Stígandi - 01.10.1946, Side 72
fái notið fullrar lieilsu og þæginda líifsins, jafnframt fullri vissu
um, livernig hans andlegu og líkamlegu.heilsu er háttað.
Með hverri kynslóð, sem hverfur á brott, fækkar sjúkdómum
þeim, er við höfum tíðast átt í höggi við. Sumar sérfræðigreinar
læknislistarinnar hverfa úr sögunni, því mein mannanna verða
eingöngu sálræns eðlis. Sóttir og þjáningar verða þá ekki lengur
daglegir gestir á heilsuræktarstöðvunum, en þar verða hafðar um
hönd líkamsæfingar og sjálfsagi, er stefnir að þroskun og alhliða
menningu. Að lokum verða lieilsuræktarstöðvarnar tengdar við
aðrar menntastofnanir, og mynda þá eina órjúfanlega heild. Hin
vaxandi æska, sem þá hefir nægar tómstundir, mun óska að liafa
tækifæri til náms og starfa. Þá mun það álitið óheppilegt að troða
menntun í unglinga, sem hafa ekki náð vissu 'þroskamarki, þ. e.
meðan líkarns- og sálargáfur þeirra haía ekki náð samræmdum
þroska. Á þennan hátt losnar æskan við þá kvöl, sem er afleiðing
óheppilegs fyrirkomulags í kennslumálum, þegar reynt er að
troða senr mestu af námsgreinunum í hana, þegar hún er sízt
móttækileg fyrir þær og verður að heyja taugastríð við þrotlaus
próf, sem henni er ætlað að vinna sigur y.fir, ekki aðeins án nægr-
ar andlegrar og sálrænnar hjálpar, heldur einnig undir torveld-
um og óhollum skilyrðum. Þessar breytingar munu valda aukinni
heilbrigði, langt fram yfir það meðallag, sem nútíminn á að
venjast.
Þagnarkyrrðin, sem ríkir í dag um hið almenna heilsufar, verð-
ur bráðurn rofin, og þá verða teknar skýrar og vísindalegar af-
stöður til heilbrigðismálanna. Ástæðan fyrir þessu verður ahnenn-
ur áhugi fyrir stjörnuspeki. Sem stendur er skilningur manna
mjög ófullkominn í þessum efnum. Hann hefir dregizt aftur úr
öðrum vísindagreinum; en geislafræðin mun valda aldahvörfum
á þessu sviði. Vaxandi þekking á geimgeislum, sjúkdómagrein-
ingu og læknandi sveiflum stefnir að einu og sama marki: Að hún
verði tekin í almenna heilsuþjónustu. Næsta sporið er að einangra
þá geisla, er stafa frá sérstökum stjörnum, ákveða hin efnislegu
áhrif þeirra og breytingar þeirra í sambandi við hreyfingar stjarn-
anna, sem þeir stafa frá. Á þann hátt verður lagður grunnur að
raunhæfum stjörnuvísindum, bæði frá trúarlegu og vísindalegu
sjónarmiði.
Þroskaðra vitundarnæmi margra einstaklinga mun auka tölu
þeirra, er gæddir eru einhvers konar skyggnigáfu. Einkum verða
menn skyggnir á segulstöðvar þær, sem hverjum 'einstaklingi eru
310 STÍGANDI