekki nema liðlega
tvítug, ræðst hún í stórræði með Sigurlaugu systur sinni, er var
enn yngxi: Þær taka að yrkja rímur af Ármanni undir Ármanns-
felli. Mun það hafa verið fátítt, að konur legðu rímnagerð fyrir
sig;
í lok rímnanna, sem eru 16 talsins og rösk 1500 erindi, binda
systurnar nöfn sín, segja hvenær ort sé (1826)*) og að þær hafi
*) Þó segir Hólmfríður á öðrum stað 1 eftirmálanum, að hún sé 22 ára.
300 STÍGANDI