Stígandi - 01.10.1946, Side 68
LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR
Heilsufar komandi kynslóða
Eftir VERA STANLEY ALDER
Þegar við hugleiðum framtíðina, sem felur í sér fjölþættari
kynblöndun en nokkru sinni áður, er ekki svo létt að skipa
hverju atriði á réttan stað, eins og t. d. heilsufræði og vísindum.
Mörg atriðanna ganga mjög á víxl. Allt, sem snertir iieilsufræði,
verður að síðustu nátengt menntun — sáirænni og andlegri
menntun — og öllu, sem snertir manninn, svo sem skilningur
ýmissa vísindagreina, þar á meðal áhrif lita, hljóðs og ilms. Ýmis
konar aðrar tegundir koma til greina, og er ógerningur að marka
þeim bás eða þeim áhrifum, er þær hafa á heilsu mannanna.
Á þeim tíma, sem er að líð?.. hefir heilsuifar manna — vegna
sérstakra lækninga — komizt í sömu ógöngurnar eins og hag-
fræðin og önnur vandamál mannanna. En nú snúum við okkur
að iframtíðinni.
Við höfum veitt því athygli, að heilsufarið tekur stórkostleg-
um breytingum til hins betra, vegna bættrar alþjóða-afkomu.
Miklum ótta verður útrýmt úr vitund manna, svo sem stríðsótta
og ótta við matarskort. Þessar breytingar munu eftir nokkra ætt-
liði verða svo stórstígar, að þær verða naumast skiljanlegar þeim,
sem núáifa. Hversdagslíf manna verður stöðuggleði. Henni fylgir
aukið þrek, sem lætur menn gleyma slíkum hlutum-sem vínanda,
kjöti og tóbaki. Allt verður þetta mönnunum ónauðsynlegt og
viðbjóðslegt. Heilsurækt, fegurð og þekking verða eftirsóttar.
Hinn geysimikli þáttur, sem geimgeislar og öldulengdir hafa,
munu srnátt og smátt gera mennina næmari fyrir allri geislun, og
nýjar uppgötvanir í heilsurækt verða kunnar. Geislar þeir, er
stafa frá stjarnlíkömum, verða til þess að skýra launung þá, er
hvílt hefir yfir svonefndri stjörnuspeki, og þá verður hún iðkuð
á vfsindalegan hátt.
Eftir því sem menn gerast næmari fyrir öllum geislaáhrifum,
fara þeir að finna þá og ‘sjá, og þeir munu reyna að haga lifnaði
sínum í samræmi við þá hjálp, sem geislaáhrifin veita þeirn. Þá
306 STÍGANDI